Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Útlönd í Þingholtunum

Í 114 ára gömlu báru­járns­klæddu timb­ur­húsi í Þing­holt­unum býr Eva Þrast­ar­dóttir. Hún er borg­ar­hönn­uður að mennt og starfar hjá einni stærstu verk­fræði­stofu lands­ins. Hún bjó um sex ára skeið í Danmörku, bæði á Jótlandi og Sjálandi, þar sem hún var í námi. Íbúðin ber þess merki að Eva hefur búið erlendis og minnir hún um margt á Kaup­manna­höfn að mati blaða­manns. Húsið sjálft er í raun tvö hús sem byggð voru sam­síða. Annar hluti húss­ins er byggður árið 1900 en hinn árið 1904 og geymir það sex íbúðir í heild­ina.

Útlönd í Þingholtunum

Eva er alin upp í Hafn­ar­firði þar sem fjöl­skyldan hennar býr enn í dag en hún segir að eftir búset­una í Danmörku hafi hana heldur langað að búa í mið­bænum. Hún hafi heill­ast mikið af gömlum húsum í Danmörku og séð í þeim sjar­mann. Þá nefnir hún loft­bit­ana, gam­al­dags glugga, brakið í gólf­unum í gömlu hús­unum sem svo sann­ar­lega hafa lifað með fólk­inu sem í þeim bjó.

Mann­lífið heillar hana einnig mikið og hún segir að sér finn­ist gott að keyra í átt að mann­líf­inu í mið­bænum að vinnu­degi loknum en Eva vinnur í útjaðri Reykja­víkur. Íbúðin sjálf sem er 60 fm að stærð hefur tekið tölu­verðum breyt­ingum eftir að Eva festi kaup á henni fyrir tveimur árum síðan. Hún fór af stað í fram­kvæmdir með ákveðna sýn í huga. Gólfin voru tekin í gegn, pússuð upp og hvíttuð en gólfin eru upp­runa­leg og jafn­gömul hús­inu og fannst Evu því mik­il­vægt að halda þeim enda vildi hún að allt það upp­runa­lega sem hægt væri að nýta fengi að vera áfram.

Pan­ell­inn var mál­aður en áður hafði hann verið við­ar­lit­aður sem minnti um margt á sum­ar­hús eins og við Íslend­ingar þekkjum þau. Eld­hús­inu var einnig breytt en Eva fjar­lægði efri skápa sem voru komnir til ára sinna en hana hafði alltaf dreymt um opið eld­hús eins og hún hafði haft á einum stað í Danmörku þar sem hún bjó um tíma. Gamall skor­steinn setur skemmti­legan svip á eld­húsið en hefur fengið að halda sér þrátt fyrir að vera ekki lengur í notkun enda hafa aðrar leiðir til hús­hit­unar tekið yfir. Því má segja að hann sé fal­legur minn­is­varði um gamla tíma. Eva seg­ist hafa verið afar heppin í fram­kvæmd­unum en faðir hennar og mágur hafi veitt henni mikla og góða aðstoð.

Upplifun sem minnir á útlönd

Stórir og fal­legir gluggar umlykja íbúð­ina og er útsýni til allra átta. Birtan í íbúð­inni er óvið­jafn­an­leg og mann­lífið allt um kring. Það er öðru­vísi að upp­lifa borg­ina úr hærri hæð en hinn gang­andi veg­far­andi. Mörg hús­anna í mið­bænum eru áhuga­verð­ust að ofan­verðu þar sem stórir gluggar eru ein­kenn­andi og fal­legir þak­k­antar. Það vekur upp mikla útlandastemn­ingu hjá blaða­manni að horfa út um glugg­ana hjá Evu en íbúðin sjálf ýtir undir þá upp­lifun.

Eva hefur gaman af að blanda saman nýju og gömlu og má í íbúð­inni sjá stól með kar­rí­gulu áklæði sem langafi hennar átti en stóll­inn hefur fylgt Evu frá því að hún var 17 ára og ferð­ast með henni yfir höfin. Því má segja að stól­inn hafi upp­lifað tím­ana tvenna sem gerir hann fal­legri fyrir vikið. Gömul tekk­hús­gögn í bland við ný ein­kenna stíl­inn í íbúð­inni en Evu hefur tek­ist afar vel til að blanda þeim saman svo úr verður fal­leg heild með per­sónu­legu yfir­bragði. Plöntur eru einnig eitt af áhuga­málum Evu sem gefa heim­il­inu nota­legt yfir­bragð.

Það brakar í gólf­inu í hverju skrefi á leið út og er blaða­maður sam­mála Evu um að gömlu húsin séu mest sjar­mer­andi sem ein­kenn­ast af miklu lífi og sögu. Við kveðjum Evu og læð­una Móeyju sem nýlega flutt­ist inn í þessa fal­legu íbúð en á þó eftir að kynnst mið­bænum og mann­líf­inu betur. Að lokum hvetur blaða­maður les­endur til þess að horfa meira í átt til him­ins á ferðum sínum um mið­bæ­inn og ein­blína frekar á arki­tekt­úr­inn þar sem hann mætir him­in­hvolf­inu heldur en þar sem hann mætir jörð­inni. Þá ger­ast töfr­arnir.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni