Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sögufrægt hús á Akureyri glætt nýju lífi

Gamla Apótekið sem stendur við Aðal­stræti 4 er eitt glæsi­leg­asta hús Akur­eyrar og stendur það ofar en flest önnur hús í nágrenn­inu. Grunn­flötur húss­ins er 135 fer­metrar og er það byggt í dönskum timb­ur­húsa­stíl. Húsið á sér mikla for­sögu.

Sögufrægt hús á Akureyri glætt nýju lífi

Gamla Apótekið, eitt glæsi­leg­asta hús Akur­eyrar, var hannað og byggt árið 1859 af Jóni Chr. Steph­áns­syni, sem hafði varið tíma í Danmörku við að læra list­ina við bygg­ingu timb­ur­húsa. Eftir Dan­merk­ur­dvöl­ina lá leið hans norður á land þar sem apó­tek­ar­inn á Akureyri fól honum það verk að byggja nýstár­legt hús sem væri ætlað að hýsa apó­tek bæj­ar­ins. Á meðan apó­tekið var starf­rækt bjó lyfja­fræð­ing­ur­inn Jóhann Thoraren­sen á efri hæð þess ásamt fjöl­skyldu sinni, en í dag hefur þetta reisu­lega hús við Aðal­stræti verið glætt nýju lífi.

Gamla Apótekið hefur, eins og fjöl­mörg önnur sögu­fræg timb­ur­hús á Íslandi, gengið í gegnum ýmis­legt á síð­ari hluta 20. aldar og var það til að mynda múr­húðað, sem olli því að það fór smám saman að fúna og síga. Árið 2006 hlaut bygg­ingin friðun frá Minja­stofnun, sem í kjöl­farið festi kaup á henni og hófst þá gríð­ar­mikil end­ur­bygg­ing. Eftir að end­ur­nýj­unin hófst tók hún betri hluta tveggja ára og var húsið meðal ann­ars fært tíma­bundið á hafn­ar­svæði Akur­eyrar meðan nýr grunnur var steyptur. Síðla sum­ars 2017 lauk fram­kvæmdum í hús­inu og var það til­búið að gegna nýju hlut­verki.

Rík áhersla á lestur og samveru

Í dag starf­rækir hönn­uð­ur­inn Sigríður Sig­ur­jóns­dóttir og fjöl­skylda hennar eins konar gisti­hús í Gamla Apó­tek­inu sem ber nafnið Place to Read eða Staður til lest­urs, en fjöl­skyldan keypti húsið af Minja­vernd eftir end­ur­bætur þess. Húsið er hugsað sem griða­staður, full­kom­inn til afslöpp­unar í fal­legu umhverfi þar sem stutt er í bæði menn­ingu og nátt­úru. Rík áhersla er á lestur og er afar veg­legt og fal­legt bóka­safn í einu her­bergi húss­ins sem gestir eru hvattir til að nýta sér. „Húsið er sér­stak­lega inn­réttað með það í huga að þar sé gott að vera og lesa og höfum við fjöl­skyldan fyllt bóka­safnið með okkar upp­á­halds­skáld­sögum, gjafa­bókum, barna­bókum og tíma­ritum.“

Húsið hefur verið hólfað niður í þrjár íbúðir, sú stærsta er á fyrstu hæð og tvær smærri eru á efri hæð­inni. Hver íbúð er búin arni og fyrir utan húsið er eim­bað, heitur pottur og sturta undir berum himni.

Hvaðan kvikn­aði hug­myndin að Place to Read? „Hug­myndin hafði blundað í mér lengi. Við Halldór vitum fátt betra en að setj­ast niður með góða bók og gefa okkur tíma til að lesa og svo höfum við allt of mik­inn áhuga á húsum. Árið 2011 var Ísland heið­urs­gestur á bók­mennta­há­tíð­inni í Frank­furt og á sama tíma jókst ferða­manna­straumur til lands­ins svo um munar. Engin önnur þjóð les jafn­mikið eða gefur út jafn­mikið af bókum miðað við fólks­fjölda og Íslend­ingar. Bók­mennt­irnar eru jú okkar helsti menn­ing­ar­arfur. Lestur og bók­menntir eru rót­grónar í land og þjóð. Það er svo aug­ljóst að byggja á þessu. Í raun gæti Ísland mark­aðs­sett sig sem land til að koma og lesa bækur. Ekkert annað land hefur gert það. Vont veður og rign­ing er plús. Í öllu áreit­inu sem fylgir tækni­væð­ing­unni er það orð­inn alger lúxus að setj­ast niður og lesa bók. Okkur lang­aði að skapa stað þar sem maður yrði hrein­lega feg­inn þegar veðrið er vont og gæti notið þess að vera inni í dásam­legu húsi og lesið bækur.“

„Í öllu áreit­inu sem fylgir tækni­væð­ing­unni er það orð­inn alger lúxus að setj­ast niður og lesa bók.“

Hvert sóttuð þið inn­blástur þegar kom að því að inn­rétta og velja hús­gögn í húsið?

„Við sóttum inn­blástur í húsið sjálft. Við reyndum að finna hluti og liti sem áttu heima í hús­inu. Sumir hlut­irnir fund­ust í hús­inu, eins og gamlar flöskur úr apó­tek­inu sem upp­runa­lega var rekið í hús­inu. Gamlar dásam­lega fal­legar hurðir sem fund­ust inni í vegg og við notum sem stofu­borð. Vinnu­borð sem smið­irnir hjá Minja­vernd smíð­uðu og not­uðu við störf sín eru nú eyja í eld­hús­inu og vinnu­borð í þvotta­hús­inu. Í hús­inu eru verk eftir marga íslenska hönn­uði og mynd­list­ar­menn. Rúmin eru íslensk og fram­leidd af RB rúmum og heiti pott­ur­inn er einnig íslensk fram­leiðsla frá Trefjum og er hvoru tveggja frá Hafn­ar­firði. Eina sem var snúið var að finna fal­lega svefn­sófa sem pössuðu í húsið en þeir voru að lokum pant­aðir frá banda­rísku fyr­ir­tæki sem heitir Restoration Hardware. Þetta sner­ist um að hlusta á húsið. Okkur þótti skemmti­leg­ast að velja bæk­urnar en hver ein­asta bók er sér­stak­lega valin. Þetta eru bækur sem við höfum lesið og höldum upp á og eins bækur sem okkur langar til að lesa. Flestar bæk­urnar eru á ensku en þó ein­hverjar á íslensku, þýsku og frönsku.“

Texti / Elín Bríta
Myndir / Auðunn Níelsson og Íris Ann Sig­urð­ar­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni