Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Segir framkomu starfsmanns Reykjavíkur vera til skammar

Borgin segir að starfs­mað­ur­inn vinni hjá einka­reknum leik­skóla

Sólveig Anna Jónsdóttir
Sólveig Anna Jóns­dóttir Formaður Eflingar er ósátt með hegðun starfs­mann Reykja­vík­ur­borgar. Mynd: Efling

Verka­lýðs­for­ing­inn Sólveig Anna Jóns­dóttir rit­aði færslu fyrr í dag þar sem hún greinir frá fundi sem trún­að­ar­maður Eflingar í leik­skól­ans sat og var væg­ast sagt brugðið.

„Í gær var hald­inn fundur vegna myglu­vanda­mála í leik­skóla einum. Á fund­inum voru stjórn­endur, for­eldrar, starfs­fólk og í það minnsta tveir full­trúar frá Reykja­vík­ur­borg. Fólk spurði ýmissa spurn­inga og almennt var upp­lifunin sú að full­trúar borg­ar­innar væru ekki nægi­lega vel und­ir­búnir,“ skrif­aði Sólveig.

„Á fund­inum voru bæði for­eldrar og starfs­menn af erlendum upp­runa. Einhver þeirra spurðu spurn­inga á ensku. Sá full­trúi borg­ar­innar sem sat fyrir svörum til­kynnti þá að fund­ur­inn færi ein­göngu fram á íslensku. Þegar að fund­ar­gestir sögð­ust vera til­búnir til að túlka var því hafnað af full­trúa borg­ar­innar. Að þessum sam­skiptum loknum huns­aði hann allar spurn­ingar sem að settar voru fram á ensku,“ hélt hún áfram og segir að hegðun þessi sé óásætt­an­leg og starfs­fólki leik­skól­ans hafi verið brugðið og hafi upp­lifað van­virð­ingu.

„Þau skilja ekki hvers­vegna ekki voru túlkar við­staddir á fund­inum. Ég tek undir með þeim. Framkoma umrædds ein­stak­lings sem starfar hjá borg­inni er til hábor­innar skammar. Leik­skólar hér í borg eru fjöl­þjóð­legir. Þar starfar fólk með fjöl­breyttan upp­runa og þar dvelja börn alls­staðar að úr heim­inum. Það er ein­fald­lega skylda starfs­manna að við­ur­kenna þessa stað­reynd og vinna með fólki, hvort sem það talar íslensku eða ekki. Virðing og vin­skapur gagn­vart öllu starfs­fólki og öllum for­eldrum verður að vera til staðar. Annað gengur ekki,“ segir hún svo.

Sólveig heldur áfram og seg­ist vera stolt af trún­að­ar­manni Eflingar sem gerði athuga­semd við fram­ferði full­trúa borg­ar­innar á fund­inum og vonar að rætt verði af alvöru við mann­inn og útskýrt fyrir honum að hann geti ekki mis­munað fólki eftir vegna tungu­mála­kunn­áttu.

Mannlíf hafði sam­band við Reykja­vík­ur­borg til að fá við­brögð við orðum Sól­veigar. Samkvæmt borg­inni er leik­skól­inn sem um ræðir ekki vegum borg­ar­innar heldur einka­rek­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Jón Daði þakkaði Maríu fyrir stuðninginn þegar hann kvaddi knattspyrnuna í ágúst. Nú hafa hjónin tilkynnt að fjölskyldan stækki næsta vor.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði