Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sverrir Guðjónsson kemur fram með Voces Thules í dag: „Nú syng ég aðeins einu sinni á ári“

Sverrir Guðjónsson kemur fram með Voces Thules í dag: „Nú syng ég aðeins einu sinni á ári“
Vocas Thules

Söng­hóp­ur­inn Voces Thules flytur aft­an­söng, Vesper I úr Þor­láks­tíðum, klukkan 17-18 í dag, Þor­láks­messu, í Krists­kirkju kon­ungs í Landa­koti.

„Enginn aðgangs­eyrir er á aft­an­söng­inn og gestir og gang­andi eru vel­komin að njóta hins forna kyrrð­ar­söngs klaustr­anna í umvefj­andi hljóm­burði Krists­kirkju í Landa­koti,“ segir Sverrir Guð­jóns­son, einn söngv­ara Voces Thules.

Að sögn Sverris er tíða­söngur í gregor­íönskum stíl nokk­urs konar kyrrð­ar­söngur, „þar sem flæði tón­list­ar­innar og text­anna fleytir þátt­tak­and­anum áfram líkt og hann sigli áreynslu­laust á öldu­faldi, en með skýra stefnu.“ Flutn­ingur þess­arar tón­listar er inni­legt til­beiðslu-og hug­leiðslu­form, sem kristin kirkja hefur iðkað frá ómuna­tíð.

Tón­list­ar­hand­rit Þor­láks­tíða, AM 241 a II fol. er frá sirka 1400, flutt heim frá Kaup­manna­höfn 1996, og nú vel varð­veitt í EDDU, húsi hand­rit­anna. Á Lista­há­tíð í Reykja­vík 1998, á Hvíta­sunnu, fluttu Voces Thules Þor­láks­tíðir í heild sinni á rúmum sól­ar­hring að fornum klaust­ursið, í til­efni af 800 ára dýr­lings­há­tíð Þorláks bisk­ups Þór­halls­sonar. Í kjöl­far flutn­ings­ins hófst hljóð­ritun Þor­láks­tíða í áföngum, sem var gefin út á list­bók, hann­aðri af Brynju Bald­urs­dóttur, sem inni­hélt þrjá geisla­diska og einn texta­disk, ásamt greinum á nokkrum tungu­málum. Hagnýt upp­skrift Þor­láks­tíða, sem Eggert Pálsson hefur unnið upp úr hand­rit­inu, mun von­andi verða aðgengi­leg þegar fram líða stundir, að sögn Sverris.

Þorlákur biskup Þór­halls­son lést 23.des­em­ber 1193. Þann 20.júlí 1198 voru bein hans tekin upp, áheit á hann heim­iluð af Alþingi 1199 og messu­dagur hans, 20.júlí eða Þor­láks­messa á sumar, lög­tek­inn 1237. Jóhannes Páll II páfi útnefndi Þorlák vernd­ar­dýr­ling Íslands með til­skipun, 14.jan­úar 1984.

En var Sverrir ekki hættur að syngja?

„Nú syng ég aðeins einu sinni á ári aft­an­söng úr Þor­láks­tíðum, ásamt söng­hópnum Voces Thules, með frið­ar­bæn í brjósti, undir vernd­ar­væng dýr­lings Íslend­inga,“ svar­aði Sverrir í sam­tali við Mannlíf. Bætti hann við: „Þetta er mjög nær­andi“.

Voces Thules: Eggert Pálsson, Einar Jóhann­es­son, Eiríkur Hreinn Helgason, Eyjólfur Eyj­ólfs­son, Sigurður Hall­dórs­son, Sverrir Guð­jóns­son.

Sverrir vildi að lokum senda sér­stakar þakkir til Séra Jakobs Rolland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu