Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Ígildi fimm tappa úr plasti í heilanum

Vís­inda­menn finna meira örplast með hverju árinu í lík­ama fólks.

Plasttappar
Plast­tappar Mest örplast­mengun í lík­am­anum var frá plasti frá sjö­unda ára­tugnum. Mynd: Shutterstock

Örplast­mengun í lík­am­anum mælist vax­andi með hverju ári í rann­sóknum. Í nýlegri rann­sókn við Háskól­ann í Nýju-Mexíkó í Banda­ríkj­unum kom fram að plast­agnir í heila fólks hefðu auk­ist að magni um 50% fra´árinu 2016 til 2024.

Rann­sóknin hefur vakið mikla athygli, bæði vegna þess sem hún segir um ástandið í dag og svo hvernig það er lík­legt til að þró­ast. Samkvæmt rann­sókn­inni mælist magn örplasts í heila með­al­mann­eskju jafn­gildi fimm tappa af flöskum. Það sem vekur ugg er að smáa örplastið sem komið er í heila fólks er úr plasti sem barst út í umhverfið á sjö­unda ára­tugnum.

„Þetta efni er að vaxa í heim­inum okkar í veld­is­vexti,“ segir eit­ur­efna­fræð­ing­ur­inn Matthew Campen, sem stýrir rann­sókn­inni, í sam­tali við New York Times.

Aðrar rann­sóknir hafa sömu­leiðis vakið ugg. Sýnt hefur verið fram á að heili fólks, sem glímdi við elli­glöp, inni­hélt mun meira magn af plasti en heili ann­arra. Aðrar rann­sóknir síð­asta árið hafa sýnt að örplast finnst í eistum, fóst­ur­belg, blóði, sæði, brjósta­mjólk og jafn­vel í fyrstu hægðum ung­barna.

Áhersla vís­inda­manna nú er að átta sig á hvaða magn af plasti sé skað­legt, þar sem það sé almennt magnið, eða skammta­stærðin, sem býr til eit­urá­hrif.

Ein ástæða þess að meira grein­ist af plasti nú en áður er að ný tækni greinir agnir niður í 200 nanó­metra að stærð, eða sem nemur 400 sinnum minni en breidd hárs. Áður greindust aðeins agnir sem náðu 25 sinnum minni breidd en hár.

Plast­fram­leiðsla hefur tvö­fald­ast á hverjum 10 til 15 árum. Þær agnir sem finn­ast í lík­am­anum núna er að mestu leyti sama teg­und plasts og var fram­leitt á sjö­unda ára­tugnum. Margt bendir til þess að lík­am­inn nái að losa sig við stærri plast­agn­irnar, en að örplastið, sem tekur langan tíma að brotna niður í þessa smæð, safn­ist fyrir í lík­am­anum með óþekktum afleið­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Jón Daði þakkaði Maríu fyrir stuðninginn þegar hann kvaddi knattspyrnuna í ágúst. Nú hafa hjónin tilkynnt að fjölskyldan stækki næsta vor.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Heimur

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Eftirlitsmyndir sýna Holm grípa í Persson á veitingastað í Gautaborg. Sá síðarnefndi hlaut áverka á hálsi og rispur á baki.
Heimur

Kona fannst látin í bíl á Fuer­teventura

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Heimur

Lindberg kallar eftir því að stríð­inu í Súdan verði hætt