MannlífiðBleikt og rokkað hjá ungu pari í Vogunum Parið Stella Björt Bergmann Gunnarsdóttir og Alexander Fannar Kristjánsson búa í skemmtilegri íbúð í Vogahverfinu. Bleiki liturinn er áberandi á heimilinu.
MannlífiðSænska hönnunarteymið Broberg & Ridderstråle færir út í kvíarnar Broberg & Ridderstråle er teymi í hönnun og arkitektúr sem stofnað var af Mats Broberg og Johan Ridderstråle. Þeir eru menntaðir innanhússarkitektar og hönnuðir og útskrifuðust báðir með láði frá Konstfack-listaháskólanum í Stokkhólmi árið 2006. Vinnustofa þeirra er í Svíþjóð en verk þeirra hafa farið víða og verið sýnd meðal annars í London, Tókýó og Mílanó.
MannlífiðAsíureisa í súpuskál Fátt er betra en heit og rjúkandi asísk núðlusúpa en slíkur matur er bæði nærandi fyrir líkama og sál, margar asískar súpur eru sérlega hollar og vel samsettar og í raun fullkomin máltíð.
MannlífiðSögufrægt hús á Akureyri glætt nýju lífi Gamla Apótekið sem stendur við Aðalstræti 4 er eitt glæsilegasta hús Akureyrar og stendur það ofar en flest önnur hús í nágrenninu. Grunnflötur hússins er 135 fermetrar og er það byggt í dönskum timburhúsastíl. Húsið á sér mikla forsögu.
MannlífiðNotalegast í baði með nóg af kertum Innanhússhönnuðurinn Karítas Sveinsdóttur þekkja flestir sem annan helming einnar flottustu hönnunarstofu landsins HAF STUDIO en hana rekur hún ásamt eiginmanni sínum, vöruhönnuðinum Hafsteini Júlíussyni. Þau hjónin reka líka verslunina HAF STORE sem staðsett verður á Geirsgötu 7. Hús & Híbýli kíkti í heimsókn og Karítas sagði frá nokkrum uppáhaldshlutum.
MannlífiðEinstakt hús eftir Gunnar Hansson arkitekt í nýjasta Hús og híbýli Á friðsælli sjávarlóð á Álftanesi stendur fallegt hús sem teiknað var af Gunnari Hanssyni arkitekt. Núverandi eigendur féllu fyrir byggingarstílnum og þeirri hugsun sem lögð var í smáatriðin. Einnig þótti þeim sérstakt að finna fallega hannað hús með miklu náttúruútsýni innan borgarmarka. Gróðurhúsið hafði líka sitt að segja, enda eru eigendurnir mikið áhugafólk um garðyrkju.
MannlífiðÚtlönd í Þingholtunum Í 114 ára gömlu bárujárnsklæddu timburhúsi í Þingholtunum býr Eva Þrastardóttir. Hún er borgarhönnuður að mennt og starfar hjá einni stærstu verkfræðistofu landsins. Hún bjó um sex ára skeið í Danmörku, bæði á Jótlandi og Sjálandi, þar sem hún var í námi. Íbúðin ber þess merki að Eva hefur búið erlendis og minnir hún um margt á Kaupmannahöfn að mati blaðamanns. Húsið sjálft er í raun tvö hús sem byggð voru samsíða. Annar hluti hússins er byggður árið 1900 en hinn árið 1904 og geymir það sex íbúðir í heildina.
MannlífiðHnallþóra – alltaf góð Á mannfögnuðum á góð hnallþóra ávallt vel við. Hverskyns ber eru frískandi hráefni á kökur og skemmtileg til skreytinga. Svo er bara að laga gott kaffi og bjóða vinum og ættingjum heim.
MannlífiðFljótlegir eftirréttir Sumum vex í augum að búa til eftirrétti en það þarf alls ekki að vera flókið eða tímafrekt. Hér eru einfaldar uppskriftir þar sem ávextir og ber eru í aðalhlutverki. Gott er að bera fram svolítinn rjóma eða ís á eftirréttina og þá er kominn fullkominn endir á góðri máltíð.
MannlífiðDásamlegur bleikjubrauðréttur Flestir eru alveg vitlausir í brauðrétti og klárast þeir yfirleitt alltaf fyrst í veislum. Það er líka tilvalið að hafa slíka rétti í matinn fyrir fjölskylduna. Hér bjóðum við upp á brauðrétt með fiski sem aldeilis hentar vel sem kvöldmatur. Hér er á ferðinni dásamlegu brauðréttur sem kom sérstaklega vel út í tilraunaeldhúsi Gestgjafans. Það þarf smá undirbúning og fyrirhöfn til að útbúa hann en er alveg þess virði. Tilvalið er að nota afganga af bleikju eða laxi frá kvöldinu áður í réttinn.
MannlífiðFramandi og ferskur hönnuður Norðmaðurinn Hallgeir Homstvedt er óhræddur við að fara nýjar leiðir í hönnun sinni.
MannlífiðSkemmtilegur fróðleikur um súkkulaði Kakóbaunin er upprunin í Mið- og Suður-Ameríku og talið er að fólk þar hafi byrjað að rækta kakóbaunir um 1250 f.Kr. og jafnvel fyrr. Kakó var hluti af menningu Maya og Azteka þar sem kakódrykkir voru hluti af trúarlegum athöfnum. Aztekar þótti baunin það mikilvæg að hún var notuð sem gjaldmiðill í viðskiptum. Kakóplöntunni er oft skipt niður í tvær...