MannlífiðÚt fyrir miðborg Dublin Sjarmerandi og auðveldar dagsferðir á fallega áfangastaði rétt fyrir utan Dublin.
MannlífiðÞorskur í sítrónu- og smjörsósu Fljótlegur og bragðgóður réttur sem er tilvalinn fyrir önnum kafið fólk.
MannlífiðBlóðappelsínu-spritz Frískandi kokteill þar sem blandaður er saman nýkreistur blóðappelsínusafi, prosecco og kryddaður sætur vermouth. Ef blóðappelsínur eru ekki fáanlegur má nota bleikan greipaldinsafa í staðinn.
MannlífiðFagurfræðilega fullkomin samsuða í 100 ára timburhúsi Inga Elín myndlistarmaður og Þórarinn gítarleikari heimsótt. Það eru ansi mörg ár síðan því var fyrst hvíslað að blaðakonu Húsa og híbýla að hönnuðurinn og myndlistamaðurinn Inga Elín Kristinsdóttir hefði einstaklega næmt auga fyrir fallegri hönnun og sérstakt lag á að hnjóta um heimsþekktar hönnunarperlur á nytjamörkuðum hér heima sem og erlendis. Heimili Ingu Elínar og eiginmanns hennar, Þórarins Sigurbergssonar...
MannlífiðBláskel í stuttu máli Bláskel er einnig þekkt undir heitunum krákuskel eða kræklingur. Vitað er að maðurinn hefur borðað bláskel í þúsundir ára.
MannlífiðBleikt og freistandi rauðrófu-risotto Rauðrófur hafa verið vinsælar hér á landi síðustu ár enda eru þær bragðgóðar, fallegar á litinn og mjög hollar. Þær innihalda sterkt rautt litarefni sem gerir matinn sem þær blandast við bara fallegri.
MannlífiðEplabaka með möndlukremi Þessi fallega eplabaka sómir sér vel á hvaða kökuborði sem er og er skemmtileg afþreying þegar tíminn er nægur og hægt að dunda sér við helgarbaksturinn.
MannlífiðGræn linsubaunaídýfa Linsubaunir hafa ávallt verið ódýr matur og héldu lífi í bændum og fátækari stéttum fólks í Evrópu. Þær eru einstaklega næringargóðar, orkuríkar og góð uppspretta trefja, fólats og járns. Ólíkt þurrkuðum baunum þarf ekki að láta linsubaunirnar liggja í bleyti. Gott er samt að skola þær fyrst og róta í gegnum þær ef það skyldu leynast smásteinar í pokanum.
MannlífiðÆðisleg íbúð við Lækinn í Hafnarfirði Karitas Möller arkitekt. Karitas Möller arkitekt og Kristinn Már Reynisson lögfræðingur fluttu á sérhæð við Lækinn í Hafnarfirði fyrir tæpum tveimur árum og hafa gert hana upp á einstaklega fallegan og sjarmerandi hátt. Þegar Hús og híbýli kíkti í heimsókn var Karitas ein heima og búin að vera á haus að gera fínt. „Ég er búin að gera jólahreingerninguna í...
MannlífiðFyllt lambalæri með kryddjurtum og parmesanosti Það er fátt notalegra um haustlegar helgar en að bjóða upp á gott íslenskt lambakjöt ásamt krydduðum kartöflum. Lambið má fylla og binda deginum áður og geyma í kæli. Látið kjötið ná stofuhita áður en því er stungið inn í ofn.
MannlífiðReykjavík Meat, nýtt og spennandi veitingahús Reykjavík Meat er glænýr og áhugaverður staður á Frakkastíg 8 en þar er, eins og nafnið gefur til kynna, aðaláherslan á góðar og verulega safaríkar steikur. Rekstraraðilarnir eru þeir sömu og eiga Mathús Garðabæjar en það er Víðir Erlingsson yfirkokkurinn sem heldur um taumana í eldhúsinu. Maturinn er eldaður og grillaður á kolum sem gefur matnum einstaklega gott bragð. Hráefnið...
MannlífiðMargrét Stefánsdóttir lét draum rætast Leið blaðamanns og ljósmyndara lá á Álftanes einn fallegan föstudag og þar sem við vorum að bera ljósmyndagræjurnar úr bílskottinu stálu nokkur hross sem virtust vera í bakgarði hússins athygli okkar og einnig dásamlegt útsýni sem náði eins langt og augað eygði. Þetta lofaði góðu; nýmóðins hús í sveitaumhverfi. Við hringdum bjöllunni og Margrét Stefánsdóttir mætti léttfætt til dyra og bauð okkur í bæinn.