Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Bleikt og rokkað hjá ungu pari í Vogunum

Parið Stella Björt Bergmann Gunn­ars­dóttir og Alex­ander Fannar Krist­jáns­son búa í skemmti­legri íbúð í Voga­hverf­inu. Bleiki lit­ur­inn er áber­andi á heim­il­inu.

Bleikt og rokkað hjá ungu pari í Vogunum

Þau Stella Björt Bergmann Gunn­ars­dóttir og Alex­ander Fannar Krist­jáns­son búa í Voga­hverf­inu í fal­legu húsi byggðu árið 1950 ásamt tæp­lega sex mán­aða syni sínum, honum Vésteini Flóka. Einungis eru um sjö mán­uðir síðan parið flutti og er ekki annað hægt að segja en að þau séu búin að koma sér vel fyrir, en þau ákváðu að koma sér af leigu­mark­aðnum þegar þau vissu að fjöl­skyldan myndi stækka. Stella Björt starfar sem versl­un­ar­stjóri hjá Spútnik í Kringl­unni og Alex­ander Fannar er tón­list­ar­maður, betur þekktur undir nafn­inu Black Pox.

Skipulag hússins og hverfið heillaði

Íbúðin er á tveimur hæðum og á þeirri efri eru tvær bjartar stofur, ásamt eld­húsi og vinnu­að­stöðu Alex­and­ers og neðri hæðin geymir svefn­her­bergi, bað og þvotta­hús.

Hvernig líkar ykkur hér í Voga­hverf­inu? „Þetta er mjög næs hverfi en ég ólst upp hérna og bjó í tutt­ugu ár, hér er rosa­lega rólegt en á sama tíma er þetta hverfi mjög mið­svæðis,“ svarar Stella.

Hvað heill­aði við þetta hús? „Við erum mjög hrifin af hverf­inu og þessum smá­at­riðum í íbúð­inni, skraut­list­unum og rósett­unum. Svo er rosa­lega þægi­legt að vera á tveimur hæðum og hafa svefn­her­bergin og bað­her­bergið niðri, en hann Vésteinn er svo­lítið svefn­styggur svo það er snilld að geta verið uppi á kvöldin og þurfa ekki að hvísla.“

Bleikur í uppáhaldi

Hvernig stíl eruð þið með? „Við Alex erum rosa­lega ólík þegar kemur að stíl heim­il­is­ins, þetta er búið að vera mjög langt ferli að ná góðum milli­vegi hvað varðar stíl­inn hér heima. Axel vill hafa allt frekar ein­falt og meira út í industrial- stíl, meðan ég er alveg í hina átt­ina.“ Stella segir bleika velúr­sófann úr ILVU vera í miklu upp­á­haldi en þau festu kaup á honum nýlega. „Mig hefur langað í bleikan sófa alveg síðan ég var 10 ára og loks­ins hefur sá draumur ræst!“ Þau segj­ast afar lítið snobbuð hvað varðar val á hús­gögnum og kaupa bara hluti inn á heim­ilið sem þeim þykir fal­legir og er nokkurn veg­inn sama hvaðan þeir koma.

„Mig hefur langað í bleikan sófa alveg síðan ég var 10 ára og loks­ins hefur sá draumur ræst!“

Aðspurð um hvaða hönn­uður sé í upp­á­haldi nefnir Stella fata­hönn­uð­inn Hildi Yeoman en hún seg­ist þó dug­leg­ust að kaupa vin­tage-föt og sé mjög hrifin af end­ur­nýt­ingu.

Safnið þið ein­hverju? „Já, bleikum hlutum,“ segir Stella og hlær, „ann­ars söfnum við minja­gripum úr ferða­lögum og stillum þeim upp á hillu hér niðri, en við elskum að ferð­ast.“ Við kveðjum unga parið í Vogunum að sinni og þökkum þeim fyrir kaffið og heim­boðið.

Texti / Elín Bríta
Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni