Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Uppgjör Sósíalista: Sanna stendur með Gunnari Smára

Þrír for­menn stjórna Sós­í­alista­flokks­ins taka afstöðu með Gunnari Smára Egils­syni.

Uppgjör Sósíalista: Sanna stendur með Gunnari Smára
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir Sá kjörni full­trúi Sós­í­alista sem náð hefur lengst stendur með for­manni fram­kvæmda­stjórnar and­spænis gagn­rýni. Mynd: Sigtryggur Ari

Þrír for­menn stjórna Sós­í­alista­flokks­ins hafa gefið frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þeir hafna almennri gagn­rýni for­manns Ungra Sós­í­alista, Karls Héðins Krist­jáns­sonar, sem jafn­framt sagði sig úr kosn­inga­stjórn Sós­í­alista.

Karl Héðinn, sem er fræðslu- og félags­mála­full­trúi hjá Eflingu, sakar Gunnar Smára Egilsson, for­mann fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista, um launa­þjófnað við vinnu Karls fyrir fjöl­mið­il­inn Sam­stöð­ina, sem rek­inn er í hús­næði Sós­í­alista og að hluta með fjár­fram­lögum flokks­ins.

For­menn­irnir þrír benda á að almenn ánægja hefði mælst meðal félags­manna í könnun til þeirra nýverið. Þá hafi óánægja sú, sem birt­ist að sögn Karls Héðins á vinnufundi Sós­í­alista, verið tak­mörkuð út frá því að ein­ungis 1,5% félags­manna hafi sótt fund­inn.

Meðal for­mann­anna er Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, ein af tveimur kjörnu full­trúum Sós­í­alista­flokks­ins, en hún er borg­ar­full­trúi.

„Almenn ánægja þeirra 15% félaga sem svör­uðu var yfir 90% í öllum spurn­ingum nema um nið­ur­stöður kosn­ing­anna“
Þrír for­menn stjórna Sós­í­alista­flokks Íslands

„Sós­í­alista­flokk­ur­inn sendi nýverið út könnun meðal félaga um ánægju þeirra með flokks­starfið, stefn­una og þau áhrif sem flokk­ur­inn hefur haft á sam­fé­lags­um­ræðu sl. ár. Almenn ánægja þeirra 15% félaga sem svör­uðu var yfir 90% í öllum spurn­ingum nema um nið­ur­stöður kosn­ing­anna,“ segir í yfir­lýs­ingu for­mann­anna.

Ýmiss konar óánægja birt­ist þó á spjall­svæði Sós­í­alista á Facebook í dag og í kvöld. Þar er kvartað undan því að skyndi­fundi, sem Gunnar Smári boð­aði klukkan 18 í dag, hafi ekki verið streymt til félags­manna á lands­byggð­inni. Einn þeirra sem lýsir óánægju sinni er fyrr­ver­andi borg­ar­full­trú­inn Trausti Breið­fjörð Magn­ús­son, sem segir að fyrr­greind könnun sem for­menn vitna til hafi verið mein­gölluð.

Karl Héðinn bar Gunnar Smára marg­vís­legum sökum í opin­beru bréfi og kvaðst ekki vera einn um upp­lifun­ina, þrátt fyrir mik­ils­vert fram­lag til upp­bygg­ingar flokks­ins og Sam­stöðv­ar­innra. „Því miður hef ég í stað­inn upp­lifað útskúfun fyrir að segja sann­leik­ann um ofríki, and­legt ofbeldi og trún­að­ar­brot for­manns fram­kvæmda­stjórnar, Gunnars Smára Egils­sonar. Þeir sem verja hann hvað sem á dynur hafa tekið þátt í þeirri útskúfun – jafn­vel á meðan þeir segj­ast styðja þolendur og berj­ast gegn ofbeldi. Ég er ekki einn um þessa upp­lifun og veit því miður um þó nokkur dæmi þar sem öfl­ugir félagar fæl­ast frá starfi vegna sam­bæri­legra upp­lif­anna.“

Undir þetta tekur Trausti Breið­fjörð í færslu á Facebook í dag. „Ég veit að fleiri hafa svip­aða sögu að segja, og mér hefur sárnað að sjá þá með­virkni sem sumir hafa sýnt með þess­ari fram­komu, og jafn­vel tekið þátt í henni. Fólk sem ég hafði alltaf talið að væri gott og sam­visku­samt. Ég vona að þetta verði til þess að nýir tímar séu í vændum innan flokks­ins, þar sem gras­rótin verður virkjuð og völdin verða í hennar höndum, en ekki fámennrar klíku.“

Trausti Breið­fjörðFyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi sem sagði af sér vegna heilsu­brests síð­asta haust tekur afstöðu gegn for­manni fram­kvæmda­stjórnar.
Gunnar SmáriFélags­menn Sós­í­alista­flokks­ins hafa í kvöld rifjað upp feril Gunnars Smára í við­skiptum.

Sam­stöðin, sem Karl Héðinn starf­aði fyrir, er rekin í höf­uð­stöðvum Sós­í­alista­flokks­ins í Bolholti í Reykja­vík. Samkvæmt árs­reikn­ingi Sós­í­alista­flokks­ins veitti flokk­ur­inn Sam­stöð­inni 15 millj­óna króna lán árið 2023. Megnið af því kemur úr rík­is­sjóði sem fram­lag til stjórn­mála­flokks. Af tekjum 30 millj­óna króna tekjum flokks­ins 2023 feng­ust 24,5 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði.

Eft­ir­far­andi er til­kynn­ing for­manna stjórna Sós­í­alista­flokks­ins til flokks­manna sem birt er á Facbook.

Tilkynning frá formönnum stjórna Sósíalistaflokksins:

Við höfnum ásök­unum Karls Héðins Krist­jáns­sonar, sem birti í dag póst um afsögn sína úr kosn­inga­stjórn flokks­ins sl. helgi, um að „hunsa lýð­ræð­is­lega gagn­rýni, við­halda óheil­brigðri menn­ingu og refsa þeim sem benda á vanda­málin.“

Sós­í­alista­flokk­ur­inn sendi nýverið út könnun meðal félaga um ánægju þeirra með flokks­starfið, stefn­una og þau áhrif sem flokk­ur­inn hefur haft á sam­fé­lags­um­ræðu sl. ár. Almenn ánægja þeirra 15% félaga sem svör­uðu var yfir 90% í öllum spurn­ingum nema um nið­ur­stöður kosn­ing­anna. Vinnufundur kosn­ing­ar­stjórnar, sem Karl Héðinn vísar til, sátu 1,5% félaga.

Nið­ur­stöður félags­könn­un­ar­innar sýna því að almenn ánægja ríkir um starf Sós­í­alista­flokks­ins og end­ur­spegla engan veg­inn van­traust á for­mann fram­kvæmda­stjórnar, Gunnar Smára Egilsson.

Sós­í­alista­flokkur Íslands er breið­fylk­ing fólks sem byggir á gras­rót­ar­starfi og lýð­ræð­is­legum vinnu­brögðum sem hægt er að kynna sér á sos­i­alista­flokk­ur­inn.is

Sara Stef. Hild­ar­dóttir, vara­for­maður fram­kvæmda­stjórnar

María Pét­urs­dóttir, for­maður mál­efna­stjórnar

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, for­maður kosn­inga­stjórnar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum