Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Albert í ofurformi þrátt fyrir álag vegna kæru – Orðaður við stórlið

Albert Guðmundsson
Albert Guð­munds­son Mynd: Instagram

Albert Guð­munds­son hefur skorað í þremur leikjum í röð.

Knatt­spyrnu­mað­ur­inn Albert Guð­munds­son er í miklu stuði þessar mundir með félags­liði sínu Genoa en Albert hefur skorað mark í þremur leikjum í röð fyrir félagið. Albert hefur fengið mikið lof gagn­rýnenda fyrir frammi­stöðu sína og telja margir að hann verði keyptur til stór­liðs þegar félags­skipta­glugg­inn opnar í jan­úar. Hafa stór­liðin Napoli og AC Milan verið nefnd til sög­unnar.

Albert væri kærður í sumar fyrir kyn­ferð­is­brot en kæran virð­ist ekki hafa haft nein áhrif á frammi­stöðu hans á vell­inum. Ekki liggur fyrir hvort Albert verður ákærður eða ekki en meðan nið­ur­stöðu í mál­inu er beðið má hann ekki spila með íslenska lands­lið­inu. Albert hefur lýst yfir sak­leysi sínu í mál­inu.

Snemma í yngri flokkum var ljóst að Albert væri hæfi­leik­a­ríkur knatt­spyrnu­maður en hann spil­aði með KR þar til hann gekk til liðs við hol­lenska liðið Heerenveen aðeins 16 ára gam­all. Árið 2015 gekk hann svo til liðs við hol­lenska stór­liðið PSV. Albert varð fljótt einn af mik­il­væg­ustu leik­mönnum vara­liðs PSV en náði aldrei að festa sig í sessi í aðal­liði PSV. Það var þá á þeim tíma sem Albert spil­aði sinn fyrsta A-lands­leik en hann hafði spilað tæp­lega 40 lands­leiki með yngri lands­liðum Íslands. Árið 2018 skipti Albert svo í hol­lenska liðið AZ Alkmaar þar sem hann blómstr­aði og var snöggur að kom­ast í byrj­un­ar­liðið.

En þó að Alberti hafi gengið vel með félags­liði sínu þá átti hann sína gagn­rýnendur. Ronald de Boer, fyrr­ver­andi lands­liðs­maður Hollands, gagn­rýndi hann harð­lega eftir að Albert mætti í við­tal eftir leik með dem­ants eyrna­lokka. „Ég veit ekki hvort þið tókuð eftir því en hann var búinn að setja á sig tvo dem­ants eyrna­lokka. Hann fór inn í bún­ings­klefa til að setja á sig eyrna­lokka án þess að fara í sturtu,“ sagði De Boer sem var einnig ósáttur að Albert, sem hann hafði þá búið í Hollandi i tæpan ára­tug, hafi talað ensku í við­tal­inu. „Hann talar ekki hol­lensku eftir sjö ár. Það segir sitt um hug­ar­farið í þessum strák. Ég hef það á til­finn­ing­unni að hann sé upp­tek­inn af öðrum hlutum. Ég fór sjálfur í við­tal á spænsku eftir fjóra mán­uði hjá Barcelona.“

Góður árangur Alberts með AZ og sýni­legir hæfi­leikar hans hafa þó ekki náð að skila sér í íslenska lands­liðið en flestir eru á því að Albert hafi aldrei náð að skína með því á sama hátt og hann hefur gert með félags­liðum. Albert komst svo heldur betur í frétt­irnar í fyrra þegar hann var ekki val­inn í lands­liðið af Arnari Þór Við­ars­syni, þáver­andi lands­liðs­þjálf­ara, og sagði þjálf­ar­inn á blaða­manna­fundi í sept­em­ber „Ég var mjög óánægður og svekktur með hug­ar­far Alberts.” Albert var aldrei val­inn aftur í lands­liðið meðan Arnar var lands­liðs­þjálf­ari en Albert hefur spilað 35 lands­leiki fyrir Ísland.

Albert var svo keyptur til Genoa og hefur blómstrað þar síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða