Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Björn er látinn

Kerti.
Kerti. Mynd: Vibhor Saxena – pexels.com

Björn Theodór Líndal lög­maður er fall­inn frá. Lést hann á heim­ili sínu í Hafn­ar­firði laug­ar­dag­inn 20. apríl, 67 ára að aldri.

Björn fædd­ist þann 1. nóv­em­ber árið 1956 og var sonur hjón­anna Páls Líndal, fyrr­ver­andi borg­ar­lög­manns og ráðu­neyt­is­stjóra og Evu Úlf­ars­dóttur Líndal, hús­móður og deild­ar­stjóra. Björn lauk stúd­ents­prófi úr Mennta­skól­anum í Reykja­vík 1976 og hóf síðan nám við laga­deild Háskóla Íslands og lauk emb­ætt­is­prófi þaðan árið 1981.

Eftir að laga­nám­inu lauk starf­aði Björn í við­skipta­ráðu­neyt­inu en 1986 var hann ráð­inn til starfa hjá Alþjóða­bank­anum í Washington DC en þar vann hann til árs­ins 1988. Ári síðar tók hann við starfi aðstoð­ar­banka­stjóra Lands­banka Íslands en því starfi sinnti hann til árs­ins 2003. Þegar því starfi lauk hóf Björn rekstur sem sjálf­stætt starf­andi lög­maður sem hann vann við fram til dauða­dags.

Samkvæmt mbl.is sem sagði frá and­lát­inu, gengdi Björn ýmsum trún­að­ar­störfum um ævina. Var hann for­maður stjórnar Barna­vernd­ar­ráðs frá 1983 til 1986, í stjórn Nordiska Projekt­port­fonden frá 1983 til 1988 og í stjórn Fjöl­greiðslu­miðl­unar hf frá 2009 til 2012. Þar segir einnig að Björn hafi verið vin­sæll og vina­margur og að hann helsta áhuga­mál hafi verið stanga­veiði sem hann stund­aði í ára­tugi með fjöl­skyldu og vinum á hverju sumri. Ein af hans upp­á­halds veiðiá var Laug­ar­dalsá við Ísa­fjarð­ar­djúp sem hann veiddi í ásamt fjöl­skyldu sinni og vina­hjónum sem eiga fal­legar minn­ingar þaðan, eins og það er orðað hjá mbl.is. Þar kemur aukreitis fram að Björn hafi veirð góður ræðu­maður sem og píanó­leik­ari og hafi leikið á alls oddi í góðra vina hópi.

Árið 1983 kvænt­ist Björn Sólveigu Guð­munds­dóttur lög­fræð­ini en hún lést 12. des­em­ber 2010. Eign­uð­ust þau tvö börn, þau Vigdísi Evu, fædda 1983 og Guðmund Pál, fæddan 1986. Vig­dís Eva er mennt­aður lög­fræð­ing­ur, gift Þór­halli Ax­els­syni við­skipta­fræð­ingi, en Guðmund­ur Páll er lög­fræð­ing­ur að mennt og kvænt­ur Krist­ínu Láru Helga­dótt­ur lög­fræð­ingi.

Þá átti Sólveig þrjú börn úr fyrra hjóna­bandi, þau Sigyn Ei­ríks­dótt­ur, Sig­nýju Ei­ríks­dótt­ur og Óskar Örn Ei­ríks­son. Barna­börn Björns eru þau Björn Hilm­ir, Óðinn Helgi, Axel Reg­inn, Freyja Sól­veig og Sól­veig Eva.

Síðar kynnt­ist Björn Sigríði Krist­ins­dóttur sýslu­manni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en þau bjuggu saman í Hafn­ar­firð­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Eftir tíu ár í starfi segir flugfreyjan að val á fatnaði, töskum og öðrum ferðabúnaði geti skipt máli fyrir þægindi í flugi.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Fíkniefnin vógu 11.720 grömm og voru ætluð til söludreifingar
Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi