Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Andri Snær ósáttur: „Apaheilar“

Brotala­mir í sam­göngum á Kefla­vík­ur­flug­völl.

Andri Snær Magnason
Andri Snær Magnason Rit­höf­und­ur­inn er alls ekki sáttur.

Rit­höf­und­ur­inn Andri Snær Magnason er allt annað en ánægður með rútu­fyr­ir­tæki sem aug­lýsir ferðir á Kefla­vík­ur­flug­völl frá Skóg­ar­hlíð.

Á sama tíma og mis­brestur er í rútu­sam­göngum hefur Isavia ráð­lagt fólki að panta bíla­stæði fyr­ir­fram um pásk­ana.

Andri Snær varð fyrir því óláni að mæta í Skóg­ar­hlíð­ina snemma morg­uns til að taka rútu til Kefla­víkur sam­kvæmt plani. Rútan hins vegar mætti ekki og hafði Andri Snær aðeins eitt um starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins að segja, kall­aði hann þá apa­heila, í Facebook-færslu sem hann birti í dag í hópnum Bakland ferða­þjón­ust­unnar:

„Ætlaði að taka þessa rútu hér til Kefla­víkur frá Skóg­ar­hlíð, skv plani færi rútan kl 5, (hent­aði betur Flybus 4:30 og 5:30 hjá BSí) Kem þangað og allt er óvenju tóm­legt. Þá er bara engin rúta í förum og engin til­kynn­ing um það á vef­síð­unni. Apa­heilar.“

Margir tóku undir færslu Andra Snæs og kvört­uðu sáran yfir þjón­ustu­leys­inu. Einn þeirra, Ingimar Eydal skrif­aði: „Eina landið í ver­öld­inni þar sem þú þarft eig­in­lega að vera skyggn til að vita hvernig þú átt að kom­ast til og frá alþjóða­flug­vell­inum ef þú ætlar að nota ein­hvers konar almenn­ings­sam­göngur...“

Skortur á bíla­stæðum á Kefla­vík­ur­flug­velli

Varðandi Kefla­vík­ur­flug­völl þá sendi Isavia frá sér frétta­til­kynn­ingu í dag þar sem fólk er ráð­lagt að bóka bíla­stæði fyr­ir­fram á flug­vell­inum um pásk­ana.

Þar segir að búist sé við mik­illi umferð um Kefla­vík­ur­flug­völl um kom­andi páska en frá og með fimmtu­deg­inum 10. apríl næst­kom­andi og fram yfir páska er ekki hægt að leggja bílum á betri og almennum stæðum, P1 og P3 við flug­völl­inn án þess að búið sé að bóka þau fyr­ir­fram á vef KEF.

„Fyr­ir­sjá­an­legt er að bíla­stæðin verði full­nýtt fyrir og yfir hátíð­arnar og því er þetta gert til að tryggja að far­þegar sem eiga bókuð stæði fái þau. Það er mik­il­vægt að benda far­þegum á að frá fimmtu­deg­inum næsta verður ekki hægt að fá bíla­stæði á P1 og P3 nema þau séu bókuð.

Bók­un­ar­kerfið vef­síðu Kefla­vík­ur­flug­vallar tryggir far­þegum stæði um pásk­ana. Ferða­löngum sem ekki eru með bókuð bíla­stæði er bent á aðra sam­göngu­máta til og frá KEF,“ segir meðal ann­ars í frétta­til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Jón Daði þakkaði Maríu fyrir stuðninginn þegar hann kvaddi knattspyrnuna í ágúst. Nú hafa hjónin tilkynnt að fjölskyldan stækki næsta vor.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði