Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

„Þessi stjórnlausi ferðaiðnaður er orðin alger plága fyrir alla landsmenn“

Þór Saari, fyrr­verandi þingmaður, virðist hafa fengið sig full­saddan af því hvernig Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjónustunnar, ræðst gegn Agli Helgasyni. Egill sagði að honum hrjósi hugur við kröfu um að túristar komist þangað sem þeir vilja í öllu veðri. Jóhannes kallaði þetta væl hjá Agli.

Þór segir ferða­þjónustuna einfald­lega ótrúlega freka. „Frekja, yfir­gangur og það sem virðist hrein heimska, er það sem einkennir ferða­iðnaðinn hér á landi og Samtök ferða­iðnaðarins, með Jóhannes Þór og Bjarnheiði í broddi fylkingar, koma orðið fram af hreinni fyrirlitningu við sjálfboða­liða björnunarsveita, starfs­menn Vega­gerðarinnar og allan íslenskan almenning,“ skrifar Þór á Facebook.

Hann heldur áfram: „Það er í raun alveg með ólíkindum að þessu fólki hafi dottið það í hug að stjórn­laus vetrar­ferða­mennska á Íslandi væri góð hugmynd, en sú fráleita niður­staða var keyrð áfram af hreinum draumórum, græðgi, og af Íslands­stofu, sem er fjár­mögnuð af ríkis­sjóði en hverra ársreikningar eru samt ekki opinberir.“

Þór segir gengdar­lausa græðgi ráða för. „Vitaskuld á að loka vegum miklu meira og oftar en gert er, einmitt vegna þessarar gengdar­lausu græðgi sem drífur ferða­iðnaðinn áfram og gerir það að verkum að legíó af erlendum ferða­mönnum sem kunna ekki að keyra, teppa vegina og gera það að verkum að sjálfboða­liðar björgunar­sveitanna fá ekki að halda jól með fjöl­skyldum sínum,“ segir Þór.

„Þessi stjórn­lausi ferða­iðnaður er orðin alger plága fyrir alla landsmenn, þó örfáir græði kannski drjúgt á fyrirbærinu. Mest allur hagnaðurinn fer að sjálfsögðu úr landi og inn á leyni­reikninga í skatta­skjólum, líka endur­greiddur virðis­aukaskattur, en sem kunnugt er, þá er ferða­iðnaðurinn á sérstöku VSK þrepi og mismunurinn á inn- og útskatti  er hvorki meira né minna en þrettán prósentu­stig, sem eru umtals­verðar upphæðir og gefur ágætis tekjur meðan verið er að greiða upp kostnað við uppbyggingu og hluta rekstrar.“

Þór segir margt þurfa að gera til að koma ferða­þjónustunni í lag. „Það er margt sem þarf að gera til að koma ferða­iðnaðinum í viðskipta­umhverfi sem er í góðu samkomu­lagi við almenning í landinu. Þar er mikil­vægast að fækka ferða­mönnum umtals­vert svo okkar viðkvæma náttúra og umhverfi verði ekki fyrir meira tjóni. Fjölda­takmarkanir á helstu ferðamanna­stöðum eru líka mikil­vægar og greiðsla umhverfis- og náttúru­verndar­gjalds fyrir hverja gistinótt per mann, og hvern land­göngudag fyrir skemmtiferða­skipin, þarf einnig að verða að raun­veruleika. Auk þess þarf að taka á gríðarlegri CO2 losun ferða­iðnaðarins með kvöðum um rafmagns­bíla eingöngu á bíla­leigum (auk bílprófs ökumanna að sjálfsögðu), kvöðum um lengri dvöl á áfanga­stað, hérlendis sem erlendis, til að fækka flug­ferðum og stöðva þessar „Bröns-til-Berlínar-“ og fótbolta­leikja­ferðir, sem og skammtíma þriggja daga hringaksturs­ferðir erlendra ferða­manna sem kom alla leið frá Kína til að keyra hringinn, en kunna fæstir að keyra,“ segir Þór.

Hann segir ferða­iðnaðinn nú þegar hafa eyðilagt Miðborgina. „Þessi iðnaðar­ferða­mennska hefur gert miðborg Reykja­víkur að menningarlegri eyðimörk fyrir Íslendinga, hvort sem um er að ræða góðviðris­daga á sumrin eða jóla- og áramóta­stemningu. Miðborg Reykja­víkur er ekki lengur sá menningar­legi og félags­legi samkomu­staður sem miðborg höfuð­borgar ríkis á að vera, heldur risatór sjoppu­höll með enda­lausum röðum af lunda­búðum, gistihúsum og skyndibita­stöðum, mönnuðum með erlendu starfs­fólki sem fær lúsarlaun. Að heyra íslensku er undan­tekning. Íbúar þéttbýli­staða lands­byggðarinnar hafa heldur ekki farið varhluta af og eru líka orðnir aukatriði í sínu samfélagi og eru beðnir um að halda sig fjarri miðbæjum staðanna þegar skemmtiferða­skip eru í höfn,“ segir Þór og bætir við að lokum:

„Það er fyrir löngu orðið tímabært að stjórn­völd landsins taki á þessari óværu sem ferða­iðnaðurinn er og komi þessum geira atvinnu­lífsins í fastmótað og skilvirkt horf, horf sem er í sátt við landsmenn og sem gerir það að verkum að við sem búum hér séum ekki auka­atriði í eigin landi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi