Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Eitís stíll hjá Brynju og Guðjóni

Húsið sem varð algjört ástríðu­verk­efni.

Eitís stíll hjá Brynju og Guðjóni

Brynja Björk Garð­ars­dóttir mark­aðs­stjóri og Guðjón Jónsson aug­lýs­inga­leik­stjóri búa í fal­legu palla­húsi í Foss­vog­inum. Þau hafa bæði mik­inn áhuga á hönnun og arki­tektúr, heill­ast mjög af fal­legum ljósum og safna hús­gögnum sem heilla þau á mörk­uðum frekar en í versl­unum. Það er óhætt að segja að Brynja og Guðjón búi yfir óbilandi fram­kvæmda­gleði því þau hafa í sam­ein­ingu gert upp heil fjögur hús fyrir fer­tugt! Við heim­sóttum þessi dug­legu og mjög svo hressu hjón í Hjalla­land, rað­hús sem þau keyptu í lok árs 2014. Stíllinn er svo­lítið ,,Eitís“, bleikir tónar, króm og pálma­tré sem stendur í stof­unni.

Ljósin yfir stig­anum niður eru hönnun Tom Dixon.

Hvenær fluttuð þið inn og hvers vegna völduð þið þetta hús? „Við höfðum haft auga­stað á þessu hverfi lengi en ég ólst upp hérna í Kjal­ar­land­inu fyrstu árin þar sem ég bjó hjá ömmu minni og afa sem voru frum­byggjar hér í hverf­inu; fyrst í Kvista­landi og svo Kjal­ar­landi. Við skoð­uðum nokkur hús hérna en það var ekki mikið fram­boð og margir sem kepp­ast um hverja eign. Svo sáum við þetta hús og féllum alveg fyrir skipu­lag­inu og þessum fal­lega seventís-hillu­vegg í stof­unni. Við höfum alltaf verið hrifin af pallarað­húsum og Guðjón ólst upp í einu slíku í Breið­holt­inu. Í svona skipu­lagi geta fjöl­skyldu­með­limir dundað sér hver í sínu rými en samt í svo mik­illi nálægð. Við kol­féllum því fyrir þessu húsi og fluttum inn korter fyrir jól árið 2014.“

Hvernig var húsið þegar þið tókuð við því? „Húsið var vel skipu­lagt en það var dálítið lokað í kjall­ar­anum þar sem við vildum hafa fjöl­skyldu­rými. Þar var eld­hús og einnig bað­her­bergi sem voru ekki í okkar stíl  og við ákváðum að fara strax í tölu­verðar fram­kvæmdir í kjall­ar­anum. Við ákváðum líka að fara strax í að laga garð­inn því okkur lang­aði  að gera hann þannig að við gætum notið þess að vera úti. Við vorum með heitan pott þar sem við bjuggum síð­ast og sökn­uðum þess mjög að hafa ekki pott, það var því með okkar fyrstu verkum að skipt­ast á að moka risa­stóra holu úti í garði til að koma fyrir heitum potti.“

Borð­stofu­borðið er frá Muuto, á gólf­inu er yfir­borðs­efni sem heitir Pandomo og er frá Harð­við­ar­vali. Borð­lamp­inn ofan á skenknum er gam­all Bumling-lampi frá Atelje Lyktan og stand­lamp­arnir eru Pant­hella eftir Verner Panton.
„Í svona skipu­lagi geta fjöl­skyldu­með­limir dundað sér hver í sínu rými en samt í svo mik­illi nálægð. Við kol­féllum því fyrir þessu húsi og fluttum inn korter fyrir jól árið 2014.“

Voruð þið strax með ákveðnar hug­myndir varð­andi hvernig þið vilduð breyta? „Já, við vorum til að mynda strax ákveðin í að taka par­k­etið á aðal­hæð­inni af því þar er fal­legur við­ar­panel í loft­inu sem má segja að hafi verið að kepp­ast við eik­arpar­ketið. Sömu­leiðis höfðum við strax hug­myndir um annað skipu­lag á báðum bað­her­bergj­unum en aðal­bað­her­bergið er niðri og svo er gesta­bað­her­bergi á mið­hæð­inni. Við vorum líka með hug­myndir varð­andi eld­húsið, hvernig við vildum breyta því, þannig að við vorum með fullt af hug­myndum strax í upp­hafi.“

„Við erum virki­lega ánægð með bað­her­bergin, þau tók­ust vel,“ segja Brynja og Guðjón.

Hver var stærsta áskor­unin í fram­kvæmd­unum? Að búa inni á heim­il­inu meðan á fram­kvæmdum stóð. Við mælum ekki með því, því það tekur á taug­arnar. Við fórum að vísu til London á meðan pandomo-efnið var sett á gólfin hjá okkur en að öðru leyti vorum við bara hérna saman í skítnum, mjög hressandi! Svo voru þessar fram­kvæmdir í raun erf­ið­ari en aðrar sem við höfum farið út í því okkur þótti oft ein­stak­lega erfitt að velja hvaða efni við vildum. Þetta hús varð algjört ástríðu­verk­efni hjá okkur og við vorum oft heil­lengi að ræða ein­hver algjör smá­at­riði sem okkur finnst samt skipta svo miklu máli varð­andi heild­ar­mynd­ina.“

Yfir eld­hús­borð­inu hangir Nova-ljósið eftir Jo Hammer­borg.

Er fram­kvæmdum lokið? „Okkur langar að end­ur­nýja gól­f­efnin á neðri hæð­unum þegar við höfum tíma og ég er strax farin að pæla í öðrum litum á vegg­ina hjá okkur. Ég er nokkuð viss um að við finnum okkur alltaf eitt­hvað til að dytta að.

„Þetta hús varð algjört ástríðu­verk­efni hjá okkur og við vorum oft heil­lengi að ræða ein­hver algjör smá­at­riði sem okkur finnst samt skipta svo miklu máli varð­andi heild­ar­mynd­ina.“

Hvað eru þið ánægð­ust með eftir allar fram­kvæmd­irnar? „Við erum virki­lega ánægð með bað­her­bergin, þau tók­ust vel. Það var dálít­ill haus­verkur að teikna þau upp þar sem þau eru bæði mjög lítil en á end­anum var hver fer­metri vel nýttur. Við fengum þá hug­mynd að láta sér­smíða spegla­vegg á öðru þeirra sem stækkar það mikið og er að auki til mik­illar prýði.“

Er þetta fram­tíð­ar­hús­næði? „Við höfum komið okkur vel fyrir hérna en það er aldrei að vita hvað ger­ist þegar fram­kvæmda­kláð­inn kemur yfir okkur.“

Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni