MannlífiðFallegar nauðsynjar á heimilið Nauðsynjavörur heimilisins geta líka verið fallegar. Uppþvottaburstar, þvottakörfur og meira að segja ruslafötur geta sett punktinn yfir i-ið.
MannlífiðStútfullt blað af spennandi og fjölbreyttu efni Nýjasta tölublað Húsa og híbýla er komið í verslanir, stútfullt af fjölbreyttu efni. Gullfallegt einbýlishús hannað af arkitektinum Guðmundi Jónssyni prýðir forsíðuna.
MannlífiðLéttur og listrænn retróstíll í 33 fermetrum Síðasta sumar heimsótti Hús og híbýli hjónin Brynju Sveinsdóttur og Friðrik Stein Friðriksson í litla og litríka risíbúð við Flókagötu þar sem þau bjuggu ásamt syni sínum.
MannlífiðSteiktar kúrbítskökur með jógúrtsósu Þessar kökur eru mjög sniðugar í garðveislu, saumaklúbb eða á smáréttahlaðborð. Einnig er tilvalið að skella í réttinn í sumarbústaðnum og hafa hann sem léttan hádegisverð og bera fram með góðu salati og brauði.
MannlífiðKartöflu-blaðlauksbaka Bökur eru þægilegur og góður matur. Þær er einfalt að búa til og þegar deigið hefur verið gert eru engin takmörk fyrir hvað nota má í fyllingu. Hægt er að grípa það sem til er í ísskápnum og þetta er því góð leið til að nýta afganga, grænmeti sem er á síðasta snúningi eða hvað annað sem leynast kann í matarskápum heimilisins. Hér kemur ein góð baka.
MannlífiðAð umhella víni í karöflur Hver er tilgangurinn með að láta vín anda og hvernig er það gert? Ein leið til þess er að umhella víninu í karöflur.
MannlífiðGluggarnir eru síbreytileg málverk Við Þingvallavatn er sumarhúsaþyrping sem á sér langa sögu. Húsin eru fjölbreytt og bera þess merki að hafa vaxið með eigendum sínum og breyst í tímans rás, allt eftir þörfum íbúanna. Við kíktum í heimsókn í sumarhús við vatnið og hittum þar fyrir tvær hressar systur sem saman hafa innréttað húsið með góðum árangri en húsið er í eigu annarrar þeirra og eiginmanns hennar.
MannlífiðGeorg bætist í söngfuglafjölskylduna Fuglinn Georg bætist í fuglafjölskyldu Kay Bojesen.
MannlífiðMarokkóskt lambagúllas Alltaf er gaman að elda rétti sem koma frá öðrum heimshornum og enn skemmtilegra að nota ekta íslenskt hráefni í þá eins og lambakjöt. Þægilegt er að elda pottrétti og tilvalið að láta þá eldast lengi við vægan hita. Pottréttir eru oft betri daginn eftir og því gott að elda stóra skammta og láta duga í tvær máltíðir. Auðveldlega má skipta lambakjötinu út fyrir nautakjöt fyrir þá sem vilja það frekar.
MannlífiðDropinn – nýir náttúrulegir litatónar Dropinn hannaður af Arne Jacobsen fyrir Fritz Hansen hefur nú verið framleiddur í nýjum litum en hann kom fyrst á markað árið 1958.
MannlífiðSúrbjór – bastarður bjórheimsins Súrbjórar er eitthvað sem allir ættu að smakka. Það er bara þannig. Þeir verða til fyrir tilstilli baktería (lactobacillus, pedicoccolus o.f.) og villigerla (brettanomyces) sem eru óæskilegir í hefbundnum bjórum og má því segja að þeir séu bastarðar bjórheimsins. Þegar þeir eru vel gerðir eru þetta hins vegar engir bastarðar, heldur áhugaverðustu og margslungnustu bjórar sem fyrir finnast. Hér er létt yfirferð yfir helstu stíla.
MannlífiðHnallþóran- sýning í Midpunkt Sigurrós Guðbjörg Björnsdóttir og Berglind Erna Tryggvadóttir standa að sýningu sem ber heitið Hnallþóran. Opnun sýningarnar var 5. maí síðastliðinn og stendur yfir til 26. maí.