Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Hannes: „Ég ætlaði að sitja inni fyrir þetta, það hefði verið forvitnilegt að sitja í fangelsi“

Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson háskóla­prófessor er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar og kappinn fer út um víðan völl í þættinum; segir meðal annars frá því þegar stinga átti honum í steininn:

„Einstaklingurinn má sín oft lítils gegn afli ríkisins og þess vegna verðum við að standa vörð um frelsi einstaklingsins. Ég kynntist þessu af eigin raun þegar ég var dæmdur fyrir að reka ólöglega útvarpsstöð sem ungur maður til að mótmæla einka­rekstri ríkisins á ljósvaka­miðlum. Ég hef reyndar alltaf verið stoltur af þeim dómi,“ segir Hannes og heldur áfram:

„Ég rak útvarps­stöðina Frjálst Útvarp árið 1984, en var svo dæmdur 1986. Við færðum stöðina til dag frá degi, en svo náði lögreglan að finna út hvar hún væri og kom og lokaði stöðinni á endanum. Ég var dæmdur til að borga sekt, en 14 daga fangelsi til vara. Ég skrifaði dómsmála­ráðuneytinu að ég myndi ekki borga sektina og ætlaði að sitja inni fyrir þetta. Það hefði verið forvitnilegt að sitja inni í fangelsi, en það var einhver sem greiddi sektina fyrir mig, sem ég veit ekki enn hver er.“

Hannes ræðir einnig um haturs­orðræðu, en hann er áþví að fólk ætti að stíga varlega til jarðar í þeim efnum:

„Auðvitað verðum við að koma í veg fyrir það að ákveðnir hópar verði fyrir aðkasti. Ég get ekki rekið veitinga­stað og bannað Kínverjum að koma þar inn. Það er bara rangt. Mér finnst eðlilegt að ákveðnir hlutir séu ekki leyfðir, eins og svívirðingar um ákveðna hópa og annað í þeim dúr,“ segir hann og heldur áfram:

„Það hefur verið gengið miklu lengra á undan­förnum árum, eins og til dæmis í Kóvid 19 og einnig í tengslum við kosningarnar í Banda­ríkjunum; þar í landi hafa stóru samfélags­miðlarnir farið út í ritskoðun og ákveða hvað er fréttnæmt og hvað ekki. Við hljótum að þurfa að setja spurninga­merki við það. Þó að við eigum að sjálfsögðu að sporna við haturs­orðræðu á ákveðna hópa og banna stoppa svívirðingar, getum við ekki farið út í það sem var kallað ,,Hugsana­glæpur” í sögum Orwell. Það að einhver sé með ólíka skoðun en þú þýðir ekki að það sé saknæmt. Lausnin hlýtur að vera sú að frelsið njóti á endanum vafans og að við höfum meira frelsi en minna.“

Hannes heldur áfram að grafa gull upp úr endur­minningunum; ræðir það þegar mótmælendur veittust að honum árið 2009:

„Þetta gerist í ágúst 2009 þegar ég átti erindi niður í bæ, þar sem var mótmæla­fundur vegna Icesave samninganna. Þar kemur frétta­kona auga á mig og biður mig að koma í viðtal til að útskýra af hverju ég var á móti Icesave samningunum. Við förum að Dómkirkjunni, en þar var gerður aðsúgur að mér og byrjað að kasta í mig alls kyns hlutum. Á endanum slapp ég inn í Alþingis­húsið, en það var einkennilegt að verða fyrir þessu í okkar annars ofbeldis­lausa landi. Svo átti ég að fara í myndatöku fyrir forsíðu­viðtal hjá Grapevine og er á leiðinni þangað þegar síminn hringir. Þá var það minn gamli vinur Davíð Oddsson, sem hafði séð hvað ég var grátt leikinn í sjónvarps­fréttunum. Hann sagði mér að hann og Kjartan Gunnarsson hefðu séð þetta og vildu bæta mér daginn upp með því að bjóða mér út að borða. Þetta kvöld sátum við þrír á sama borði og 18 árum fyrr þegar Davíð hafði myndað sína fyrstu ríkis­stjórn.“

Hannes er afar áhugaverður viðmælandi og hægt er að nálgast þáttinn hans Sölva Tryggva með Hannesi í heild sinni á vefsíðu Sölva.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er ekki síður menningarlegs eðlis“

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti