Tveir menn eru í lífshættu eftir skotárás sem átti sér stað um hábjartan dag á Memorial Drive í Cambridge í Massachusetts í gær en bandarískir fjölmiðlar greina frá árásinni. Maður vopnaður árásarriffli er sagður hafa skotið allt að 60 skotum að handahófi á vegfarendur og ökutæki áður en hann var yfirbugaður.
Lögregla hefur borið kennsl á hinn grunaða sem Tyler Brown, 46 ára mann frá Boston. Samkvæmt upplýsingum frá saksóknaranum í Middlesex-sýslu, Marian Ryan, gekk Brown eftir götu og hóf skothríð af handahófi síðdegis í gær. Tvö fórnarlömb, báðir karlmenn í bifreiðum, urðu fyrir skotum og eru í lífshættu
Atvikið náðist á myndskeið sem sýnir manninn ganga eftir götunni með riffilinn á lofti á meðan skothvellir heyrast ítrekað. Vitni lýstu mikilli skelfingu þegar ökumenn yfirgáfu bíla sína og leituðu skjóls undan skothríðinni.
Samkvæmt yfirvöldum skaut lögreglumaður úr ríkislögreglu Massachusetts ásamt vopnuðum fyrrverandi landgönguliða á Brown og stöðvuðu árásina. Brown særðist og var fluttur á sjúkrahús þar sem hann er nú í haldi lögreglu. Hann hefur verið ákærður fyrir meðal annars tvær tilraunir til manndráps og vopnalagabrot.
Rannsókn málsins stendur enn yfir og yfirvöld hafa ekki upplýst um mögulegan hvata árásarinnar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir