Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Sanna sökuð um að hunsa einelti Gunnars Smára

Mikið ósætti ríkir í Sós­í­alista­flokknum um þessar stundir

Sanna ásökuð
Sanna ásökuð Frá­sagnir af meintu ein­elti í flokknum halda áfram. Mynd: Sigtryggur Ari

Trausti Breið­fjörð Magn­ús­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, segir Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur, odd­vita flokks­ins í Reykja­vík, hafa hunsað ábend­ingar frá sér og öðrum um Gunnar Smára Egilsson, for­mann fram­kvæmda­stjóra flokks­ins, og hans fram­komu gagn­vart öðrum flokks­með­limum.

Mikil umræða hefur verið í fjöl­miðlum og á net­inu eftir að Karl Héðinn Krist­jáns­son sagði sig úr kosn­inga­stjórn Sósí­al­ista­flokks­ins í gær.

„Ástæðan er ein­föld: Ég get ekki leng­ur starfað inn­an for­ystu sem huns­ar lýð­ræðis­lega gagn­rýni, við­held­ur óheil­brigðri menn­ingu og refs­ar þeim sem benda á vanda­mál­in,“ skrif­aði Karl á sam­fé­lags­miðla og nefndi Gunnar Smára sér­stak­lega í því sam­hengi.

Gunnar Smári gaf síðar út að boðað yrði til skyndi­fundar og var sá hald­inn í gær­kvöldi.

Hafnar ölluSós­í­alista­flokk­ur­inn er klof­inn milli stuðn­ings­fólks Gunnars Smára og þeirra sem vilja breyt­ingar.

Undir orð Karls tekur Trausti og nefnir ýmis dæmi um slæm sam­skipti sem hann hefur átt við Gunnar Smára á und­an­förnum árum. Ekki nógu með það þá kemur fram í athuga­semd sem Trausti skrif­aði á Facebook-hóp flokks­ins fyrr í dag að hann sé einnig ósáttur sína með við­brögð Sönnu en hún hafn­aði ásök­unum Karls í gær og tók stöðu með Gunnari Smára.

„Mér fannst eins og þú tækir ekki mark á því sem ég væri að segja“
Trausti Breið­fjörð Magn­ús­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sós­í­alista

„Svo það komi hér fram þá sagði ég þér frá því hvernig fram­koma hans væri,“ skrif­aði Trausti til Sönnu á sam­fé­lags­miðlum í dag. „Ekki í jafn­miklum smá­at­riðum og hér, en ég lét þig vita að fram­koma hans væri frá­hrind­andi. Þetta var nokkrum vikum áður en ég ákvað að biðj­ast lausnar úr borg­ar­stjórn. Mér fannst eins og þú tækir ekki mark á því sem ég væri að segja þá. Og það er til­finn­ing fleira fólks sem hefur sagt þér frá ein­elti sem það hefur orðið fyrir. Eins og þú hundsir ábend­ing­arnar, segir kannski að þetta sé nú leið­in­legt, en stendur samt áfram með honum. Það sárnar mér. Varðandi skila­boðin, þá hef ég ekki áhuga á því að grafa þau sér­stak­lega upp. Ég man að hann sagði þetta og tal­aði um þetta. Fleiri félagar geta stað­fest að hann tal­aði um þetta við þá líka. Að hann vildi ekki að við værum að pæla í þessu máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Pólitík

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
  • Pólitík

    „Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

  • Pólitík

    Jódís segir Sverri snúa út úr orðum sínum

  • Pólitík

    Daði Már segir svar um fundi án for­stjóra hafa verið óná­kvæmt

  • Pólitík

    Vill stofna sann­girn­is­bóta­sjóð vegna illrar með­ferðar á börnum í vistun