
Belgísk yfirvöld handtóku tólf einstaklinga fyrr í vikunni í umfangsmikilli lögregluaðgerð vegna rannsóknar á meintum vændishring sem talið er að hafi neytt ólögráða stúlkur til kynferðislegrar þjónustu gegn greiðslu.
Rannsókn málsins hófst í mars eftir að 16 ára stúlka hvarf sporlaust. Samkvæmt upplýsingum frá saksóknaraembættinu í Brussel fannst stúlkan síðar heil á húfi og hefur verið komið fyrir á öruggum stað.
Lögregla framkvæmdi yfir tólf húsleitir í tengslum við rannsóknina og hafa rannsóknarmenn þegar borið kennsl á þrjú ólögráða fórnarlömb. Grunur leikur á að fleiri börn hafi orðið fyrir barðinu á starfseminni.
Yfirvöld telja að glæpasamtökin hafi verið rekin af þremur ungmennum undir lögaldri með aðstoð þriggja fullorðinna einstaklinga, tveggja karla og einnar konu. Hópurinn er grunaður um að hafa skipulagt kynferðislega misnotkun fórnarlamba sinna á markvissan og faglegan hátt.
Samkvæmt saksóknara sáu hin grunuðu meðal annars um samskipti við viðskiptavini, birtingu auglýsinga, bókun gistirýma og skipulagningu funda. Talið er að starfsemin hafi verið rekin í hagnaðarskyni.
Allir helstu sakborningar sitja enn í gæsluvarðhaldi að einum ólögráða einstaklingi undanskildum sem var látinn laus með skilyrðum.
Fullorðnu sakborningarnir sæta meðal annars ákærum fyrir að hafa hvatt til vændis, ráðið ólögráða einstaklinga til slíkrar starfsemi og hagnýtt sér kynferðislega misnotkun barna. Rannsókn málsins stendur enn yfir.