Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Segir meirihlutann fella allar tillögur: „Þótt þessar tillögur væru orðrétt úr þeirri eigin munni“

Guðmundur Árni Stefánsson er sigurvegari.
Guð­mundur Árni Stef­áns­son er sig­ur­veg­ari.

Vara­formaður Samfylkingarinnar og oddviti flokksins í Hafnar­firði, Guðmundur Árni Stef­ánsson skrifar grein sem ber yfir­skriftina: Fram­sækni eða fælni og hefst svona:

„20 tillögur sem til bóta horfa fyrir bæjarbúa í Hafnar­firði voru fluttar af jafnaðar­mönnum á fundi bæjar­stjórnar 7.desember síðastliðinn. Þær voru allar felldar! Meirihluti Sjálfstæðis­flokksins og Framsóknar­flokksins í bæjar­stjórn máttu ekki til þess hugsa að samþykkja eina einustu þeirra, jafnvel þótt margar þessar tillögur væru orðrétt úr þeirri eigin munni; úr meirihluta­sáttmála þessara flokka, sem þeir kynntu í vor! En af því að Samfylkingin lagði þetta til, þá var ekki hægt að samþykkja neitt – ekki eina tillögu!“

Guðmundur Árni nefnir að „jafnaðar­menn lögðu til að samþætta heimilis­hjálp og heima­hjúkrun í Hafnar­firði. Það felldu sjálfstæðis­menn og framsókn. Jafnarfólk lagði til að þrýsta á ríkis­valdið um byggingu nýrrar heilsu­gæslu. Og byggingu nýs hjúkrunar­heimilis í Hamranesi fyrir eldri borgara sem þurfa umönnum. Mál sem hafa verið á dagskrá árum saman, en ekkert miðar. Báðum þessum brýnu og mikilvægu málum var hafnað.“

Guðmundur Árni er hissa á því að Sjálfstæðis­flokkurinn og Framsóknar­flokkurinn skuli „fella eigin tillögur Hér skulu nefnd nokkur dæmi um mál sem meirihlutinn hafnaði á bæjar­stjórnar­fundinum: Það má ekki fjölga félags­legum íbúðum í Hafnar­firði, þrátt fyrir gríðar­lega langan biðlista og brýna þörf.

Það er ekki á dagskrá að bjóða íslensku­kennslu á vegum Hafnar­fjarðar­bæjar fyrir íbúa bæjarins, sem eru af erlendu bergi brotnir.

Það má ekki tryggja húsnæði fyrir Leikfélag Hafnar­fjarðar.

Það á ekki að leysa húsnæðis­vanda Bretta­félagsins. Né Dans­íþrótta­félagsins.

Það má ekki hækka frístunda­styrk til barna og ungmenna.

Því er hafnað að bjóða upp á frítt í strætó fyrir unglinga á aldrinum 12-15 ára.

Það var fellt að styrkja starfsemi Markaðs­skrifstofu Hafnar­fjarða. Það skal ekki gera betur í að lagfæra grunn- og leik­skólalóðir. Því er neitað að gera átak í aðgengis­málum fyrir fatlað fólk og auka umferðar­öryggi við gangbrautir bæjarins. Og alls ekki skal farið í viðræður við ófaglært starfs­fólk leik­skólanna um kjara­jöfnun gagnvart öðrum sveitar­félögum.“

Hann vill meina að „þessar tillögur og fleiri voru ekki kostnaðar­samar, enda var gert ráð fyrir tekjum á móti í fjórum sjálf­stæðum tekju­tillögum jafnaðar­manna – sem voru auðvitað líka felldar.

Raunar voru tekju­tillögur jafnaðar­manna langt umfram kostnað við úrbæturnar. Þessi gamaldags póltík valdhafa í meirihluta Hafnar­fjarðar eru lýsandi dæmi um pólitískt kjörna valdhafa, sem eru hræddir og óvissir um stöðu sína. Það er ekki sama hvaðan gott kemur.

Ef það kemur frá fjórum bæjar­fulltrúum Samfylkingarinnar – jafnaðar­flokks Íslands, þá skal andæfa og hafna.

Það er sumpart skiljanlegt að bæjar­fulltrúar Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokks séu óöruggir og óvissir og viti ekki gjörla hvað skal til bragðs taka. Þeir sjá það og skilja að eftir meira en 8 ára stjórnartíð Sjálfstæðis­flokksins – lengst af í samstarfi við Framsóknar­flokkinn, þá hefur þjónustu bæjarins hrakað – um leið og fjárhags­staða bæjarins er afar viðkvæm. Þar má ekkert út af bregða.“

Guðmundur Árni segir að „rekstrar­halli er viðvarandi, enda þótt skuldir aukist ár frá ári. Og jafnvel líka þótt fasteigna­skattar séu hækkað um tugi prósenta.

Jafnaðar­menn vilja sjá sterkan Hafnar­fjörð þar sem bjartsýni, velferð og velsæld ríkir meðal bæjarbúa. Þar sem allir eiga kost á öflugri grunn­þjónustu óháð efnahag og framsækið atvinnulíf er ríkjandi.

Það vantar mikið upp á að þessi grunn­gildi séu í heiðri höfð. Þetta er spurning um stjórnar­hætti sem einkennast af framsækni eða fælni og ótta við núið og fram­tíðina. Það þarf einfald­lega jafnaðar­menn til forystu í Firðinum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er ekki síður menningarlegs eðlis“

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti