Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

16 staðreyndir um mál Ásthildar Lóu

Hvað er stað­fest og hvað ekki?

16 staðreyndir um mál Ásthildar Lóu
Ást­hildur Lóa er ekki lengur ráð­herra Verður áfram þing­maður Mynd: RÚV / Skjáskot

Þótt meg­in­at­riðin hafi verið stað­fest í umræðu um sam­band Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur, frá­far­andi mennta- og barna­mála­ráð­herra, eru dæmi um vill­andi fram­setn­ingu eða vafa­samar full­yrð­ingar sem varða sum lyk­il­at­riðin. Þau eru hvort athæfi Ást­hildar Lóu hafi verið hugs­an­legt lög­brot eða ekki.

Um annað en stað­reyndir gildir mis­mun­andi gild­is­mat fólks. Það hvort eða hversu alvar­legt brot á óform­legum reglum sam­fé­lags­ins sam­band 22 ára konu er við 16 ára pilt er und­ir­orpið almennu gild­is­mati og mati á sér­stæðu, flóknu til­felli.

Eft­ir­far­andi er hins vegar yfir­ferð yfir helstu rök og sann­an­legar stað­reyndir máls­ins.

1. Hann var ekki barn í skilningi laga

Í fyrstu frétt Rík­is­út­varps­ins um málið var vitnað í lög um að „ein­stak­lingar yngri en átján ára telj­ast börn, í skiln­ingi lag­anna“. Þessi lög eiga ekki við til­fellið.

Sjálf­ræð­is­aldur var hækk­aður úr 16 árum í 18 árið 1997. Barnið fædd­ist árið 1990.

2. Hann var tæplega 17 ára faðir

Þegar Ást­hildur Lóa fæddi son sinn, var barns­fað­ir­inn, Eiríkur Ásmunds­son, einum og hálfum mán­uði frá því að vera 17 ára gam­all. Þá var Ást­hildur Lóa 23 ára og sjö mán­aða. Ald­urs­munur þeirra var tæp­lega sjö ár.

3. Þetta varðaði ekki fangelsisdóm

Í upp­haf­legri frétt Rík­is­út­varps­ins um málið er ýjað að því að athæfi Ást­hildar Lóu hafi verið lög­brot. „Þetta er þó ekki algilt því óheim­ilt er að hafa sam­ræði við mann­eskju undir 18 ára ef við­kom­andi er til dæmis kenn­ari hennar eða leið­bein­andi. Þá er líka óheim­ilt að hafa sam­ræði við mann­eskju ef hún er undir 18, er háður við­kom­andi fjár­hags­lega, í atvinnu sinni, eða sem skjól­stæð­ingur í trún­að­ar­sam­bandi. Þetta getur varðað allt að þriggja ára fang­elsi,“ sagði í frétt­inni.

Þar sem ósannað er að Ást­hildur Lóa hafi verið leið­bein­andi, og gengur gegn frá­sögn fyrr­ver­andi stjórn­anda trú­fé­lags­ins Trú og líf, er að lág­marki vafa­samt að tengja hana við lög­brot. Stjórn­and­inn hefur þó tekið fram að hann hafi verið hættur í hópnum árið 1990.

Pilt­ur­inn var 16 ára gam­all þegar getn­aður átti sér stað.

Sam­ræð­is­aldur var á þessum tíma 14 ár.

4. Tilkynnandinn vildi koma Ásthildi úr embætti

„Ég vil að hún stígi til hliðar og þá mun ég ekki ræða þetta frekar,“ sagði Ólöf Björns­dóttir í póst­inum til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins föstu­dag­inn 14. mars kl. 10.56.

Ást­hildur Lóa árið 1994

5. Fjölmiðlar eða barnsfaðirinn eru tvísaga um afstöðu hans

Í frétt Vísis kom fram að umfjöllun og umræða um málið hefði komið barns­föð­urnum Eiríki Ásmunds­syni, í opna skjöldu. „Þetta er farið af stað algjör­lega í minni óþökk,“ hafði Vísir eftir honum.

Síðar sama dag sagð­ist hann í sam­tali við RÚV ekki hafa verið á móti umræð­unni, heldur þakk­látur. „Ég er hins vegar þakk­látur fyrir það að fyrr­ver­andi tengda­móðir mín hafi gert það og er alls ekki mót­fall­inn því að málið sé nú komið í opin­bera umræðu.“

6. Áslaug Arna kom ekki að málinu svo vitað sé

Þrátt fyrir að stað­fest sé að Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi fengið tölvu­póst frá til­kynn­and­anum Ólöfu Björns­dóttur, hefur ekki verið stað­fest að hún hafi brugð­ist við með neinum hætti. Sjálf hafnar hún því. Þar með er ekki meira vitað en að hún fékk sendan tölvu­póst, sem getur ekki talist ábyrgð­ar­hluti.

7. Forsætisráðuneytið braut ekki trúnað

Til­kynn­and­inn sendi tölvu­póst á net­fang for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins þess efnis að Ást­hildur Lóa mætti einnig sitja fund­inn. „Góðan dag­inn, ég bið um stuttan fund með Kristrúnu Frosta­dóttur en það varðar Ásthildi Lóu Þórs­dóttur, það er í góðu lagi að hún sitji líka fund­inn, ef Kristrún vill það. Liggur á,“ sagði Ólöf í pósti sínum 11. mars.

Þessar upp­lýs­ingar ganga gegn full­yrð­ingu í fyrstu frétt Rík­is­út­varps­ins, sem birt var skömmu áður en Ást­hildur Lóa sagði af sér. Þar sagði: „For­sæt­is­ráðu­neytið virð­ist hafa rofið trúnað um málið“.

Að auki kveða stjórn­sýslu­lög á um að upp­lýs­ingar „um lög­brot eða aðra ámæl­is­verða hátt­semi starfs­manna stjórn­valda“ falla ekki undir þagn­ar­skyldu hins opin­bera. Sjá: 41. grein stjórn­sýslu­laga.

Ást­hildur Lóa og Hafþór Ólafsson, eig­in­maður hennar, árið 1992

8. Ásthildur Lóa fór heim til tilkynnanda

Ást­hildur Lóa fór að heim­ili til­kynn­and­ans, Ólafar Björns­dóttur, og reyndi að hringja í hana eftir að hún fékk upp­lýs­ingar frá aðstoð­ar­manni for­sæt­is­ráð­herra um nafn hennar.

9. Ásthildur fékk tækifæri til að tjá sig við RÚV

„Rík­is­mið­ill­inn hafði ítrekað sam­band í von um að fá sjón­ar­mið ÁLÞ,“ segir frétta­kona RÚV í athuga­semd við færslu tals­manns Flokks fólks­ins. Því hefur ekki verið neitað.

10. Faðirinn taldi sig ekki þolanda

Eiríkur Ásmunds­son full­yrti, sam­kvæmt Rík­is­út­varp­inu, að hann liti ekki á sig sem þol­anda í mál­inu. „Braustu gegn honum?“ spurði frétta­kona RÚV Ásthildi Lóu í við­tali, vit­andi að hann taldi sig þó ekki þol­anda. Spurn­ingin byggði á aldri hans og aðstöðumun, sem er umdeildur hvað varðar störf hennar sem leið­bein­anda eða ekki.

11. Orðalag RÚV byggði á manninum sem heimild

Grund­vall­ar­at­riði í frétt Rík­is­út­varps­ins er hvort pilt­ur­inn hafi verið „skjól­stæð­ingur“ Ást­hildar Lóu eða ekki, enda er vitnað til laga­á­kvæða sem varða það. Sú stað­hæf­ing RÚV að Ást­hildur Lóa hafi „leitt ung­linga­starf“ í trú­fé­lag­inu Trú og líf er hins vegar höfð eftir barns­föð­urnum gegn neitun hennar. RÚV velur að trúa barns­föð­urnum frekar en Ásthildi Lóu.

„Barns­fað­ir­inn full­yrðir hins vegar að hún hafi leitt ung­linga­starf innan félags­ins. Hann segir sjálfur að um tálmun hafi verið að ræða og eng­inn nema þú talar um þvingun. Hvers vegna ætti ekki að trúa honum, rétt eins og ÁLÞ [Ásthildi Lóu Þórs­dóttur]?“ spurði frétta­kona RÚV í svari við færslu tals­manns Flokks fólks­ins um málið.

12. Fullyrðingar um tálmun eru óljósar

Rík­is­út­varpið hefur eftir barns­föð­urnum að umgengni hans við barnið hafi verið tálmuð. Frásögn Ást­hildar Lóu er önnur. Í frétt RÚV er full­yrt í milli­fyr­ir­sögn: „Tálmaði umgengni“. Samkvæmt frétt Rík­is­út­varps­ins hefur það séð gögn sem varða bar­áttu barns­föð­ur­ins gegn tálmun. Í fyrstu frétt­inni kemur fram að „móð­irin hafi hafnað honum um umgengni“ en engu að síður vitnað til þess að hann hafi fengið „sam­þykktar tvær klukku­stundir á mán­uði með drengnum“. Því er óljóst hvort vísað er til deilu um umgengni, frekar en tálmun, sem er hindrun á umgengn­is­rétti.

Alvar­leiki ásök­unar um tálmun er und­ir­strik­aðar í frétt RÚV, þar sem segir: „Flokkur fólks­ins hefur verið afdrátt­ar­laus þegar kemur að tálm­unum og kallað eftir því að gera tálmun refsi­verða, svo varði allt að fimm ára fang­elsi.“

Samkvæmt frá­sögn barns­ins, Þórs Símonar Haf­þórs­sonar, nýtti barns­fað­ir­inn ekki tak­mark­aðan umgengn­is­rétt sinn.

13. Sonur Ásthildar Lóu telur hana ekki hafa brotið gegn föðurnum

Í frá­sögn sonar Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur og Eiríks Ásmunds­sonar kemur fram að hún hafi „ekki í eitt ein­asta skipti talað illa um eða niður til blóð­föður“ hans. Þar með upp­lifði hann ekki tryggð­ar­klemmu. Sömu­leiðis segir hann blóð­föður sinn ekki hafa nýtt sér umgengn­is­rétt­inn, sem þó var tak­mark­aður við tvær klukku­stundir í mán­uði. Hann segir „vert að spyrja hversu margar af þessum 24 klukku­stundum hann nýtti til sam­veru með mér? Þau skipti er hægt að telja á fingrum ann­arar handar.“ Á móti kveðst Rík­is­út­varpið hafa gögn um að blóð­fað­ir­inn hafi sóst eftir meiri umgengn­is­rétti.

14. Ásthildur Lóa setur ábyrgðina af sér yfir á hann

Í við­tölum um málið hefur Ást­hildur Lóa sett ábyrgð­ina á pilt­inn, sem þá var 16 ára. Hún hefur lýst honum sem „elti­hrelli“ í skiln­ingi nútím­ans og að hún hafi ekki „ráðið við ástandið eins og það var“, þrátt fyrir að hafa verið tæp­lega sjö árum eldri.

15. RÚV leiðréttir ekki

Enn hefur Rík­is­út­varpið ekki leið­rétt sér­stak­lega nein atriði í upp­haf­legri frétt sinni um málið. Mannlíf hefur sent fyr­ir­spurn á frétta­stjóra en ekki enn fengið svar. Þó hefur RÚV haldið áfram að fjalla um málið út frá nýjum upp­lýs­ingum og skýr­ingum sem ber­ast, meðal ann­ars frá Ásthildi Lóu, Þór Símoni Haf­þórs­syni og tals­manni Flokks fólks­ins.

16. Gildismat fólks er misjafnt

Það hvort fólk telji í lagi, ásætt­an­legt eða óásætt­an­legt að 22 ára kona hafi getið barn með 16 ára pilti varðar bæði afstætt sið­ferði miðað við tíma­bil og svo sömu­leiðis mis­mun­andi gild­is­mat fólks. Flestir telja lík­lega í vafa­samt að slíkt eigi sér stað í dag, en við­mið sam­fé­lags­ins hafa breyst á 36 árum. Sömu­leiðis er sýn mis­jöfn á það hvort ráð­herra barna­mála geti haft slíkan bak­grunn, en í flestum til­fellum byggir það á þeim mörgu atriðum sem umfjöllun um málið hefur tekið til: Hvort Ást­hildur Lóa hafi raun­veru­lega „tálmað umgengni“, mögu­lega brotið gegn lögum eða brotið á pilt­inum. Eftir stendur að mað­ur­inn telur sig ein­göngu vera þol­anda hvað varðar tálmun, sem þó er ekki sönnuð að öðru leyti en að gögn sýna bar­áttu hans fyrir meiri umgengni, sem móðir og barn segja hann ekki hafa nýtt sér þegar á hólm­inn var komið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum