Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Léttur og listrænn retróstíll í 33 fermetrum

Síðasta sumar heim­sótti Hús og híbýli hjónin Brynju Sveins­dóttur og Friðrik Stein Frið­riks­son í litla og lit­ríka ris­í­búð við Flóka­götu þar sem þau bjuggu ásamt syni sínum.

Léttur og listrænn retróstíll í 33 fermetrum

Ris­í­búðin er í fal­legu stein­húsi byggðu 1947 sem stendur rétt við Kjar­vals­staði.

Mæl­an­legir fer­metrar eru ein­göngu 33 en gólf­flöt­ur­inn er um 60 fer­metrar, „þegar maður býr svona smátt verður maður að reyna að nýta rýmið sem best og velja hús­gögnin út frá súð­inni.“

Brynja segir þau Friðrik einnig hafa sett tölu­vert af búslóð­inni sinni í geymslu því það sé mik­il­vægt að passa að ofhlaða ekki rýmið.

Blái sóf­inn gerir mikið fyrir rýmið.

„Þrátt fyrir fer­metra­fjöld­ann erum við dug­leg að halda mat­ar­borð og erum oft með átta manns í mat! Maður verður svo­lítið að hugsa í lausnum og vera með­vit­aðri um að vinna með rýmið en þegar von er á gestum færum við sem dæmi eld­hús­borðið í stof­una og stækkum það. Kost­ur­inn við það að búa svona smátt er að við verðum að halda íbúð­inni snyrti­legri og við reynum að finna hverjum hlut ákveð­inn stað og ekki fylla allt af dóti.“

Fallegt rúm­teppi úr Geysi.

Myndlist í stað skrautmuna

Bæði Brynja og Friðrik eru alin upp í Vest­ur­bænum en seg­ast fíla nýja hverfið sitt í botn „Það er svo margt spenn­andi að ger­ast hérna, Reykja­vík Roasters og Mat­höllin á Hlemmi er hér handan við hornið og það sem er svo æðis­legt á sumrin er að Klambratún er eig­in­lega bara garð­ur­inn okkar.“

Fáninn er útskrift­ar­verk mynd­list­ar­kon­unnar Krist­ínar Dóru Ólafs­dóttur.

Naí­vista­hornið, mál­verk eftir Stórval og hundur frá Búrma.

Þau segj­ast einnig vera svo lukku­leg að kom­ast upp með að vera ekki á bíl vegna stað­setn­ing­ar­innar, en Friðrik er í göngu­færi við vinnu og hjá Brynju eru aðeins tvær stoppi­stöðvar með næsta stræt­is­vagni.

Aðspurð um stíl­inn á heim­il­inu segir Brynja þau reyna að vera með frekar létt hús­göng því það fari betur í smáu rým­inu, en þau eiga mikið af tekk­munum í geymslu.

Gervi­plöntur eftir Auði Lóu Guðna­dóttur.

„Þrátt fyrir fer­metra­fjöld­ann erum við dug­leg að halda mat­ar­borð og erum oft með átta manns í mat!“

„Við reynum að hafa ekki of mikið af neinu og hafa heldur mynd­list á veggjum en skraut­muni til að lífga upp á rýmið. Sófinn okkar eftir Svein Kjarval er í miklu upp­á­haldi og hefur verið í fjöl­skyldu Friðriks lengi. Við létum yfir­dekkja hann nýlega og ákváðum að halda honum í upp­runa­lega stílnum og völdum efnið í takt við hann, áður var sóf­inn drapp­lit­aður en okkur lang­aði í eitt­hvað aðeins lit­rík­ara.“

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Brynja talar um litla naí­vista­horn heim­il­is­ins sem er í miklu upp­á­haldi, en þar má finna fjöl­breytta barna­list og verk eftir utan­garðs­lista­menn.

Við kveðjum fjöl­skyld­una í list­ræna ris­inu við Klambratún.

Sólargul Flowerpot-ljós eftir Verner Panton lífga upp á eld­húsið.

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Hjónunum tókst að nýta hvern krók og kima vel.

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Í Hnotskurn

Fag­ur­fræði eða nota­gildi?
Best þegar fag­ur­fræði og nota­gildi fer saman en þó vegur fag­ur­fræði eitt­hvað þyngra hjá mér. Á heim­il­inu eru þó ekki margir skraut­munir svo sem blóma­vasar og kerta­stjakar heldur fær mynd­list að ráða ferð­inni.
Um helgar er …
hverfið full­nýtt með íþrótta­skóla í Vals­heim­il­inu, sundi í Sund­höll­inni og hádeg­is­mat á Hlemmi. Síðan er slappað af og á góðum degi hjólað í kaffi til vina eða ætt­ingja. Mætti jafn­vel enda dag­inn á Ban-Thai.
Te eða kaffi?
Kaffi á vinn­ing­inn þar sem það er bæði er nauð­syn og nautn.
Upp­á­halds­hlutur eða -hús­gagn?Mér þykir mjög vænt um sófann sem hefur fylgt okkur í þónokkur ár og fékk verð­skuld­aða yfir­haln­ingu þegar við fluttum inn í íbúð­ina. Lista­verkin í íbúð­inni eru þó í upp­á­haldi, Drawing in Round Frame eftir Kristján Guð­munds­son þykir mér dásam­lega fal­legt og gervi­blóm Auðar Lóu Guðna­dóttur gleðja mikið.
Griða­staður heim­il­is­ins?
Íbúðin er að vissu leyti eitt meg­in­rými þar sem stofa og eld­hús renna saman og eyðum við mestum tíma þar, hvort sem það er að elda, hlusta á tón­list, föndra eða slappa af.
Besta sund­laugin?
Sund­höllin er í miklu upp­á­haldi eftir breyt­ingar þó að Sundlaug Kópavogs sé fast á hæla henni.
Upp­á­halds­borg?
Róm er í sér­stöku upp­á­haldi og ekki síst vegna þess hversu margar góðar ferða­minn­ingar ég á þaðan og frá Ítalíu. Við bjuggum í Stokk­hólmi í þrjú ár og er alltaf gaman að koma aftur til borg­ar­innar og rifja upp upp­á­halds­staði og -stundir.
Besta kaffi­húsið?
Reykja­vík Roasters í Þver­holti er rétt handan við hornið og förum við mikið þangað til að vinna, hanga og lesa.
Upp­á­halds­verslun?
Við kaupum okkur ekki mikið af hlutum á heim­ilið en Rabbar Barinn á Hlemmi er orð­inn minn upp­á­halds­staður fyrir kaup á plöntum og krydd­jurtum.
Upp­á­halds­hönn­uður/lista­maður?
Upp­á­halds­lista­menn eru nán­ast of margir til að nefna en Hreinn Frið­finns­son, Sig­ur­laug Jón­as­dóttir, Arna Ótt­ars­dóttir og Gerður Helga­dóttir eru í miklu upp­á­haldi og er svo heppin að fá að umgang­ast verk Gerðar á hverjum degi í Gerð­ar­safni.

Ljós­myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni