Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sævar Daníel: „Ég skil eftir upptökur og fleira sem ég vona að kasti ljósi á hvernig ég var myrtur“

„Kæru Vinir. Þetta er komið á loka­spölinn hjá mér. Mér langar að þakka öllum sem lögðu hönd á plóg í því að reyna fá íslenskt heilbrigðis­kerfi til að sinna hlutverki sínu og hafa reynt að vera til staðar. Ég skil eftir upptökur og fleira sem ég vona að kasti ljósi á hvernig ég var myrtur úr hvað sem maður á eiginlega að kalla svona gjarðir, og verði til breytinga fyrir aðra. Takk fyrir samfylgdina og gangi ykkur vel.“

Svo hljóðar færsla sem Sævar Daníel Kolandavelu, sem einnig er þekktur undir lista­manns­nafninu Poetrix, birti fyrr í dag á Facebook. Í samtali við Mannlíf segist Sævar, því miður, ekki sjá fram á að heilbrigðis­kerfið muni gera nokkuð til að bæta heilsu hans. Hann segir að upptökur séu  til af því þegar heilbrigðis­menn hóta honum útskrift með lögreglu­valdi innan hálftíma, þegar hann segist ósjálfbjarga.

Sævar segist þegar hafa sett á stað umsóknar­ferli til Dignitas, samtaka sem veita dánar­aðstoð í Sviss. Heilsu hans hefur hrakað gífurlega undan­farið og hefur hann verið ósjálfbjarga um nokkurt skeið. Sjálfur lýsir hann þessu svo:

„Þetta er tilkomið vegna þess að hryggurinn á mér er svo illa slitin að hann togast of langt í sundur, og ég þarf manually að halda honum í stað, ekki ósvipað ef og tjald myndi missa eina festinguna við jörðina, og byrja fjúka til himins. Ég þarf bókstaf­lega að liggja og halda mér föstum í ákveðnum stellingum svo hryggurinn á mér liggi ekki undir frekari skemmdum, en honum hefur hrakað gífurlega og eru nú mestmegnis liðbanda í hálsi og baki að slitna vegna ofhreyfingarinnar og ég er bersýni­lega afmyndaður.“

Hann segir að að öll venjuleg hreyfing togi sig í sundur og meiði óstjórn­lega, að hann sé að örkumlast fyrir allra augum. „Ég get til dæmis ekki farið í sturtu né rakað mig eða staðið í störfum daglegs lífs. Ég get ekki setið uppréttur með neinu góðu móti,“ segir Sævar.

Hann segir að Land­spítalinn hafi aldrei tekið rétt á hans máli. „Land­spítalinn hefur aldrei unnið málið mitt skilmerki­lega. Sem dæmi þá hafa einkenni mín hvergi verið skráð rétt í sjúkra­skrár. Sjaldnast hefur verið tekið alvarlega það sem ég hef sagt. Það er nánast eins og maður hefði aldrei sagt það. Eftir að hafa dvalið erlendis við illan leik og fengið aðstoð mýmargra sérfræðinga, vinna sem hefur núna tekið 3 ár, þá liggur málið nokkuð ljóst fyrir. Eftir að þekkingarinnar hefur verið aflað þá t.d. vitum við í dag, nákvæmlega hvaða hlutir hafa verið gerðir og hverjir ekki, hér á Íslandi,“ segir Sævar.

Sævar er nú á Land­spítalanum. „Eftir aðgerð á fæti, sem var framkvæmd um daginn, hafði ég dvalið á sjúkra­hóteli Land­spítalans þar sem ég uppfyllti ekki kröfur þeirra um að vera sjálf­bjarga, en maður þarf að vera fær um að bjarga sér sjálfur niður í matsal og slíkt til að geta verið þar. Ég hafði ekki getað komist í matsal í tíu daga og þær sendu mig á bráða­móttöku með þeirri umsögn að þessi maður væri hreinlega ósjálfbjarga, og þyrfti læknis­aðstoð. Ég hef verið hérna síðan, á bráða­móttöku, og svo lagður inn á almenna deild,“ segir Sævar.

Hann segir að síðan hann kom aftur á Land­spítalann nú þá hafi hann farið fram á að tekið væri fast á máli hans. „Síðan ég kom hefur verið gerð skýr ósk um að farið sé yfir þau gögn sem til eru í málinu, og það læknis­fræðilega unnið vel, það er að segja að einkennum sé haldið til haga, farið sé yfir sögu málsins, klínískar athuganir gerðar, svo það sé þeim sem að því starfar skýrt, og tekin séu til athugunar þau vísinda­legu gögn sem fyrir­liggja og varpa ljósi á málið. Óskað hefur verið eftir því að farið sé yfir ferlið hingað til, sem hefur verið gatasigti og upplýsinga óreiða, til dæmis vita læknarnir oftast aðspurðir ekki hvað einkennin mín eru. Farið hefur verið fram á að stuðst verði við viðurkennd vísindi og aðferða­fræði, en ekki gisk og ályktanir,“ segir Sævar.

Hann segir að honum hafi ekki enn tekist að fá lækna til að líta á gögnin sem hann hefur með sér að utan. „Þau sýna meðal annars stað­festar greiningar frá hæfum sérfræðingum á atriðum sem vitað er að fólk lifir sjaldnast við án læknis­inngrips. Hvort þeir hér á Land­spítalanum hafi einhverja lausn fyrir mig við því, eða hvort þeir í læknis­fræðinni hér séu almennt búnir að innleiða nýjasta skilninginn í vísindunum, er svo allt annað samtal. Það er að sjálfsögðu ekki hægt að gera kröfur á það að menn geti lagað allt sem er að í heiminum. Það er hinsvegar hægt að gera kröfu á það að byggja máls­meðferð á stað­reyndum,“ segir Sævar.

Hann segir að með þessu áfram­haldi þá sjái hann ekkert framundan nema dauðann: „Í klínískum skilningi er mér ólíft, er ósjálfbjarga og er á síðustu metrunum. Ég hef þegar sett á stað umsóknar­ferlið til Dignitas, samtök sem hjálpa terminally ill fólki, eða þeim sem lifa við ómannúð­lega þjáningu með líknar­sjálfsvíg, in case að allt bregðist. Ekki því mér líki illa við lífið, i quite enjoy it actually, heldur það er engum líft með svona áverka til langtíma. Ég er löngu tilbúinn að fara. Could not care less þannig séð. Aðstand­endur og vinir mínir eru ekki jafn game í það, af einhverjum ástæðum, og eru að krefjast þess ég lifi því þeim finnst ómögulegt ég sé að fara frá ókláruðum skáld­sögum sem voru búnar að cliffhanger-a þau og slíkt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi