InnlentPróflaus á rúntinum með vopn – Átakanlegt rán í miðbænum Jólasnjórinn alræmdi féll í gær og var því töluvert um útköll vegna ölvunar og óláta hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkveldi og nótt. Um klukkan tíu barst lögreglu tilkynning vegna slagsmála í miðbæ Reykjavíkur en er hún mætti á svæðið reyndist um rán að ræða. Þá voru nokkrir á móti einum. Tveir voru handteknir vegna málsins. Laust fyrir klukkan tvö...
InnlentTíu ára fangelsi fyrir manndráp Ungur karlmaður var í dag dæmdur fyrir manndráp í Héraðsdómi Reykjaness og var hann dæmdur í tíu ára fangelsi en manndrápið átti sér stað á bílastæði Fjarðarkaupa í apríl. Tveir karlmenn fengu tveggja ára dóm og 17 ára stúlka fékk 12 mánaða skilorðsbundin dóm. Samkvæmt heimildum Vísis kom upp ósætti milli manns og hópsins, sem hlaut dómana, vegna fíkniefnaneyslu á...
InnlentAndlát Guðbjargar til rannsóknar hjá lögreglu Andlát Guðbjargar Svövu Guðmundsdóttur er til rannsóknar hjá lögreglu en Mannlíf fékk það staðfest hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Heimildir Mannlífs herma að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti en lögreglan vildi ekki staðfesta það. Guðbjörg lést í október síðastliðnum en hún var aðeins 37 ára gömul og hafði glímt við ýmsa erfiðleika í lífinu. Eiginmaður hennar, Tómas Waagfjörð,...
InnlentBláa Lónið ósátt með eldgosaspá Þorvaldar: „Engar vísbendingar um gosóróa“ Stjórnendur Bláa Lónsins segja gos ekki væntanlegt á næstunni Eins og Mannlíf fjallaði um fyrr í dag hefur Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjalla- og bergfræði, spáð því að eldgos muni hefjast innan skamms á Reykjanesinu, nálægt Grindavíkursvæðinu. Þorvaldur sagði að mögulegt væri að gos myndi hefjast í dag. Sumir hafa kallað eftir því að Bláa Lóninu verði lokað meðan óvissuástandið...
InnlentHætta á eldgosi í dag: „Ansi hræddur um að við séum komin nálægt því“ Þorvaldur eldfjallafræðingur segir að gjósa muni fljótlega. „Ég er ansi hræddur um að við séum komin nálægt því að fara í gos,“ sagði Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjalla- og bergfræði, í samtali við mbl.is. Reykjanes hefur nötrað í nokkrar vikur en tveir jarðskjálftar yfir 4 hafa mælst í dag og hafa margir haft áhyggjur af eldgosi. Þorvaldur segir að eldgos...
InnlentSjömenningarnir yfirheyrðir í dag Allir verða yfirheyrðir í dag. Í gær voru sjö einstaklingar handteknir í tengslum við skotárás sem átti sér stað í Úlfarsárdal í gær en þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmdar voru húsleitir í framhaldinu af handtökunum en ekki liggur fyrir hvort að vopn hafi fundist í þeim húsleitum. Grímur segir að almenningur hafi veitt lögreglunni talsvert...
InnlentAlbert í ofurformi þrátt fyrir álag vegna kæru – Orðaður við stórlið Albert Guðmundsson hefur skorað í þremur leikjum í röð. Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson er í miklu stuði þessar mundir með félagsliði sínu Genoa en Albert hefur skorað mark í þremur leikjum í röð fyrir félagið. Albert hefur fengið mikið lof gagnrýnenda fyrir frammistöðu sína og telja margir að hann verði keyptur til stórliðs þegar félagsskiptaglugginn opnar í janúar. Hafa stórliðin Napoli...
InnlentÓsammála bæjarstjóra um jarðskjálftaótta: „Menn bara slakir“ Formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar er ósammála bæjarstjóra. Boga Adolfsson er ekki alveg á sama máli og Fannar Jónsson, bæjarstjóri Grindavíkur, um líðan bæjarbúa í samhengi við jarðskjálfta. Fannar vildi meina að fólk væri nokkuð óttaslegið. Sjálfur Bogi segist ekki finna mikinn mun á skjálftum sem mælast 3 eða þeim sem mælast 4. „Þetta er náttúrulega bara svo nálægt að það víbrar...
InnlentTómas er fótboltaverkfræðingur sem vill gott úrval: „Löngun samhliða þörf“ Tómas Joð Þorsteinsson er 34 ára gamall byggingarverkfræðingur. Hann starfar hjá Eykt ehf við uppbyggingu Nýja Landsspítalans og spilaði 141 leiki með Fylki í efstu deild í knattspyrnu. Tómas býr ásamt kærustu og tveimur börnum þeirra í Garðabæ. Hann er neytandi vikunnar. Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu? Já ég geri oft verðsamanburð, sérstaklega við matarinnkaup heimilisins og ýmsa...
InnlentÓrólegir íbúar í Grindavík – Þessa skjálfta vaknaðir þú við í nótt Skjálfti að stærðinni 4,2 varð rétt vestur af Bláa lóninu á Reykjanesskaga klukkan 3:51 í nótt. Skjálftinn fannst vel á höfuðborgarsvæðinu en sjö skjálftar, stærri en 3 að stærð, hafa mælst frá því á miðnætti. Undir morgun eða klukkan 4:25 mældis skjálfti að stærðinni 3,7 við Lágafell og annar rétt rúmum fimm mínútum síðar að stærðinni 3,5. Ríkislögreglustjóri hefur lýst...
InnlentMaður féll af klettum í Reynisfjöru Þyrla landhelgisgæslunar var kölluð út vegna manns sem féll af klettum í Reynisfjörðu en ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan mannsins. Vísir greinir frá því að hann hafi verið á gangi í Reynisfjalli þegar hann datt í klettinum. Metið var nauðsynlegt að senda þyrlu vegna staðsetningar mannsins.
InnlentSérsveitin elti grímuklædda menn niður Laugarveg Lögreglan reyndi að elta uppi tvo menn. Sérsveitin elti tvo menn sem keyrðu niður Laugarveginn fyrr í dag en þurftu mennirnir að stoppa bílinn vegna körfubíls sem var fyrir. Tóku þá mennirnir, sem voru grímuklæddir, til fótanna og eltu sérsveitarmenn mennina. Heimildir Mannlífs herma að mennirnir hafi komist undan en Vísir greinir frá því að einn hafi verið handtekinn í...