Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Þekkt þöggun Þjóðkirkjunnar vegna máls Ólafs Skúlasonar: „Ég kalla þetta tilraun til nauðgunar“

Fjöldi kvenna bar Ólaf Skúlason þungum sökum.
Fjöldi kvenna bar Ólaf Skúlason þungum sökum.

Fyrri part ársins 1996 varð eitt mesta fjölmiðlafár síðari tíma þegar biskup Íslands, Ólafur Skúlason, var borinn þeim sökum að hafa áreitt nokkrar konur þegar hann var prestur í Bústaða­kirkju. Í forsíðu­viðtali við DV í mars 1996 sagði ein þeirra, Sigrún Pálína Ingvars­dóttir, sögu sína í fyrsta sinn undir nafni.

Upphaf umfjöllunarinnar má rekja til þess að Sigrún Pálína kærði séra Vigfús Þór Árnason, sóknar­prest í Grafar­vogi, til siða­nefndar Presta­félags Íslands fyrir að hafa brugðist sér. Sigrún Pálína hafði trúað biskupi fyrir því að séra Ólafur Skúlason hefði áreitt sig. Vildi hún að Vigfús tæki málið upp við aðra presta. Það gerði hann ekki. DV komst á snoðir um kæruna. Gísli Kristjánsson blaða­maður fjallaði um hana í blaðinu. Þar með fór af stað umfjöllun sem átti eftir að standa til ársins 2010 með stuttum hléum.

Fleiri meint fórnar­lömb biskupsins sögðu svipaða sögu. Biskup Íslands þvertók fyrir að fram­burður Sigrúnar Pálínu og annarra vitna væri sann­leikanum samkvæmt. Sann­kallað fjölmiðlafár upphófst í fram­haldinu. Í fyllingu tímans hrökklaðist biskupinn úr embætti.

Hjónabandserfiðleikar

Í viðtalinu við Sigrúnu Pálínu Ingvars­dóttir kom fram að Ólafur hefði gefið hana og  fyrr­verandi eiginmann hennar saman. Þegar hún lenti í hjónabands­erfiðleikum leitaði hún til prestsins sem sálusorgara. „… Ég hitti hann fjórum sinnum og hann virkaði á mig sem góður maður og það var gott að tala við hann …,“ sagði Sigrún Pálína um atburða­rásina 17 árum fyrr þegar hún, þá 22 ára, leitaði ásjár prestsins.

Skellti í lás

Hún segist hafa trúað honum fyrir því að hún hefði lent í kynferðislegri áreitni sem barn. Þau áttu nokkra fundi um erfið­leikana. Á fjórða fundinum, sem var að kvöldi til, lýsti Sigrún Pálína því að biskupinn hefði látið til skarar skríða. „Þá stakk hann upp á því að sýna mér skrúð­húsið þar sem hann sýndi mér messu­klæðin,“ sagði Sigrún Pálína við DV. Þaðan lá leið biskups og sóknar­barns inn á skrif­stofu prestsins. „… Í sömu andrá skellti hann í lás og ég sá að ég var stödd inni í læstu, glugga­lausu herbergi. Að sinni ætla ég ekki að lýsa því hvað gerðist þarna,“ sagði hún og vildi ekki útskýra í smáatriðum hvað hefði gerst.  „Ég ræði málið núna fyrst og fremst til að svara þeim ósannindum sem Ólafur Skúlason kom fram með í sjón­varpinu,“ sagði Sigrún Pálína árið 1996.

– Var þetta kynferðisleg áreitni? spurði blaða­maðurinn. „Ég kalla þetta tilraun til nauðgunar. Þegar viðkomandi neytir aflsmunar til að koma fram vilja sínum og fórnar­lambið þarf að beita afli til að komast undan er farið yfir mörkin á milli kynferðislegrar áreitni og nauðgunar­tilraunar,“ sagði hún.

Áfall

Sigrún Pálína segist hafa orðið fyrir miklu áfalli við þennan atburð. „Ég komst út úr kirkjunni, fór heim og brotnaði alveg niður. Ég skalf og grét alla nóttina. Ég sagði minum nánustu frá þessu en það var alls staðar sama svarið: „Þú getur ekkert gert, þetta er orð á móti orði.““

Eftir að DV opnaði málið var það til umfjöllunar í öllum fjöl­miðlum. En kirkjan þvers­kallaðist við að gera eitthvað í málinu. Málið reyndist Sigrúnu Pálínu erfitt og hún flutti til Danmerkur. Hún virtist hafa tapað fyrir biskupi.

Eftir mikið fjölmiðlafár árið 1996 minnkaði áhugi almennings. Ólafur biskup hætti síðar án þess að viðurkenna sök og Karl Sigurbjörnsson varð biskup. Það er kaldhæðni örlaganna að Karl hafði komið að máli forvera síns á frumstigi og var sakaður um þöggun. Og málið átti eftir að reynast honum dýrkeypt.

Guðrún Ebba stígur fram

Fjórtán árum eftir að DV tók málið upp kom það upp aftur. Dóttir Ólafs Skúla­sonar, Guðrún Ebba, hafði leitað á náðir kirkjunnar og lýst því að faðir hennar hefði áreitt hana.

Saga Guðrúnar Ebbu var skráð. Þar komu fram ásak­anir á föður hennar.

Erindi hennar var ekki sinnt. Hún hafði ritað kirkjunni bréf sem var ósvarað mánuðum saman. Loks óskaði hún eftir fundi með Karli Sigurbjörns­syni. Ingibjörg Dögg Kjartans­dóttir blaða­maður fékk þetta staðfest. DV birti forsíðu­frétt árið 2010, tveimur árum eftir andlát Ólafs Skúla­sonar, og annað fjölmiðlafár hófst.

Þá varð niður­staðan sú að kirkjan setti af stað rann­sóknarnefnd. Niður­staðan nefndarinnar varð til þess að kirkjan greiddi konunum bætur áratugum eftir að meint brot áttu sér stað. Karl hætti sem biskup árið 2012.

Óhætt er að fullyrða að málið varð Þjóð­kirkjunni dýrkeypt. Mikill fjöldi hafði sagt sig úr kirkjunni sem var um tíma trausti rúin og hefur enn ekki rétt úr kútnum.

Baksýnis­spegill þessi birtist fyrst á Mannlíf þann 13. september síðastliðinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er ekki síður menningarlegs eðlis“

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti