Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Meira um sýkingar hjá börnum en í eðlilegu árferði: „Alltaf ráðlegt að láta lækni skoða barnið“

Mynd / Skjáskot Læknafélag Íslands.
Mynd / Skjáskot Lækna­fé­lag Íslands.

Barna­sjúkdóma­læknir segir að taka þurfi streptókokka­sýkingar hjá börnum á Íslandi alvarlega.

Kemur fram á ruv.is að minnst sextán börn hafa látist af þeirra völdum í Bretlandi síðan í september síðastliðnum.

Voru börnin nær öll undir 10 ára aldri, eftir því er heilbrigðis­yfirvöld ytra segja.

Barna­smit­sjúkdóma­læknir hér á landi, Valtýr Stef­ánsson Thors, segist ekki hafa orðið var við að nákvæmlega hið sama sé í uppsiglingu hér á Íslandi; en þó hafi fleiri ífarandi sýkingar með streptókokkum greinst hjá full­orðnum einstaklingum á þessu ári; þær sýkingar séu alvarlegri en háls­bólgan, sem flestir þekkja, og tengja við streptókokka:

„Ífarandi sýkingar eru þá sýkingar þar sem bakterían berst út í blóð­rásina eða yfir í miðtaugakerfið. Stundum er það þannig að þær valda alvarlegum húð- og vöðva­verks­sýkingum,“ segir Valtýr.

Kemur fram að hálsbólga er oftast vegna veiru­sýkinga, en hún getur líka verið af völdum baktería sem nefnast streptókokkar; þá er æskilegt og jfnvel nauðsynlegt að leita til heilsu­gæslu; fá úr skorið hvort taka þurfi sýklalyf til að vinna á sýkingunni.

Segir Valtýr mikilvægt fyrir foreldra að láta heilbrigðis­starfsfólk meta börnin, því þeir hafi verulegar áhyggjur:

„Um leið og einkennin verða verri eða veikndin dragast á langinn, það koma fram útbrot sem eru samhliða veikindunum, að þá er alltaf ráðlegt að láta lækni skoða barnið.“

Eins og staðan er núna er meira um sýkingar hjá börnum en í eðlilegu árferði og mjög mikið álag er á heilbrigðis­stofnunum landsins.

Til að bæta gráu ofan ásvart þá kom RS-veiran fyrr en venjulega til Íslands og verið erfið viðureignar.

Fleiri börn eru að fá inflúensu og geta veikst hastarlega:

„En langflestar hins vegar af þessum pestum sem eru núna að herja á okkur eru svokallaðar veiru­sýkingar. Flestar eru þess eðlis að þær ganga yfir af sjálfu sér án þess að það þurfi einhverja sérstaka meðferð,“ segir Valtýr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er ekki síður menningarlegs eðlis“

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti