Sverrir Guðjónsson kemur fram með Voces Thules í dag: „Nú syng ég aðeins einu sinni á ári“
Sönghópurinn Voces Thules flytur aftansöng, Vesper I úr Þorlákstíðum, klukkan 17-18 í dag, Þorláksmessu, í Kristskirkju konungs í Landakoti. „Enginn aðgangseyrir er á aftansönginn og gestir og gangandi eru velkomin að njóta hins forna kyrrðarsöngs klaustranna í umvefjandi hljómburði Kristskirkju í Landakoti,“ segir Sverrir Guðjónsson, einn söngvara Voces Thules. Að sögn Sverris er tíðasöngur í gregoríönskum stíl nokkurs konar kyrrðarsöngur,...