1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

4
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

5
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

6
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

7
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

8
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

9
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

10
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Til baka

„Þetta var innanbúðarverk“

Ekkja mannsins sem lést í morðtilræðinu við Trump telur að um samsæri sé að ræða.

Donald Trump skotinn
Trump stuttu eftir tilræðiðEkkjan telur brögð vera í tafli
Mynd: REBECCA DROKE / AFP

Ekkja fyrrverandi slökkviliðsstjórans Corey Comperatore, sem lét lífið í misheppnaðri morðtilraun á Donald Trump í Butler í Pennsylvaníu árið 2024, segist sannfærð um að víðtækt samsæri hafi legið að baki árásinni.

Helen Comperatore ræddi málið í viðtali við NewsNation og sagði að hún teldi stjórnvöld hafa átt einhvern þátt í atburðinum.

„Ég trúi því að þetta hafi verið innanbúðarverk, einhvers staðar innan stjórnkerfisins,“ sagði hún. Þegar hún var spurð hvort hún teldi að um pólitískt samsæri hefði verið að ræða svaraði hún: „Já, algjörlega.“

Viðmælandinn spurði hvort hún hefði séð einhver gögn sem bentu til víðtækara samsæris. Hún kvaðst ekki geta lagt fram sönnunargögn en sagðist hafa fengið upplýsingar sem hefðu styrkt grun sinn.

„Mér hefur verið sagt ýmislegt. Svo gerðist eitthvað hjá mér skömmu eftir árásina og þegar maður fer að púsla þessu saman þá meikar þetta allt fullkominn sens,“ sagði hún.

Helen segist einnig sannfærð um að árásarmaðurinn, hinn tvítugi Thomas Crooks, hafi ekki staðið einn að verki heldur verið hluti af stærra pólitísku samsæri sem hefði það markmið að ráða Donald Trump af dögum. Hún nefndi þó enga einstaklinga eða hópa sem hún teldi bera ábyrgð.

Engin staðfest gögn hafa hins vegar komið fram sem styðja fullyrðingar um samsæri að baki árásinni.

Í viðtalinu skoraði hún á Trump forseta að taka rannsókn málsins sjálfur í sínar hendur og sagði að hún myndi ekki finna frið fyrr en þeir sem bæru ábyrgð yrðu dregnir til ábyrgðar.

„Ekki gleyma okkur. Mundu hvað við gengum í gegnum þennan dag. Við erum enn hér og þurfum svör,“ sagði hún og lýsti þeim skilaboðum sem hún myndi senda forsetanum.

Nú eru tvö ár liðin frá því að byssukúla strauk eyra Donalds Trump á kosningafundi í Butler. Corey Comperatore varð fyrir skoti og lést þegar hann reyndi að verja fjölskyldu sína. Árásarmaðurinn, Thomas Crooks, var skotinn til bana af öryggissveitum á vettvangi.

Þrátt fyrir umfangsmikla rannsókn hefur enn ekki tekist að skýra hver hvati Crooks var. Hann skildi hvorki eftir sig stefnuyfirlýsingu né aðra skýringu á verknaðinum og takmörkuð umsvif hans á netinu hafa gert rannsóknina erfiðari.

Í nýrri skýrslu eftirlitsaðila stjórnvalda kemur fram að meginskýring mistakanna hafi verið alvarlegir annmarkar í vinnubrögðum bandarísku leyniþjónustunnar. Samkvæmt skýrslunni bárust stofnuninni aldrei 102 tilkynningar sem sendar voru í gegnum talstöðvakerfi lögreglu um grunsamlegan mann sem síðar reyndist vera Crooks.

Helen Comperatore segir óskiljanlegt að ekki hafi verið brugðist við strax.

„Af hverju? Af hverju hefði ekki átt að bregðast við eftir fyrstu tilkynninguna? Ef þeir hefðu einfaldlega haldið Trump frá sviðinu væri ég ekki hér að ræða þetta í dag,“ sagði hún.

Hún gagnrýndi jafnframt leyniþjónustuna harðlega og sagði stofnunina hafa brugðist á öllum stigum.

„Þeir gerðu allt vitlaust. Þeir hlustuðu ekki á talstöðvarnar og samskiptin voru engin,“ sagði hún.

Ekkjan sagði einnig að enginn frá leyniþjónustunni hefði haft samband við hana fyrr en sumarið 2025, tæpu ári eftir árásina, og að hún hefði enn ekki fengið fullnægjandi svör við spurningum sínum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Atvikið átti sér stað 2. október
Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Risastór gagnaleki skekur Danmörku
Heimur

Risastór gagnaleki skekur Danmörku

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar
Innlent

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku
Heimur

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku

Stella breytir garnafgöngum í nýja uppáhaldspeysu
Menning

Stella breytir garnafgöngum í nýja uppáhaldspeysu

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

Einelti hefur aukist meðal yngri barna í grunnskólum
Innlent

Einelti hefur aukist meðal yngri barna í grunnskólum

Ugla gagnrýnir viðbrögð karlmanna við hópnauðgunarmálinu í Cornell-háskólanum
Innlent

Ugla gagnrýnir viðbrögð karlmanna við hópnauðgunarmálinu í Cornell-háskólanum

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife
Heimur

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Atvikið átti sér stað 2. október
Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife
Heimur

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Risastór gagnaleki skekur Danmörku
Heimur

Risastór gagnaleki skekur Danmörku

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku
Heimur

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

Loka auglýsingu