1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

4
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

5
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

6
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

7
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

8
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

9
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

10
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Til baka

Starfsmaður hótels dæmdur fyrir fólskulega árás

Brotaþoli hlaut sár á kjálka auk þess sem þrjár tennur brotnuðu

Austurstræti
Hótelið er við Austurstræti

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Aleksandar Sasa Vrzina í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás á mann fyrir utan City Center Hotel við Austurstræti í febrúar 2025.

Samkvæmt dómnum réðst maðurinn, sem þá starfaði sem næturvörður við hótelið, að brotaþola eftir að sá síðarnefndi hafði rekist utan í rúðu hótelsins. Á upptöku úr öryggismyndavélum sést hvernig ákærði gengur að manninum, grípur harkalega í hálsmál hans og hrindir honum á ljósastaur áður en hann fellir hann í jörðina.

Þá sést Vrzina sparka af afli í brotaþola þar sem hann var að reyna að rísa á fætur. Dómurinn taldi ekki sannað hafið yfir skynsamlegan vafa að sparkið hefði lent í höfði mannsins, eins og ákært var fyrir, en komst að þeirri niðurstöðu að árásin hefði valdið verulegum áverkum.

Brotaþoli hlaut sár á kjálka auk þess sem þrjár tennur brotnuðu. Fyrir dómi kom fram að hann muni þurfa endurteknar tannviðgerðir um ókomin ár vegna afleiðinga árásarinnar.

Dómurinn hafnaði alfarið þeirri málsvörn Vrzina að hann hefði verið að verjast árás. Var talið að brotaþola hefði ekki stafað nein ógn af honum þegar ákærði beitti hann ofbeldi.

Við ákvörðun refsingar var litið til þess að árásin hefði verið tilefnislaus og fólskuleg.

Vrzina var gert að greiða brotaþola samtals 1.200.500 krónur í miska- og skaðabætur auk 700 þúsund króna í málskostnað.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

Gleðifréttir!
Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Sex manna fjölskylda brennd til bana
Myndband
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

Innlent

Veðurskipti framundan
Innlent

Veðurskipti framundan

Breytingar taka við á fimmtudag
Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Loka auglýsingu