1
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

2
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

3
Innlent

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ

4
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

5
Innlent

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

6
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

7
Pólitík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“

8
Fólk

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons

9
Fólk

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík

10
Innlent

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani

Til baka

Eiginkona frá helvíti dæmd fyrir að brjóta gegn nálgunarbanni

Konan var upphaflega ákærð fyrir umsáturseinelti, stórfelldar ærumeiðingar og brot á nálgunarbanni

Héraðsdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjavíkur sá um málið
Mynd: Víkingur

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að brjóta gegn nálgunarbanni með því að senda fyrrverandi eiginmanni sínum sex tölvupósta sumarið 2023.

Konan var upphaflega ákærð fyrir umsáturseinelti, stórfelldar ærumeiðingar og brot á nálgunarbanni. Samkvæmt ákæru átti hún meðal annars að hafa sent manninum 222 óvelkomna tölvupósta á tæplega þriggja mánaða tímabili, tekið yfir Facebook-aðgang hans og birt þar fjölda meiðandi ummæla auk þess að senda skilaboð til vina hans og fjölskyldu í hans nafni.

Dómurinn taldi hins vegar að ákæran væri ekki nægilega skýr að því er varðaði meint umsáturseinelti og ærumeiðingar. Ekki hefði verið tilgreint nákvæmlega hvaða ummæli eða skilaboð hefðu átt að fela í sér stórfelldar ærumeiðingar eða hvernig þau hefðu verið til þess fallin að valda ótta eða kvíða. Af þeim sökum var þeim ákærum vísað frá.

Sannað þótti að konan hefði sent manninum sex tölvupósta á tímabilinu 22. til 27. júlí 2023 þrátt fyrir að lögreglustjóri hefði sett henni nálgunarbann mánuði áður. Með því hefði hún brotið gegn ákvörðun um bann við að hafa samband við manninn.

Við ákvörðun refsingar var litið til þess að konan hafði ekki áður hlotið dóm og að tafir hefðu orðið á rannsókn málsins. Refsingin var því ákveðin 30 daga fangelsi en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið til tveggja ára.

Jafnframt var konunni gert að greiða brotaþolanum 150 þúsund krónur í miskabætur og 883.500 krónur í málskostnað. Þá var henni gert að greiða hluta af verjendalaunum sínum en annar sakarkostnaður fellur á ríkissjóð.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hópur unglinga hafði í hótunum við félagsmiðstöð
Innlent

Hópur unglinga hafði í hótunum við félagsmiðstöð

Barry Keoghan fór í húðmeðferð eftir neikvæð ummæli um útlit sitt
Heimur

Barry Keoghan fór í húðmeðferð eftir neikvæð ummæli um útlit sitt

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns
Innlent

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns

Lakers-goðsögn mætir á OnlyFans
Sport

Lakers-goðsögn mætir á OnlyFans

Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi
Pólitík

Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi

Úlfar leita inn í finnsk þorp eftir að Google ruddi 526 hektara skóglendi fyrir gagnaver
Heimur

Úlfar leita inn í finnsk þorp eftir að Google ruddi 526 hektara skóglendi fyrir gagnaver

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani
Innlent

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani

Þrjár mögulegar sviðsmyndir eftir kosningarnar í Ísrael
Heimur

Þrjár mögulegar sviðsmyndir eftir kosningarnar í Ísrael

Stærsta bókaverslanakeðja Rússlands hefur eytt bókum fyrir 100 milljónir rúblna
Heimur

Stærsta bókaverslanakeðja Rússlands hefur eytt bókum fyrir 100 milljónir rúblna

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027
Innlent

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

William Shatner og George Takei minnast Walter Koenig
Heimur

William Shatner og George Takei minnast Walter Koenig

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur
Innlent

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur

Innlent

Hópur unglinga hafði í hótunum við félagsmiðstöð
Innlent

Hópur unglinga hafði í hótunum við félagsmiðstöð

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur
Innlent

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns
Innlent

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani
Innlent

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027
Innlent

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

Loka auglýsingu