Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Lýsingin gegnir lykilhlutverki

Sandra Dís Sig­urð­ar­dóttir er inn­an­húss­arki­tekt og lýs­ing­ar­hönn­uður og ein af fáum sem er hvort tveggja hér á landi. Fast­eigna­blaði Mannlífs lék for­vitni að vita meira um áherslur og verk­efni Söndru Dísar og hvort það væri ekki mik­ill kostur að sam­þætta þessi tvö starfs­heiti þegar kemur að því að hanna rými.

Lýsingin gegnir lykilhlutverki

Getur þú sagt okkur frá nýlegu verk­efni sem er þér hug­leikið og hvar þú fékkst inn­blást­ur­inn? „UMI Hótel opn­aði í ágúst 2017 en hönn­unin á því er mikið til sótt í nátt­úr­una og liti hennar. Ég not­aði haust­lit­ina tölu­vert í hönn­un­inni ásamt formum og áferð úr nátt­úr­unni eins og til dæmis mos­ann og stuðla­bergið.“

UMI Hótel opn­aði í ágúst 2017.

Skiptir lýs­ing miklu máli? „Hún gegnir lyk­il­hlut­verki í hönnun á öllum rýmum. Um leið og rökkva tekur gegnir hún mik­il­vægu hlut­verki í að skapa stemn­ingu. Með réttri lýs­ingu er sömu­leiðis hægt að hafa áhrif á vinnu­af­köst hjá starfs­fólki og nem­endum ásamt því að hún getur hjálpað til við bata hjá sjúk­lingum.“

Hvað hefur þú í huga þegar þú hannar og inn­réttar með lýs­ingu í huga? „Ég spyr mig að því hvaða hlut­verki þetta rými gegnir, hver muni nota það og hvort sér­stakar lýs­ing­ar­kröfur séu gerðar til þessa rýmis. Með mis­mun­andi lýs­ing­ar­kröfum á ég við að það eru öðru­vísi staðlar ef um er að ræða lýs­ingu á skrif­stofu eða á hjúkr­un­ar­heim­ili, svo dæmi sé tekið.“

Lýsingin setur punkt­inn yfir i-ið hér.

Ertu hrifin af opnum rýmum þar sem eld­hús, stofa og borð­stofa tengj­ast saman? „Ég er per­sónu­lega hrifin af þannig rýmum en það hentar ekki öllum. Það getur verið gott fyrir suma ef mögu­leiki er á að stúka eld­húsið aðeins af. Einnig er hægt að hafa eld­hús­tækin inn­byggð að miklu leyti þannig að eld­húsið falli betur inn í stof­una.“

Lumar þú á góðum lausnum þegar velja á lýs­ingu í hin ýmsu rými? „Það þarf að skoða hvort það séu eitt­hverjir ákveðnir hlutir sem við viljum lýsa upp, til dæmis mál­verk eða lista­verk. Einnig hvar við viljum geta dimmað lýs­ing­una. Mik­il­vægt er að huga að lýs­ing­unni meðal ann­ars inni á bað­her­bergi þar sem þörf er á góðri og jafnri lýs­ingu á and­litið fyrir förðun.“

Skiptir máli hvernig lýs­ing er valin í stofu? „Í stof­unni er mest verið að hugsa um stemn­ings­lýs­ingu. Þar skiptir útlitið á lömp­unum miklu máli fyrir útlitið á stof­unni en nauð­syn­legt þykir mér að hægt sé að dimma þá lampa sem þar eru. Einnig er gott að hafa nokkrar týpur af lömpum, til dæmis hang­andi, loftlampa og stand­lampa til að skapa mis­mun­andi stemn­ingu.“

Sandra mælir með að nota nokkrar týpur af ljós­gjöfum í stofur.

Skiptir lita­val máli hvað varðar lýs­ingu og stærð? „End­ur­kast er mis­mikið eftir litum þannig að ef valdir eru dökkir litir inn í rými draga þeir í sig birt­una og þarf þar af leið­andi meiri lýs­ingu en ef rýmið er ljóst. Fólk þarf ekki að vera hrætt við að mála í litum heima hjá sér, það gefur oft­ast meiri hlýju inn í rýmið og minnkar það ekki eins og margir eru hræddir um.“

Mynd / Hallur Karlsson

Sandra Dís útskrif­að­ist frá Istituto Europeo di Design í Mílanó árið 2011 sem inn­an­húss­arki­tekt. Að loknu námi fór hún í starfs­nám í Helsinki á inn­an­húss­arki­tekta­stofu að nafni Studio Arcibella. Eftir að hún flutti heim til Íslands hafði Sandra Dís lokið námi við lýs­ing­ar­hönnun og vinnur við hana hjá Lisku ásamt því að vinna sjálf­stætt sem inn­an­húss­arki­tekt. Hún heldur úti síðu á Facebook og heima­síðan hennar opnar bráð­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni