Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Söngkona í heillandi bakhúsi í miðbænum

Sigríður Thorlacius er heill­andi karakter með fal­lega og fín­gerða rödd. Blaða­mann grun­aði að heim­ili hennar væri líka heill­andi og ákvað að hringja í söng­kon­una með fal­legu rödd­ina með þá von í brjósti að hún væri til í að leyfa okkur að kíkja í heim­sókn. Sigríður tók vel í hug­mynd­ina. Nokkrum dögum síðar vorum við mætt í litla bak­húsið hennar við Þórsgötu.

Söngkona í heillandi bakhúsi í miðbænum

„Ég hef búið hér í tæp þrjú ár, ég bjó áður á Grett­is­götu en ég ólst upp í Hlíðunum. Flutti svo í Laug­ar­nes­hverfið og bjó þar alla mína skóla­göngu þangað til ég flutti að heiman. Ég ákvað að fara fyrst til Parísar með vin­konu minni í hálft ár sem var æðis­legt, við vorum bara að læra frönsku, drekka kaffi og rauð­vín og njóta lífs­ins. Ég leigði svo í nokkur ár og keypti síðan mína fyrstu íbúð 2008. Hún var 35 fer­metrar og við Grett­is­götu. Svo flutti ég hingað í heila 50 fer­metra og fyrir mér var þessi íbúð mjög stór því ég var að koma úr svo pínu­litlu,“ segir hún hress í bragði og sýnir okkur litlu íbúð­ina sína. „Mér líður alveg brjál­æð­is­lega vel hérna og vil ekki hafa meira pláss, ég þarf ekki meira pláss og ég myndi bara safna að mér meira dóti ef ég byggi í stærra hús­næði því ég er svo mik­ill safn­ari í mér,“ segir hún sátt við sitt krútt­lega bak­hús í mið­bænum.

Svo flutti ég hingað í heila 50 fer­metra og fyrir mér var þessi íbúð mjög stór því ég var að koma úr svo pínu­litlu.
Stemmn­ingin á heim­ili Sigríðar er svo­lítið frönsk.

Syngur ekki mikið í hljóðbæra bakhúsinu

Syngur þú mikið þegar þú ert ein heima? „Nei, ekki mikið hérna heima því það býr stelpa á hæð­inni fyrir ofan mig og þetta hús er gam­alt og mjög hljóð­bært. Ég heyri í kis­unum hennar niður til mín og vatnið renna sem mér finnst afskap­lega nota­legt en ég verð að sýna til­lits­semi í svona hljóð­bæru húsi og er því ekki mikið að góla,“ svarar hún hlæj­andi. Heiðdís ljós­mynd­ari skýtur þá inn í umræð­una, þar sem hún stendur í stof­unni með mynda­vél­ina, að það muni nú örugg­lega eng­inn kvarta yfir söng frá sjálfri söngdívunni Sigríði Thorlacius, það þætti bara plús að búa fyrir ofan hana og allir við­staddir gestir eru sam­mála því.  „Stundum nota ég heim­ilið þegar ég þarf að æfa mig aðeins með ein­hverjum, þá æfum við okkur hérna í eld­hús­inu. En ann­ars æfi ég mig ekki mikið ein, ég syng nán­ast á hverjum ein­asta degi og þannig held ég mér í æfingu.“

Róm­an­tískur stíll ein­kennir svefn­her­bergið.

Var aug­ljóst frá því að þú varst krakki að þú myndir feta þennan veg; ætl­aðir þú þér alltaf að verða söng­kona? „Nei, það var alls ekki aug­ljóst, ég var svo feimin sem barn og til baka. Ég fór svo í söng­nám, byrj­aði í klass­ísku söng­námi þegar ég var að byrja í mennta­skóla og svo var ég í Hamra­hlíð­ar­kórnum í tíu ár og það var, má segja, minn stóri skóli. Þegar ég fór til Parísar hætti ég í klass­íska söng­nám­inu og fór að læra jass þegar ég kom til baka og kynnt­ist þá fólki í brans­anum og þannig eig­in­lega gerð­ist það að ég varð söng­kona,“ svarar hún hóg­vær og kveikir á kert­unum á eld­hús­borð­inu.

Baðkerið griðastaður söngkonunnar

Sigríður skellir sér í bað þegar hún þarf að núll­stilla sig.

