Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Bannað að tala um „sjómann“ og „fiskari“ komið í staðinn – Ólína getur ekki orða bundist

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir

Ólína Kjerúlf Þorvarðar­dóttir, þjóð­fræðingur, rithöfundur og fyrr­verandi alþingis­maður, segist ekki geta orða bundist yfir því að orðið „sjómaður“ hafi verið tekið út úr íslenskri löggjöf. Í stað þess orðs er orðskrípið „fiskari“ komið í staðinn. Hún segir þetta dæmi um dauð­hreinsunar­stefnu í pistli sem hún birtir á Facebook.

Pistill Ólínu í heild sinni:

Sjómaður eða fiskari? Orðið „sjómaður“ hefur verið tekið út úr  íslenskri löggjöf og orðið „fiskari“ er komið í staðinn. Og nú get ég ekki orða bundist – hér kemur ræðan:

Orðin sem við notum eru annað og meira heldur en dauð­hreinsaðar merkingar­einingar klipptar og skornar. Ef svo væri gætum við ekki talað um lifandi tungumál, skapandi tungutak. Orðin eru hlaðin tilfinningum, lífs­skynjun, afstöðu, sögu og menningu.

Orðið „sjómaður“ hefur djúpstsæða tilfinninga­skírskotun til margra Íslendinga sem þekkja lífs­baráttu þjóðarinar í gegnum aldirnar.

Sum atvinnu­heiti eru samsett með orðunum maður – flugmaður, hermaður o.fl. – önnur eru það ekki – kennari, læknir, prestur. Það er gott og blessað að orð séu ekki öll mynduð eins. Það skiptir meira máli finnst mér að virða uppruna þeirra og hefð­bundna notkun í stað þess að vera að beygja og beygla, liggur mér við að segja, tungu­málið í einhverri hrein­trúarstefnu um það hvernig orð skuli saman sett.

Dauð­hreinsunar­stefna í málfars­efnum er í besta falli skeytingar- og skilnings­leysi – í versta falli fjandskapur – við sköpun, sögu og tilfinningu. Mér er spurn: Hver stjórnar þessu eiginlega? Hvaða ráðgjöf er að verki þarna bak við tjöldin?

Mín máltilfinning hafnar orðinu „fiskari“ – það segir allt annað heldur en orðið sjómaður. Seinna orðið á sér aldagamla hefð og sögu, tilfinninga­tilvísun, sjálfs­myndar­sköpun, er hlaðið atvinnu­sögu og atvinnu­menningu. Allt er það hluti af orðinu og þess vegna kemur ekkert annað þess í stað.

„Fiskari“ er aftur á móti dauð­hreinsuð merkingar­eining og í einmitt þess vegna orðskrípi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi