1
Innlent

„Ég hef misst aflið á bak við röddina“

2
Innlent

Segir leik Snorra í High School Musical fyrirboða

3
Fólk

Dorrit þáði ráð frá frægum kynlífsráðgjafa

4
Pólitík

Þórður Snær tæklar Snorra

5
Heimur

Finnskur áhrifavaldur fannst látinn í óbyggðum

6
Landið

Salerniraðstöðu rústað á tjaldstæðinu í Hvammsvík

7
Fólk

Huggulegt híbýli handa höfðingjum

8
Innlent

„Þegar íslenskur aðili greiðir mútur þá er spillingin líka íslensk“

9
Pólitík

Feðgar í framboði vilja bylta borginni

10
Heimur

Benjamin Netanyahu greindist með krabbamein

Til baka

Uppljóstranir um fjöldi morða innan rússneska hersins

Yfirmenn eru sagðir taka undirmenn af lífi í tugatali

Rússneskir hermenn
Rússneskir hermennYfir hundrað hermenn eru grunaðir um morð á undirmönnum sínum
Mynd: Shutterstock

Rússneskir hermenn á víglínunni í Úkraínu deyja ekki aðeins í átökum við úkraínska hermenn, margir eru drepnir af eigin yfirmönnum.

Í nýrri rannsókn fjölmiðilsins Verstka voru greindir 101 hermenn sem grunaðir eru um að hafa tekið þátt í svokölluðum „núllstillingum”, vettvangsaftökum innan rússneska hersins.

Á þeim hvíla grunsemdir um að hafa pyntað menn til dauða, skotið þá eða sent í sjálfsmorðsárásir sem refsingu fyrir „óhlýðni” eða fyrir að neita að berjast. Fjölmiðillinn Meduza tók saman helstu niðurstöður Verstka og er þessi frétt byggð á þeirri umfjöllun.

Hvað eru „núllstillingar“?

Verstka hefur tekið saman gagnagrunn yfir rússneska hermenn sem sakaðir eru um að hafa myrt félaga sína í hernum. Þessar samanteknu aftökur eru í hernaðarorðræðu nefndar „núllstillingar“ (r. обнуление), og þeir sem framkvæma þær eru kallaðir „núllarar“.

Í gagnagrunninum eru nú 101 nöfn. Af þeim eru 79 staðfest með a.m.k. tveimur óháðum heimildum. Verstka segir að 22 nöfn séu enn óstaðfest, en gagnagrunnurinn verði stöðugt uppfærður eftir því sem ný gögn berast.

Nánast allir staðfestu einstaklingarnir eru yfirmenn af mismunandi stigum.

Í flestum tilvikum hefur Verstka aflað upplýsinga um nöfn, stöðu, einingar og ljósmyndir. Einungis örfáir hafa sætt refsimeðferð. Heimildarmaður innan aðalherlögreglustofu Rússlands sagði að óformlegt bann væri við því að rannsaka yfirmenn sem taka þátt í Úkraínustríðinu, slíkar rannsóknir gætu „haft neikvæð áhrif á hernaðaraðgerðir“.

Sami heimildarmaður sagði að á fyrstu sex mánuðum ársins 2025 hafi aðalherlögreglustofan fengið nær 29.000 kvartanir, þar af yfir 12.000 sem tengjast morðum innan hersins.

Þessar skrár, auk viðtala við hermenn, fjölskyldur þeirra og efni úr Telegram-rásum, mynduðu grunninn að rannsókn Verstka.

Hvernig aftökurnar fara fram

Innan rússneska hersins taka þessar aftökur á sig ýmsar myndir, allt frá pyntingum til dauða, beinum morðum eða því að menn séu sendir óvopnaðir í sjálfsmorðsárásir.

Pyntingar

Hermenn sem sakaðir eru um „brot“ eru oft látnir dúsa í kjöllurum eða gryfjum þar sem þeir fá hvorki vott né þurrt og eru barðir margoft á dag, segir hermaðurinn Júrí, sem þjónaði í 114. vélknúnu byssusveitinni.

Sumir deyja í gryfjunum, aðrir eru neyddir til að drepa félaga sína.

Í myndbandi sem birtist í maí 2025 sjást tveir hálfberir menn berjast á meðan rödd segir utan myndar:

„[Yfirmaðurinn] Kama sagði að sá sem ber hinn til dauða kemst út úr gryfjunni.“

„Kama“ er hernafnið á Aynur Sharifullin, yfirmanni í 114. sveitarinnar. Hann er þriggja barna faðir frá Tatarstan með langa herþjónustu að baki.

Auk pyntinga hefur hann verið sakaður um fjárkúgun á undirmönnum sínum og að hafa lifað í miklum lúxus á víglínunni.

Morð

Sumir yfirmenn myrða hermenn sína annaðhvort af grimmd eða til að sýna vald, en algengasta hvatningin er peningar.

Eitt dæmi er Andrej Bykov, hermaður í 80. tanka­deildinni.

Móðir hans sagði Verstka að yfirmenn hans, sem gengu undir nöfnunum „Dudka“ og „Kemer“, kröfðust helmings af bótum sem hann fékk vegna áverka. Þegar hann neitaði og keypti sér bíl í staðinn, var hann barinn til dauða.

„Þeir sögðu að enginn blettur væri óbarinn á líkamanum hans,“ sagði móðir hans, Tatjana Bykova.