Eldhúsið í litlu íbúð­inni hennar Sigríðar er ein­stak­lega nota­legt og inn­rétt­ingin í meira lagi óhefð­bundin en hún segir að svona hafi eld­húsið verið þegar hún keypti íbúð­ina. Gam­al­dags og sjar­mer­andi og hæfir hús­inu vel. Og þegar blaða­maður spyr hana hvar í íbúð­inni henni líði best segir hún að eld­húsið sé hennar staður: „Mér líður mjög vel hérna við eld­hús­borðið og þegar ég fæ gesti sitjum við oft­ast í eld­hús­inu en mér finnst líka rosa­lega gott að liggja í baði, þar slaka ég á og stundum fer ég í bað tvisvar á dag til að slaka á. Ástæðan fyrir því að ég keypti þessa íbúð var bað­kerið því ég var bara með sturtu þar sem ég bjó áður,“ segir hún og við kíkjum inn á bað­her­bergið þar sem fal­legt, frístand­andi bað­ker, grá­mál­aðir pan­el­veggir og róm­an­tískar lugtir í glugga­kistu skapa nota­legt and­rúms­loft.

Stemn­ingin á heim­il­inu er örlítið frönsk og þegar Sigríður er spurð út í það segir hún okkur að París sé upp­á­halds­borgin hennar, þar bjó hún á sínum tíma og drakk í sig franska menn­ingu. Eftir þá dvöl hefur hún reynt að kom­ast til Parísar helst á hverju ári, að minnsta kosti annað hvert ár. „Ég er einmitt á leið­inni þangað núna í sept­em­ber,“ segir hún bros­andi og blaða­maður kemst að því að upp­á­halds­lagið hennar er gam­alt franskt lag sem hún hefur sungið við mik­il­væg tíma­mót í söng­lífi sínu.

Gulir tónar, lifandi blóm og kaffiilmur

Heimili Sigríðar er lit­ríkt og lif­andi.

Íbúðin er í hjarta borg­ar­innar en hún er samt alveg laus og við ys og þys mann­lífs­ins og töfra­orðið til að ná þessu rólega and­rúms­lofti er bak­hús. „Ég verð ekk­ert vör við bíla­um­ferð eða manna­ferðir, það á aldrei neinn leið fram hjá hús­inu mínu. Það breytir öllu að vera í bak­húsi, mér líður bara eins og ég sé ein í heim­inum hérna. Ég er ekki viss um að ég myndi velja að búa í miðbæ Reykja­víkur nema bara af því að hér get ég verið alveg í friði. Það finnst mér geggjað. Mér finnst líka æðis­legt að búa í göngu­færi við flest því ég er ekki á bíl. Ég er bara ein og hjóla og geng eig­in­lega allt og finnst það mjög þægi­legt. Það er minn lífs­stíll.“

Ég er ekki viss um að ég myndi velja að búa í miðbæ Reykja­víkur nema bara af því að hér get ég verið alveg í friði.
Sigríði þykir nauð­syn­legt að eiga góða kaffi­vél.

Það fer ekki fram hjá okkur að bjartir litir heilla söng­kon­una og lif­andi blóm, og hún segir okkur að það sé einmitt það sem hún freist­ast helst til að kaupa sér; afskorin blóm. „Ég elska blóm og ég er nán­ast alltaf með lif­andi blóm á eld­hús­borð­inu. Mér finnst svo nota­legt að koma heim og það er góð lykt sem tekur á móti mér,“ segir hún bros­andi.

Heimilið er lit­ríkt og gulir tónar áber­andi. „Ég vil gjarnan hafa liti í kringum mig og gæti aldrei búið í svart/hvítu umhverfi. Ég held rosa­lega mikið upp á stóra mál­verkið við end­ann á sóf­anum en systir mín sem var mér mjög kær mál­aði það og hún mál­aði líka hitt stóra verkið í stof­unni. Kannski ég velji ómeð­vitað gula tóna inn á heim­ilið út frá mál­verk­unum hennar. Mér finnst aðal­málið að hafa nota­legt í kringum mig og að eiga góða kaffi­vél,“ segir Sigríður og fær sér sopa af ilm­andi kaffi. Við kveðjum söng­kon­una með fal­legu rödd­ina og höldum út í helg­ina sem er handan við hornið.

Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni