InnlentHarður árekstur á Suðurlandsvegi er bíll ók aftan á snjóruðningstæki – Ekki vitað um líðan ökumanns Afar harður árekstur varð í dag á Suðurlandsvegi til móts við Skíðaskálann í Hveradölum, en þá hafnaði lítil jeppabifreið aftan á snjóruðningstæki. Slökkviliðsmenn urðu að beita klippum til að ná manninum er ók jeppabifreiðinni út úr henni; en honum var sinnt á vettvangi til um klukkan tvö. Maðurinn var svo fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar, en ekki er vitað nánar...
InnlentKarlmaður lést nokkrum klukkutímum eftir útskrift af bráðamóttöku Tæplega sextugur maður lést eftir útskrift af bráðamóttöku Landspítala milli jóla og nýárs, en þetta kemur fram á RÚV. Kemur einnig fram að málið er rannsakað sem afar alvarlegt atvik; hefur verið tilkynnt til Landlæknis sem og lögreglu. Maðurinn var hraustur, en hafði kennt sér meins; leitaði því á bráðamóttöku. Samkvæmt heimildum fréttastofu RÚV gekkst hann undir skoðun og rannsóknir;...
InnlentFlótti af bráðamóttöku: „Engum hollt að starfa í því umhverfi, því síður að sækja þjónustu þangað“ Nokkuð mörg dæmi eru þess að sérfræðimenntað starfsfólk hafi hætt störfum á bráðamóttöku Landspítalans, en svo segir formaður Félags sjúkrahúslækna. Þrátt fyrir að fjárveitingar til spítalans hafi aukist mun það taka marga mánuði að ráða sem og þjálfa upp starfsfólk. Læknirinn Eggert Eyjólfsson birti í gær færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann segir frá uppsögn sinni á bráðamóttöku, og...
InnlentÝsuverð í hæstu hæðum á nýju ári: Soðningin kostar sama og lambasteikin Verð á ýsu hefur farið í hæstu hæðir eftir áramótin. Dæmi eru um að kílóverð hafi farið í rétt tæpar 4000 krónur eða sama verð og gott lambakjöt. Skýringin liggur í skorti á mörkuðum. Ekki hafa þó allar fiskbúðir hækkað í samræmi við það. Umræða hefur skapast um þetta á samfélagsmiðlum. „Nú er ég hneyksluð fór í Fiskbúð Hólmgeirs áðan...
InnlentTranskona myrti fyrrum kærustu með köldu blóði: „Fósturforeldri nuddaði saur í andlitið á henni“ Yfirvöld í Bandríkjunum tóku af lífi transkonu sem dæmd var til dauða árið 2003, fyrir hrottalegt morð á fyrrum sambýliskonu sinni. Mun þetta vera fyrsta dæmið um konu, utan tvíhyggju kynjakerfisins, sem tekin er af lífi. Amber McLaughlin stakk fyrrum kærustu sína ítrekað, eftir að hafa setið um hana í marga mánuði. Amber var dæmd til dauða. Fyrir dómi sögðu...
InnlentKuldinn í Reykjavík í desember svipaður og árið 1916 Nýliðinn desember var sá kaldasti desembermánuður hér á landi síðan árið 1973, eða í næstum hálfa öld; var meðalhiti í byggðum landsins -4,0 stig. Í Reykjavík hefur desembermánuður ekki verið eins kaldur í rúma 100 öld, en desembermánuður árið 1916, var svipað kaldur og nú, að sögn Veðurstofu Íslands. Mánuðurinn var áttundi kaldasti desembermánuður á landsvísu frá byrjun mælinga; þurrt...
InnlentSólveig Anna segir Gabríel Benjamín líta stórt á sig: „Við finnum ekkert skjól í sölum valdsins“ Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar var til viðtals í morgun á Rás 2. Var þar farið yfir yfirstandandi samningsviðræður Eflingar við Samtök atvinnulífsins og nýfallinn dóm félagsdóms. Sólveig Anna var spurð út í nýfallinn dóm félagsdóms þar sem uppsögn Efnlingar á trúnaðarmanni félagsins, Gabríel Benjamin, var dæmd ólögmæt. Gabríel sagði í fréttum Rúv í gær að dómurinn væri sigur verkalýðsins...
InnlentDólgur hótaði starfsfólki öllu illu – Farsímaþjófur náðist á mynd Lögregla handtók í gærkvöldi karlmann sem hafði bæði hótað starfsfólki fyrirtækis og óhlýðnast fyrirmælum lögreglu. Samkvæmt dagbók lögreglu hefur dólgurinn ítrekað komið við sögu lögreglu vegna alls kyns brota. Fyrr um kvöldið barst lögreglu tilkynning um þjófnað á farsíma en nú er beðið eftir gögnum úr myndavélakerfi vegna þessa. Starfsfólk veitingastaðar óskaði eftir aðstoð lögreglu vegna manns sem var ofurölvi....
InnlentBannað að tala um „sjómann“ og „fiskari“ komið í staðinn – Ólína getur ekki orða bundist Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, segist ekki geta orða bundist yfir því að orðið „sjómaður“ hafi verið tekið út úr íslenskri löggjöf. Í stað þess orðs er orðskrípið „fiskari“ komið í staðinn. Hún segir þetta dæmi um dauðhreinsunarstefnu í pistli sem hún birtir á Facebook. Pistill Ólínu í heild sinni: Sjómaður eða fiskari? Orðið „sjómaður“ hefur verið...
InnlentSævar Daníel: „Ég skil eftir upptökur og fleira sem ég vona að kasti ljósi á hvernig ég var myrtur“ „Kæru Vinir. Þetta er komið á lokaspölinn hjá mér. Mér langar að þakka öllum sem lögðu hönd á plóg í því að reyna fá íslenskt heilbrigðiskerfi til að sinna hlutverki sínu og hafa reynt að vera til staðar. Ég skil eftir upptökur og fleira sem ég vona að kasti ljósi á hvernig ég var myrtur úr hvað sem maður á...
Innlent„Þessi stjórnlausi ferðaiðnaður er orðin alger plága fyrir alla landsmenn“ Þór Saari, fyrrverandi þingmaður, virðist hafa fengið sig fullsaddan af því hvernig Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, ræðst gegn Agli Helgasyni. Egill sagði að honum hrjósi hugur við kröfu um að túristar komist þangað sem þeir vilja í öllu veðri. Jóhannes kallaði þetta væl hjá Agli. Þór segir ferðaþjónustuna einfaldlega ótrúlega freka. „Frekja, yfirgangur og það sem virðist hrein...
InnlentVill lest á milli Keflavíkurvallar og Reykjavíkur: „Getum ekki lengur stungið höfðinu í sandinn“ „Við getum ekki lengur stungið höfðinu í sandinn. Það er tilvalið verkefni að úthýsa uppbyggingu lestar til Keflavíkur ef verkefnið reynist hagkvæmt en ákvörðun um þetta er vitaskuld á ábyrgð ríkisins,“ sagði Þórdís Lóa Þórhallsdóttir forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, í samtali við Fréttablaðið Tilefnið er lokun Reykjanesbrautar vegna ófærðar eins og raunin hefur verið undanfarið; þá hafi engin varaáætlun verið til;...