Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Japanska mafían lofar minna veseni

Hafa skrifað undir yfir­lýs­ingu um slíkt

Japanska mafían hefur haft mikil völd áratugum saman
Japanska maf­ían hefur haft mikil völd ára­tugum saman Fjöldi með­lima hefur aldrei verið minni Mynd: Jorge

Stærstu skipu­lögðu glæpa­sam­tök Japans, Yamaguchi-gumi, hafa afhent yfir­völdum skrif­lega yfir­lýs­ingu þess efnis að þau ætli að binda endi á stríð sín við klofn­ings­hópa, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá lög­regl­unni í Japan í dag

Yamaguchi-gumi hefur háð blóðug stríð við önnur japönsk glæpa­sam­tök sem stofnuð voru af fyrr­ver­andi með­limum þess eftir klofn­ing árið 2015. Yfirmenn sam­tak­anna afhentu lög­reglu í Hyogo-hér­aði yfir­lýs­ingu á mánu­dag þar sem þeir hétu því „að binda endi á öll inn­byrðis átök“ og „valda engum vand­ræðum“, að sögn lög­reglu­emb­ætt­is­manns sem ræddi við AFP.

Yfirvöld hafa haft fjöl­mörg glæpa­sam­tök undir náinni vöktun frá árinu 2020 vegna vax­andi ofbeldis, sem hefur tak­markað veru­lega starf­semi þeirra, meðal ann­ars notkun skrif­stofa þeirra á ákveðnum svæðum.

Yfir­lýs­ing Yamaguchi-gumi, sem var lögð fram í Hyogo í vest­ur­hluta Japans, gæti sam­kvæmt heim­ildum jap­anskra fjöl­miðla verið til­raun til að fá aflétt­ingu á þessum tak­mörk­unum. Óljóst er hvað klofn­ings­hóp­arnir ætla sér, að sögn lög­regl­unnar í Hyogo. Rann­sak­endur fylgj­ast grannt með gangi mála, þar sem yfir­lýs­ing Yamaguchi-gumi gæti verið ein­hliða.

Ólíkt ítölsku eða kín­versku mafí­unum hefur sú jap­anska lengi verið á gráu svæði í japönsku sam­fé­lagi. Samtökin eru ekki ólög­leg og hafa hver fyrir sig höf­uð­stöðvar sínar opin­berar og í aug­sýn lög­reglu.

Japanska maf­ían spratt upp úr ringul­reið­inni í kjöl­far síð­ari heims­styrj­aldar og urðu að risa­stórum glæpa­sam­tökum.Hún tekur þátt í fjöl­breyttri starf­semi, allt frá eit­ur­lyfjum og vændi til vernd­ar­gjalda og fjár­mála­brota.

Á síð­ustu ára­tugum hafa harð­ari lög gegn glæpa­gengjum, minnk­andi umburð­ar­lyndi í sam­fé­lag­inu og veik efna­hags­staða leitt til stöðugrar fækk­unar með­lima.

Fjöldi með­lima glæpa­sam­taka í Japan náði sögu­legu lág­marki árið 2024, þegar þeir voru aðeins 18.800 tals­ins og fór í fyrsta sinn undir 20.000 manns, sam­kvæmt tölum lög­reglu sem birtar voru í þessum mán­uði.

Þrátt fyrir það eru sam­tökin enn talin ógn við sam­fé­lagið þar sem þau halda áfram starf­semi með lægri sýni­leika, að sögn lög­regl­unnar í nýlegri skýrslu.

Húðflúr eru enn tengd japönsku mafí­unni og öðrum „and­fé­lags­legum“ öflum, þó við­horf séu smám saman að breyt­ast. Fólki með húð­flúr er enn oft meinað um aðgang að stöðum eins og sund­laugum eða heitum böðum („onsen“), og ferða­menn með húð­flúr geta lent í vand­ræðum vegna þess­ara reglna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Jón Daði þakkaði Maríu fyrir stuðninginn þegar hann kvaddi knattspyrnuna í ágúst. Nú hafa hjónin tilkynnt að fjölskyldan stækki næsta vor.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Heimur

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Eftirlitsmyndir sýna Holm grípa í Persson á veitingastað í Gautaborg. Sá síðarnefndi hlaut áverka á hálsi og rispur á baki.
Heimur

Kona fannst látin í bíl á Fuer­teventura

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Heimur

Lindberg kallar eftir því að stríð­inu í Súdan verði hætt