1
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

2
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir Reykholtsmálið

3
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

4
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

5
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

6
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

7
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

8
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri

9
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

10
Pólitík

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“

Til baka

Vill ekki fagna opnun gyðingamiðstöðvar fyrr en rabbíninn svarar um Gaza

Kristinn Hrafnsson vill vita hvort Avi Feldman fordæmi þjóðarmorðið á Gaza.

Kristinn Hrafnsson
Kristinn HrafnssonRitstjórinn ætlar að spara fagnaðarlætin þar til rabbíninn hefur svarað
Mynd: HENRY NICHOLLS / AFP

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, segir að varhugavert sé að líta á nýopnaða gyðingamenningarmiðstöð við Hverfisgötu sem fulltrúa allra gyðinga á Íslandi. Þetta kemur fram í ítarlegri Facebook-færslu þar sem hann fjallar um starfsemi samtakanna Chabad-Lubavitch, sem standa að miðstöðinni, og tengsl þeirra við Ísrael.

Kristinn leggur áherslu á að gyðingar séu ekki einsleitur hópur og að ekki sé rétt að segja alla gyðinga bera ábyrgð á aðgerðum ísraelskra stjórnvalda.

„Gyðingar eru langt í frá einsleitur hópur og fráleitt og rangt að setja alla gyðinga undir sama hatt. Það er einnig ótækt að gera alla gyðinga ábyrga fyrir hroðalegum óhæfuverkum ísraelskra stjórnvalda, þjóðarmorði, skipulögðum barnamorðum, landráni, aðskilnaðarstefnu, pyntingum og fangelsunum án dóms og laga.“

Hann segir jafnframt að það gefi ranga mynd að kalla nýju miðstöðina einfaldlega „menningarmiðstöð gyðinga“.

„Það er að sama skapi einkennilegt að skilgreina nýopnaða miðstöð í gamla Framsóknarhúsinu við Hverfisgötu sem „menningarmiðstöð gyðinga“ og gefa þannig í skyn að hún hýsi „menningu“ allra gyðinga og sé um leið eins konar rödd þeirra allra.“

Í færslunni rekur Kristinn sögu og starfsemi Chabad-Lubavitch og segir hreyfinguna tilheyra íhaldssömum, hreintrúararmi gyðingdóms. Hann segir að þrátt fyrir að samtökin lýsi sér sem ópólitískum sé ljóst að þau halli sér til hægri í ísraelskum stjórnmálum og hafi sýnt ísraelska hernum stuðning.

Kristinn segir mikilvægt að gera greinarmun á ólíkum straumum innan gyðingdóms, líkt og innan annarra trúarbragða.

„Þetta þarf að hafa hugfast þegar kemur að því að gera Chabad-Lubavitch að eins konar einni rödd gyðinga á Íslandi. Það yrði óleikur gagnvart þeim gyðingum sem eru ekki hallir undir þessa túlkun gyðingdómsins og eru jafnvel svarnir andstæðingar núverandi stefnu stjórnvalda í Ísrael.“

Hann segir jafnframt að réttmæt gagnrýni á stjórnvöld í Ísrael sé of oft sögð jafngilda gyðingahatri og telur það geta haft öfug áhrif.

„Um leið og hamrað er á því að öll réttmæt gagnrýni á óhæfuverk hryðjuverkaríkisins Ísraels sé gyðingahatur og þar með árás á alla gyðinga er ekki undarlegt að í sumum kreðsum teljist boðlegt að gera alla gyðinga ábyrga fyrir óhæfuverkum Ísraelsríkis. Hvort tveggja er ótækt en því miður samhangandi.“

Í lok færslunnar skorar Kristinn á íslenska fjölmiðla að spyrja Avi Feldman, rabbína við nýju miðstöðina, hvort hann fordæmi aðgerðir ísraelska hersins á Gaza.

„Getur einhver starfandi blaðamaður á íslenskum miðli spurt Avi Feldman, rabbína í miðstöðinni, hvort hann fordæmi skipulögð barnamorð IDF, þjóðamorðið á Gaza, pyntingar og dráp á palestínskum föngum, landrán og aðskilnaðarstefnu? Svörin við þeim spurningum munu marka þá „menningu gyðinga“ sem miðstöðin stendur fyrir og um leið afstöðu mína gagnvart henni.“

Kristinn segist þar til slíkt liggi fyrir ætla að „spara sér fögnuðinn“ yfir opnun miðstöðvarinnar og hvetur jafnframt íslenska stjórnmálamenn til að gera hið sama og skýtur þannig á Jón Gnarr, þingmann Viðreisnar, sem var viðstaddur opnun miðstöðvarinnar á dögunum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt
Innlent

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

Kærir Netanyahu og segir hann reyna að hylma yfir eigin ábyrgð
Heimur

Kærir Netanyahu og segir hann reyna að hylma yfir eigin ábyrgð

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“
Pólitík

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum
Innlent

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla
Heimur

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks
Heimur

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum
Innlent

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum

Innlent

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt
Innlent

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum
Innlent

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

Loka auglýsingu