InnlentÞjófur flúði á rafskútu – Ósjálfbjarga kona í Hlíðunum Lögreglu barst tilkynning um tvo drengi sem stálu slökkvitækjum úr bílastæðahúsi í miðnænum. Höfðu þeir spreyjað á öryggismyndavélar svo að þeir næðust ekki á mynd. Síðar um kvöldið var hringt á lögregu úr verslun í miðbænum. Þar hafði maður komið akandi á rafskútu, farið inn í verslun og stolið þar úlpu. Ók hann síðan á brott með úlpuna á rafskútunni....
InnlentÞekkt þöggun Þjóðkirkjunnar vegna máls Ólafs Skúlasonar: „Ég kalla þetta tilraun til nauðgunar“ Fyrri part ársins 1996 varð eitt mesta fjölmiðlafár síðari tíma þegar biskup Íslands, Ólafur Skúlason, var borinn þeim sökum að hafa áreitt nokkrar konur þegar hann var prestur í Bústaðakirkju. Í forsíðuviðtali við DV í mars 1996 sagði ein þeirra, Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sögu sína í fyrsta sinn undir nafni. Upphaf umfjöllunarinnar má rekja til þess að Sigrún Pálína kærði...
InnlentLögregla stöðvaði bíl með lausum börnum, of mörgum farþegum og bílstjórinn var próflaus Það er alltaf nóg að gera hjá lögreglu þessa lands, og í dag var tilkynnt um bifreið á Miklubraut og var laust barn í henni. Bifreiðin var síðan stöðvuð stuttu síðar af lögreglu og var ekki allt með felldu. Reyndust of margir farþegar vera í bifreiðinni, og börn sem voru ekki fest í viðeigandi öryggisbúnað ætlaðan börnum. Til að bæta...
InnlentHannes: „Ég ætlaði að sitja inni fyrir þetta, það hefði verið forvitnilegt að sitja í fangelsi“ Hannes Hólmsteinn Gissurarson háskólaprófessor er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar og kappinn fer út um víðan völl í þættinum; segir meðal annars frá því þegar stinga átti honum í steininn: „Einstaklingurinn má sín oft lítils gegn afli ríkisins og þess vegna verðum við að standa vörð um frelsi einstaklingsins. Ég kynntist þessu af eigin raun þegar ég var dæmdur...
InnlentSegir meirihlutann fella allar tillögur: „Þótt þessar tillögur væru orðrétt úr þeirri eigin munni“ Varaformaður Samfylkingarinnar og oddviti flokksins í Hafnarfirði, Guðmundur Árni Stefánsson skrifar grein sem ber yfirskriftina: Framsækni eða fælni og hefst svona: „20 tillögur sem til bóta horfa fyrir bæjarbúa í Hafnarfirði voru fluttar af jafnaðarmönnum á fundi bæjarstjórnar 7.desember síðastliðinn. Þær voru allar felldar! Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í bæjarstjórn máttu ekki til þess hugsa að samþykkja eina einustu þeirra,...
InnlentBrynjar brá sér í gervi Grinch: „Mér leið þarna eins og Birni Leví og konum í Íran líður alla daga“ Brynjar Níelsson segir að „einelti og ofbeldi þrífst í stjórnarráðinu eins og víða annars staðar.“ Bætir við: „Mér þvert um geð, eins og sjá má á andlitinu, var ég klæddur í jólaföt og vafinn í jólaseríu á skreytingadegi í ráðuneytinu.“ Og bætir um betur: „Mér leið þarna eins og Birni Leví og konum í Íran líður alla daga.“ Segir að...
InnlentViktor Gísli kjörinn efnilegasti handboltamarkvörður heims Samkvæmt vefsíðunni handball-planet er íslenski landsliðsmarkvörðurinn og leikmaður Nantes í Frakklandi, Viktor Gísli Hallgrímsson, besti ungi markvörður heims. Kosið var um efnilegustu handboltaleikmenn í hverri stöðu og greiddu meira 15 þúsund manns atkvæði í vali á efnilegasta markverðinum; atkvæði almennings vógu á móti niðurstöðu dómnefndar síðunnar, en hún var skipuð eldri handboltamönnum og fjölmiðlamönnum sem sérhæfa sig í handbolta. Kemur...
InnlentGlúmur: „Þekktir listamenn á launum um aldur og ævi og öryrkjar fá þúsund kall í jólauppbót“ Glúmur Baldvinsson skorar á Lilju Dögg Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra. Svo mælir Glúmur: „Eitthvað það allra heimskulegasta kerfi frá upphafi byggðar á Íslandi – fyrir utan kvótakerfið,“ skrifar hann og vísar í grein sem ber yfirskriftina: Galin pæling að leggja niður heiðurslaun listamanna. Hann segir um heiðurslaun listamanna: „Hugmyndin var að styrkja unga efnilega listamenn til dáða. Gefa þeim tækifæri...
InnlentMeira um sýkingar hjá börnum en í eðlilegu árferði: „Alltaf ráðlegt að láta lækni skoða barnið“ Barnasjúkdómalæknir segir að taka þurfi streptókokkasýkingar hjá börnum á Íslandi alvarlega. Kemur fram á ruv.is að minnst sextán börn hafa látist af þeirra völdum í Bretlandi síðan í september síðastliðnum. Voru börnin nær öll undir 10 ára aldri, eftir því er heilbrigðisyfirvöld ytra segja. Barnasmitsjúkdómalæknir hér á landi, Valtýr Stefánsson Thors, segist ekki hafa orðið var við að nákvæmlega hið...
InnlentEgill Helgason ekki sáttur: „Gefur auga leið að þar með er þetta orðið nánast merkingarlaust“ Egill Helgason segir að búið sé að gjaldfella dóma um bækur með því að gefa alltof mörgum bókum of margar stjörnur í einkunnagjöf. „Aldrei nokkurn tímann hefur verið viðlíka stjörnuflóð og nú um jólin. Byrjendabækur fá fimm stjörnur – sem í mínum huga er meistaraverk eða jafnvel snilldarverk.“ Egill segir að „skalinn er reyndar orðinn mjög þröngur, hann spannar ekki...
InnlentSkera niður kostnað í ferðaþjónustu – Spara 750 þúsund krónur Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur ákveðið að hætta alfarið rekstri upplýsingamiðstöðvar á Þingeyri. Þetta kom fyrst fram á vefnum bb.is. Fyrrnefnd upplýsingamiðstöð hefur undanfarin ár verið rekin yfir sumartímann. Það er handverkshópurinn Koltra sem rekur verslun í húsinu og sér um miðstöðina; þar er starfsmaður alla daga vikunnar og leiðbeinir hann ferðamönnum sem koma til bæjarins. Jónína Hrönn Símonardóttir er formaður handverkshópsins,...
InnlentTveir menn vopnaðir hnífum og bareflum handteknir – Höfðu í hótunum við dyraverði Í dagbók lögreglunnar kemur fram að kona slasaðist á höfði eftir að hafa fallið fyrir utan hótel í hverfi 108, var konan flutt á slysadeild með sjúkrabifreið. Þá var aðili í annarlegu ástandi handtekinn í hverfi 101 þar sem hann fór ekki að fyrirmælum, og hann vistaður í fangaklefa. Tveir menn voru handteknir í hverfi 101, þar sem þeir höfðu...