MannlífiðSöngkona í heillandi bakhúsi í miðbænum Sigríður Thorlacius er heillandi karakter með fallega og fíngerða rödd. Blaðamann grunaði að heimili hennar væri líka heillandi og ákvað að hringja í söngkonuna með fallegu röddina með þá von í brjósti að hún væri til í að leyfa okkur að kíkja í heimsókn. Sigríður tók vel í hugmyndina. Nokkrum dögum síðar vorum við mætt í litla bakhúsið hennar við Þórsgötu. Myndband
MannlífiðHiminninn fallegasti liturinn Heimsþekkti tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds gaf út sína fjórðu breiðskífu nú á dögunum og ber hún nafnið, re:member. Þeir sem þekkja Ólaf vita að hann er afar nægjusamur maður sem er alltaf á ferð og flugi, en við fengum þó að forvitnast um hvað væri efst á óskalistanum hans um þessar mundir.
MannlífiðSkonsur sem gleðja Breskar skonsur (scones) er fljótlegt að útbúa og gaman að baka. Það er eitthvað svo notalegt við nýbakaðar skonsur og tekur innan við 20 mínútur að skella í einföldustu gerð. Hægt er að leika sér endalaust með uppskriftirnar og bæta við því sem hugurinn girnist, t.d. súkkulaði, ávöxtum og hnetum.
MannlífiðNautahakk – þægilegt og alltaf gott Nautahakk er þægilegt hráefni að grípa til í miðri viku en einnig er hægt að nota það í sparilega rétti. Hér eru frábærar og einfaldar uppskriftir úr smiðju Gestgjafans.
MannlífiðLjúf og lokkandi formkaka Formkökur geymast vel og eru frekar einfaldar í gerð sem kannski útskýrir vinsældir þeirra hér áður fyrr. Hið glæsilega kökublað Gestgjafans sem margir hafa beðið eftir er nú komið í verslanir og því deilir Gestgjafinn hér með okkur ljúffengri og sparilegri köku. Ljúf og lokkandi formkaka 300 g sykur 120 g smjör, við stofuhita 3 egg 180 g hveiti 2...
MannlífiðHnausþykkt kökublað Gestgjafans er komið út Loksins, loksins…biðin er á enda! KÖKUBLAÐ Gestgjafans er komið út!
MannlífiðSkógareik og fiskibeinamynstur Við kíktum á fallega hannað eldhús hjá Kristínu Traustadóttur og fjölskyldu á Selfossi, en þau fengu innanhússarkitektinn Sæbjörgu Guðjónsdóttur til liðs við sig fyrr á þessu ári.
MannlífiðSvarti pítsukassinn í Borgartúni Svart, gult og risastór diskókúla mætir okkur á Black Box og þar tekur Jón Gunnar Geirdal vel á móti okkur með girnilegum flatbökum. Við spurðum kappann út í pítsuævintýrið.
MannlífiðFyllir Ásmundarsal af líffærum Sigga Heimis hönnuður stendur í stórræðum þessa dagana. Auk þess að þeytast milli landa í vinnu sinni með ungum hönnuðum fyrir IKEA og vera einstæð móðir með þrjú börn, sem hún viðurkennir að útheimti gríðarlega skipulagningu, vinnur hún með fleiri fyrirtækjum og er ofan á allt saman að undirbúa sýningu á líffærum úr gleri sem hún mun halda í samstarfi við stærsta glerframleiðanda í heimi.
MannlífiðGamli Vesturbærinn heillar Þau Helga Gvuðrún Friðriksdóttir og Orri Finnbogason taka vel á móti okkur á lifandi heimili sínu í gamla Vesturbænum. Saman reka þau skartgripaverkstæðið og verslunina Orrifinn skartgripir í sjarmerandi húsnæði við Skólavörðustíg 17a.
MannlífiðSyndsamleg súkkulaðikaka Þó svo að gaman sé að bjóða upp á margar tegundir þegar gesti ber að garði er raunveruleikinn sá að sjaldnast er tími til þess að bjóða upp á margar sortir. Ein góð og mikil terta sem dugar fyrir alla gestina er oft besta lausnin og þá er líka minni hætta á að gestgjafinn sitji uppi með mikla afganga, sem hann oftar en ekki freistast til að klára sjálfur dagana á eftir, við þekkjum þetta öll, er það ekki?