„Hann liggur enn úti í skógi í Donetsk. Enginn rannsakar neitt. Ég get ekki einu sinni grafið hann.“

Kemer (Dmitrí Kemerov) og Dudka (Mikhail Dudukov) eru báðir fyrrverandi fangar. Verstka fann út að Kemerov fór beint á vígvöllinn úr fangelsi þar sem hann afplánaði dóma fyrir svik.

Annar yfirmaður, Vjatseslav Kiselev, kallaður „Lis“, er sagður hafa barið leyniskyttu til dauða fyrir að neita að fara í árás og borga mútur.

Aftökur

Þeir sem neita að taka þátt í svokölluðum kjötárásum eða öðrum sjálfsmorðsárásum eru oft einfaldlega skotnir.

Hermenn lýstu því hvernig undirmenn væru teknir af lífi með skotum, drónum eða jafnvel handsprengjum földum í vesti þeirra.

Í sumum tilvikum eru drónar notaðir til að „klára þá sem snúa við“, annað hvort með sprengjum eða skotum úr lofti.

Hvernig morðin eru falin

Lík hinna „núllstilltu“ hermanna eru oft grafin í skóginum eða skilin eftir á vígvellinum.

Skotið er úr riflum yfir þá til að láta líta út eins og þeir hafi fallið í bardaga.

Í skjölum eru þeir skráðir sem horfnir eða liðhlaupar, og fjölskyldur þeirra fá þá engar bætur.

Í sumum tilvikum eru hins vegar sviðsetningar ítarlegri.

Hermaðurinn Vladislav Berljakov lýsti því að félagi hans, Alexander Jurkov („Odessa“), hafi verið barinn til dauða eftir að hafa neitað að afhenda yfirmönnum sínum peninga.

„Þeir settu gamalt vesti og hjálm á hann, lögðu tvær handsprengjur undir líkið og sprengdu,“ sagði Berljakov.

„Svo skildu þeir hann eftir í hita í nokkra daga til að líkið rotnaði og merki um barsmíðar hyrfu. Síðan var hann sendur heim sem „fallinn í bardaga“.“

Rannsóknir og gagnagrunnar fjölmiðla

Um viku áður en Verstka birti rannsóknina sína birti miðillinn Vot Tak einnig gagnagrunn yfir rússneska yfirmenn sem sakaðir eru um glæpi gegn eigin hermönnum, alls 50 manns, margir þeirra eru einnig á listanum hjá Verstka.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

„Lífið varð erfitt í kjölfar ásakananna“
Viðtal
Fólk

„Lífið varð erfitt í kjölfar ásakananna“

Ari Edwald opnar sig um Pottamálið
Eigandi Home Alone-hússins fannst látin á náttúruverndarsvæði
Heimur

Eigandi Home Alone-hússins fannst látin á náttúruverndarsvæði

Russel Brand í vandræðum í viðtali við Piers Morgan
Myndband
Heimur

Russel Brand í vandræðum í viðtali við Piers Morgan

Svona myrtu Ísraelar blaðakonuna Amal Khalil
Heimur

Svona myrtu Ísraelar blaðakonuna Amal Khalil

Tveir ökumenn, grunaðir um ölvunarakstur, ollu umferðaslysi
Innlent

Tveir ökumenn, grunaðir um ölvunarakstur, ollu umferðaslysi

Feðgar í framboði vilja bylta borginni
Viðtal
Pólitík

Feðgar í framboði vilja bylta borginni

Michael Stipe klárar sína fyrstu sólóplötu
Myndband
Heimur

Michael Stipe klárar sína fyrstu sólóplötu

Segir leik Snorra í High School Musical fyrirboða
Myndband
Innlent

Segir leik Snorra í High School Musical fyrirboða

„Þegar íslenskur aðili greiðir mútur þá er spillingin líka íslensk“
Innlent

„Þegar íslenskur aðili greiðir mútur þá er spillingin líka íslensk“

Slóvenar ætla að sýna palestínskar kvikmyndir í stað Eurovision
Heimur

Slóvenar ætla að sýna palestínskar kvikmyndir í stað Eurovision

Benjamin Netanyahu greindist með krabbamein
Heimur

Benjamin Netanyahu greindist með krabbamein

Þórður Snær tæklar Snorra
Pólitík

Þórður Snær tæklar Snorra

Salerniraðstöðu rústað á tjaldstæðinu í Hvammsvík
Landið

Salerniraðstöðu rústað á tjaldstæðinu í Hvammsvík

Heimur

Eigandi Home Alone-hússins fannst látin á náttúruverndarsvæði
Heimur

Eigandi Home Alone-hússins fannst látin á náttúruverndarsvæði

Hafði nýlega verið handtekinn vegna vörslu barnaníðsefnis
Benjamin Netanyahu greindist með krabbamein
Heimur

Benjamin Netanyahu greindist með krabbamein

Russel Brand í vandræðum í viðtali við Piers Morgan
Myndband
Heimur

Russel Brand í vandræðum í viðtali við Piers Morgan

Svona myrtu Ísraelar blaðakonuna Amal Khalil
Heimur

Svona myrtu Ísraelar blaðakonuna Amal Khalil

Michael Stipe klárar sína fyrstu sólóplötu
Myndband
Heimur

Michael Stipe klárar sína fyrstu sólóplötu

Slóvenar ætla að sýna palestínskar kvikmyndir í stað Eurovision
Heimur

Slóvenar ætla að sýna palestínskar kvikmyndir í stað Eurovision

Loka auglýsingu