Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Mun ekki verja Svandísi vantrausti: „Ég á mjög erfitt með að sætta mig við það“

Svandís Svavarsdóttir virti ekki lagaheimildir þegar hún stöðvaði hvalveiðar síðasta sumar.
Svandís Svav­ars­dóttir virti ekki laga­heim­ildir þegar hún stöðv­aði hval­veiðar síð­asta sumar.

Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, seg­ist ekki ætla að verja Svandísi Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra van­trausti, sem Inga Sæland hefur boðað en alþingi kýs um það í næstu viku.

Jón stað­festir þetta í við­tali í Spurs­málum þar sem hann var gestur auk Snorra Mássyni, rit­stjóra mið­ils­ins Rit­stjóri.is og Heiðu Kristínu Helga­dóttur, fram­kvæmda­stjóra.

Eft­ir­far­andi sagði Jón í við­tal­inu: „Þetta er bara eitt af þess­um stóru vanda­mál­um sem við stönd­um frammi fyr­ir í þessu rík­is­stjórn­ar­sam­starfi, þessi van­traust­stil­laga sem hef­ur verið boðuð og mun koma fram. Og ég hef sagt það áður að ég sé ekki bara út frá prinsipp­um hvernig þing­menn sem hafa ein­hver prinsipp í póli­tík geti varið ráð­herra sem gekk fram með slíku offorsi, sem hún gerði í þessu til­felli og braut ekki bara lög held­ur senni­lega stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins. Og ég vil segja með opin aug­un því það var varað við þessu. Þetta lá svo í aug­um uppi. Lát­um liggja milli hluta dóm­inn, við get­um rætt það, for­send­ur mála sem fara fyr­ir dóm­stóla og eru svona ágrein­ings­efni eins og dóm­inn sem ég var að vitna í áðan þar sem verk Guðmund­ar Inga voru dæmd ógild, að það er þá búið að fara þessa leið og það er ein­hver ágrein­ing­ur í mál­inu. En þarna, er þetta gert með svo aug­ljós­um til­gangi og þannig fram­ferði að ég á mjög erfitt með að sætta mig við það og ætti mjög erfitt með að taka þátt í því að verja ráð­herra van­trausti sem að stigi þannig fram.“

„En þú úti­lok­ar það ekki?“ spurði þá stjórn­and­inn, Stefán Einar Stef­áns­son.

„Nei, ég bara segi það. Ég mun ekki gera það. Ráðherra sem er í þess­ari stöðu í máli sem hef­ur fengið þessa af­greiðslu á sjálf­ur að stíga til hliðar.“

Snorri Másson tók þá stjórn­ina af Stefáni og spurði Jón:

„En ef þú verð hana ekki van­trausti. Muntu sætta þig við að aðrir flokks­menn muni verja hana van­trausti?“

Jón svar­aði:

„Það verður bara að koma í ljós. Það er auð­vitað í mörg horn að líta núna þegar við hugs­um til þess­ara 18 mán­aða sem eru eft­ir af þessu kjör­tíma­bili. Og ég fór ágæt­lega hér yfir val­kost­ina sem við stönd­um hér frammi fyr­ir. Heiða seg­ir hér að það vilji nú eng­inn flokk­ur, ann­ar en VG vinna með Fram­sókn og Sjálf­stæð­is­mönn­um, nú þá er bara það aug­ljósa sem ég sagði áðan. Þá boðum við bara þjóð­ina til alþing­is­kosn­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Eftir tíu ár í starfi segir flugfreyjan að val á fatnaði, töskum og öðrum ferðabúnaði geti skipt máli fyrir þægindi í flugi.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Fíkniefnin vógu 11.720 grömm og voru ætluð til söludreifingar
Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi