MannlífiðMarenstoppar með heslihnetum og súkkulaði Meðfylgjandi er uppskrift að gómsætum marenstoppum með heslihnetum og súkkulaði. Er ekki tilvalið að baka þessa fyrir jólin?
MannlífiðBirta og Nonni eltu ævintýraþrána Það þarf hugrekki til að pakka saman heilli fjölskyldu og fyrirtæki og flytja til Spánar.
MannlífiðLýsingin gegnir lykilhlutverki Sandra Dís Sigurðardóttir er innanhússarkitekt og lýsingarhönnuður og ein af fáum sem er hvort tveggja hér á landi. Fasteignablaði Mannlífs lék forvitni að vita meira um áherslur og verkefni Söndru Dísar og hvort það væri ekki mikill kostur að samþætta þessi tvö starfsheiti þegar kemur að því að hanna rými.
MannlífiðFjölbreytileiki í sveitinni Fjögur systkini reka fyrirtækið Efstadal í uppsveitum Árnessýslu. Þar er til staðar myndarlegt kúa- og nautgripabú, ísbúð, veitingastaður, hótel og hestaleiga. Býlið hefur verið í eigu sömu ættarinnar í meira en þrjár aldir. Gestgjafinn var þar á ferð í sumar og hitti fyrir systkinin og kynnti sér þá starfsemi sem þar fer fram.
Mannlífið6 góð ráð við bakstur Nú nálgast jólin óðfluga og margir eru farnir að huga að jólabakstrinum. Meðfylgjandi eru nokkur góð bakstursráð sem ættu að koma sér vel.
MannlífiðAðventan á næsta leiti Fyrsti í aðventu verður 2. desember nk. og margir fylgja þeirri hefð að gera aðventukransa og kveikja á hverju kertinu af öðru eftir því sem líður á aðventuna. Hér eru nokkrir fallegir kransar úr smiðju Þórunnar Högnu sem hún gerði fyrir Hús og híbýli í fyrra.
MannlífiðKlassískir og hátíðlegir forréttir Hátíðlegt er að bjóða upp á forrétti áður en jólasteikin er borin á borðið. Hér höfum við uppskriftir að þremur klassískum forréttum úr tilraunaeldhúsi Gestgjafans.
MannlífiðVegan-kaka í glæsilegu kökublaði Vikunnar Kökublað Vikunnar sem margir bíða spenntir eftir ár hvert er komið í verslanir. Sigríður Björk Bragadóttir, framkvæmdastjóri og eigandi Salt eldhúss, er ein þeirra sem deilir uppskrift í blaðinu en hún er að eigin sögn forfallin smákökubakari. Hér bakar hún ljúffenga vegan-köku.
MannlífiðKanntu að sjóða egg? Margir hafa sterkar skoðanir á því hvernig þeir vilja hafa eggin sín soðin en vita ekki alveg hvaða suðutími er bestur.
MannlífiðSmákökur sem bráðna í munni Jólin verða seint fullkomnuð ef ekki eru smákökur í húsinu, bökunarlyktin ein og sér er til þess fallin að koma flestum í jólaskap í myrkasta skammdeginu. Meðfylgjandi er uppskrift að gómsætum Alfajores-smákökum sem bráðna í munni.
MannlífiðHaustlegir pottréttir Pottréttir eru þægilegur og góður matur. Ekki missa kjarkinn þótt hráefnislistinn í uppskriftinni sé stundum langur, eldunin er yfirleitt einföld og oft er bara notaður einn pottur. Það má líka gera stóra skammta og geyma til næsta dags því pottréttir eru jafnvel betri daginn eftir. Gott er að hafa í huga að því lengur sem pottréttir fá að malla við vægan hita, því betri verða þeir.
MannlífiðHið fullkomna „al dente“ pasta Veist þú hvað al dente þýðir? Hugtakið kemur úr ítölsku og er oftast notað fyrir eldun á pasta. Bein þýðing á íslensku væri „undir tönn“. Fyrsta þekkta notkun orðsins er í kringum 1920, og er því þekkt hugtak í eldhúsi fagmannsins. Al dente áferðinni væri best lýst þannig að pastað er soðið en ennþá með smá bit undir tönn. Það getur verið þunn lína á milli þess að vera með hrátt eða ofeldað pasta. Ágætis þumalputtaregla til að ná al dente suðu á pasta er að taka um 20% af eldunartímanum sem stendur á pakkanum. Eins þá tekur ferskt pasta aldrei lengur en 1-3 mínútur í suðu.