Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

RÚV leiðréttir frásögn af Ásthildi Lóu

„Frétta­stofa RÚV harmar þessi mis­tök og biður alla hlut­að­eig­andi vel­virð­ingar.“

Ríkisútvarpið
Rík­is­út­varpið Hefur mætt harðri gagn­rýni. Mynd: Víkingur

Rík­is­út­varpið leið­rétti í dag inn­gang að frétt sem sögð var af sam­bandi Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur, frá­far­andi mennta- og barna­mála­ráð­herra, sem sögð var fimmtu­dag­inn 20. mars síð­ast­lið­inn.

Í kynn­ingu frétt­ar­innar sagði að Ást­hildur Lóa hefði eign­ast barn með 15 ára barni.

„Í inn­gangi að umfjöllun Speg­ils­ins, þar sem rætt var við álits­gjafa um mál Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur fimmtu­dag­inn 20. mars klukkan 18.10, kom fram sú stað­hæf­ing að Ást­hildur Lóa hefði átt barn með 15 ára pilti, þá 22 ára. Það er rangt. Hið rétta er að pilt­ur­inn var 16 ára og Ást­hildur Lóa 23 ára þegar þau eign­að­ist barnið, eins og kom fram í fréttum RÚV af mál­inu. Frétta­stofa RÚV harmar þessi mis­tök og biður alla hlut­að­eig­andi vel­virð­ingar,“ sagði Freyr Gígja Gunn­ars­son, stjórn­andi Speg­ils­ins, í þætt­inum í dag.

Rík­is­ú­varpið hefur verið gagn­rýnt harð­lega vegna umfjöll­un­ar­innar um Ásthildi Lóu. Að sögn Heiðars Arnar Sig­ur­finn­sonar, frétta­stjóra RÚV, var ekki talin ástæða til að leið­rétta efn­is­at­riði, enda væru heim­ildir að baki.

RÚV stendur við annað

Í frétt RÚV fimmut­dag­inn í síð­ustu viku var Ást­hildur Lóa meðal ann­ars sökuð um að hafa „tálmað umgengni“ og var vitnað til laga- og refsi­á­kvæða sem áttu ekki við um lög­ræð­is­aldur. Að auki sagði Rík­is­út­varpið að Ást­hildur Lóa hefði „leitt ung­linga­starf“. Þessu hefur hún hafnað, en Rík­is­út­varpið byggði umfjöllun sína á barns­föður hennar og hefur ekki talið ástæðu til frek­ari leið­rétt­inga. Þá sagði RÚV að „trún­að­ar­upp­lýs­ingar [hefðu] borist til ráð­herra“ og var full­yrt að starfs­menn ráðu­neyt­is­ins hefðu „full­vissað send­anda um að öll erindi væru trún­að­ar­mál“. Síðar kom í ljós að send­andi erind­is­ins hafði boðið fram að Ást­hildur Lóa yrði við­stödd fund hennar með for­sæt­is­ráð­herra um málið, en boð­aði að hún lyki afskiptum af því ef Ást­hildur Lóa viki úr emb­ætti ráð­herra, sem hún gerði áður en frétt RÚV var birt.

Byggðu fréttina á annarri hliðinni

Í grein Heiðars Arnar Sig­ur­finns­sonar, frétta­stjóra RÚV, undir titl­inum Lýðræðið deyr í myrkr­inu, svar­aði hann gagn­rýni með því að Ást­hildur Lóa hefði sjálf ákveðið að segja af sér og að reynt hefði verið að hafa sam­band við hana. „Frétta­stofa RÚV byggði fyrstu frétt sína á við­tölum við barns­föður Ást­hildar Lóu og fyrr­ver­andi tengda­móður hans, sem hafði sent for­sæt­is­ráðu­neyt­inu erindi um málið,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Pólitík

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
  • Pólitík

    „Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

  • Pólitík

    Jódís segir Sverri snúa út úr orðum sínum

  • Pólitík

    Daði Már segir svar um fundi án for­stjóra hafa verið óná­kvæmt

  • Pólitík

    Vill stofna sann­girn­is­bóta­sjóð vegna illrar með­ferðar á börnum í vistun