Sýningin Hnallþóran er fyrsta kynning á rannsóknum þeirra, verkefni í vinnslu. Flestir kannast við hina íslensku hnallþóru en það fyrirbæri varð til á fyrri part tuttugustu aldarinnar, handverk sem borið var fram í veislum af ýmsum toga fyrir vini og vandamenn.
Á sýningunni eru settar fram tilraunir á hnallþórunni sem listhlut, í tvívíðu og þrívíðu formi, jafnt því sem áhorfendur geta skoðað uppskriftir og fróðleik sem rannsóknarteymið hefur sánkað að sér.
Sýningin fer fram í menningarrýminu Midpunkt í Hamraborg 22.































Athugasemdir