LandiðGríðarlegur hallarekstur sundlaugarinnar á Kirkjubæjarklaustri – Tapa fimm milljónum á mánuði Opnunartíma sundlaugarinnar á Kirkjubæjarklaustri hefur nú verið breytt. Ástæðan er stórvægilegur hallarekstur laugarinnar. Samkvæmt sunnlenska.is kemur fram í fundargerð sveitastjórnarinn að hallarekstur sundlaugarinnar nemi um fimm milljónum á mánuði að meðaltali, fyrstu sjö mánuði þessa árs. Gerð var tilraun með að auka opnunartíma laugarinnar en hún gekk ekki upp. Samþykkti því sveitarstjórnin að framvegis verðir hún opin kl. 11 til...
LandiðAldraður Eyjamaður vann tæpar tvær milljónir með tippi Aldraður stuðningsmaður KFS í Vestmanneyjum vann sér inn tæpar tvær milljónir króna með tippi um helgina. Eyjar.net segir frá því að 85 ára stuðningsmaður KFS í Vestmannaeyjum hafi fengið 13 rétta á sunnudagsseðilnn í getraunum um helgina og þannig unnið sér inn 1,7 milljónir króna. Fram kemur í fréttinni að maðurinn tippi vikulega hjá KFS í Vestmannaeyjum en KFS er...
LandiðLíkhúsið ekki lagfært að svo stöddu: „Það kostar einhverjar milljónir“ Ekki stendur til að ráðast í endurbætur á líkhúsi Snæfellsbæjar. Líkhús Snæfellsbæjar verður ekki lagfært fyrr en einhver einstaklingur tekur að sér að sinna þeirri vinnu sem á þar að fara fram en sem stendur er ekki neinn sem sér um þá vinnu. „Við viljum bara sjá að það ætli einhver að þjónusta þetta. Að það sé einhver fullvissa fyrir...
LandiðDrengurinn á Akureyri fundinn Lögreglan á Akureyri leitar að 12 ára dreng. Síðast er vitað af drengnum um kl. 07:40 í morgun, í Bugðusíðu á Akureyri. Drengurinn er um 140-150 cm hár og var klæddur í úlpu sem er gul að neðan en dökk að ofan, með gula húfu, í gráum buxum, rauðum skóm og með svarta og græna tösku. Drengurinn er greindur með...
LandiðBrakið hreinsað af götum Siglufjarðar: „Það er í forgangi núna að tryggja stöðuna“ Byrjað var í dag að hreinsa upp brak á götum Siglufjarðar eftir óveðrið frá því í fyrradag. Í fyrradag eyðilagðist tveggja hæða hús á Siglufirði með þeim afleiðingum að brak af því flaug út um alla bæ. Eigandinn slapp frá óskaddaður og hefur fengið húsaskjól í bænum. Jóhann Jóhannsson, slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð, sagði við RÚV að byrjað væri að hreinsa...
LandiðBygging brúar yfir Þorskafjörð langt á undan áætlun: „Þetta hefur gengið mjög vel“ Vel gengur að byggja nýja brú yfir Þorskafjörð. Brúin yfir fjörðin er 260 metrar á lengd en smíði hennar hefur gengið vel að sögn verkstjóra þess og eru líkur á að hún opni hálfu ári á undan áætlun. „Þetta hefur gengið mjög vel. Brúarsmíðin gekk mjög vel. Okkur tókst að steypa seinni hlutann í brúargólfinu í byrjun nóvember í fyrra,...
LandiðStarfsfólk Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði í áfalli: „Í nokkrar mínútur var ekki sagt eitt orð“ Starfsfólk bolfiskvinnslu Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði er í áfalli. Fram kemur hjá Austurfrétt að trúnaðarmaður starfsfólks í bolfiskvinnslu Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði, segi lokun vinnslunna mikið áfall. Fólkinu líði vel í bænum og vonist til að finna aðra vinnu þar. „Fyrst var fundur klukkan ellefu í morgun. Framkvæmdastjórinn tilkynnti mér sem trúnaðarmanni og nokkrum yfirmönnum ákvörðunina. Klukkan tólf var almennur starfsmannafundur. Fyrst...
LandiðKarólína segir flest komin heim eftir rútuslysið: „Það er einn ennþá á Landspítalanum“ Allir nema einn sem lentu í rútuslysinu við Blönduós eru komnir heim til Akureyrar. Allir farþegarnir 24 voru fluttir á sjúkrahús en sjö þeirra fóru til Reykjavíkur á Landspítalann. „Það er einn ennþá á Landspítalanum í Reykjavík og verður þar einhverja daga til viðbótar en aðrir eru komnir heim,“ sagði Karólína Gunnarsdóttir, á velferðarsviði Akureyrar, í samtali við mbl.is um...
LandiðKennarar í VMA gagnrýna Ásmund harðlega: „Ekki í anda menntastefnu stjórnvalda“ Kennarafélag Verkmenntaskólans á Akureyri gagnrýnir vinnubrögð Ásmundrr Einars Daðasonar. Fyrirhuguð sameining MA og VMA hefur vægast sagt fallið í grýtan jarðveg hjá nemendum og kennurum beggja skóla. Virðast aðeins skólastjórnendur þeirra vera fylgjandi henni en fyrir stuttu tilkynnti Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, að það stæði til að sameina skólanna. Kennarafélag Verkmenntaskólans á Akureyri sendi frá sér tilkynningu í...
LandiðAlmennir kennarar skipta með sér íþróttakennslu á Vopnafirði: „Þetta hafðist á lokametrunum“ Í grunnskólanum á Vopnafirði sjá þrír almennir kennarar um íþróttakennslu. Fram kemur í frétt Austurfréttar að þrátt fyrir auglýsingar eftir kennurum hafi einungist náðst að fullmanna almennar kennslugreinar í grunnskólanum á Vopnafirði en það náðist á allra síðustu metrunum líkt og það var orðað í fréttinni. Ekki tókst að manna íþróttakennslu en þrír almennir kennarar við skólann hafa tekið að...
LandiðSkemmdar tröppur á Akureyri lagaðar: „Vonum bara að þetta verði látið í friði“ Búið að laga þau skemmdarverk sem unnin voru á tröppum á Akureyri. Eins og Mannlíf greindi frá í lok seinasta mánaðar voru regnbogatröppur sem liggja að ungmennhúsinu Rósenborg á Akureyri skemmdar. Virðist vera að um hatursglæp hafi verið að ræða. „Það er náttúrlega bara mjög sorglegt að fólk geti ekki leyft þessum regnbogalitum og fánum að vera í friði. Ég...
Landið98 prósent nemenda á móti sameiningu: „Fólk í valdastöðu fer með framtíð okkar eins og þeim sýnist“ Í gær var greint frá því að til stæði að sameina MA og VMA í einn skóla en nemendafélag MA er gríðarlega á móti slíkum áætlunum. Eins og Mannlíf greindi frá í gær tilkynnti Ásmundur Einar Daðason, barna- og menntamálaráðherra, frá áætlun þess að til stæði að sameina Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann á Akureyri í einn skóla. Skólastjórar MA...