Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Egill vill gjöld á ferðamenn

Ferða­þjón­ustan segir gjöld „út í hött“. Egill Helgason segir hags­muna­að­ila eiga of greiðan aðgang að fjöl­miðlum.

Egill Helgason
Egill Helgason Fjöl­miðla­mað­ur­inn hefur ferð­ast víða í Banda­ríkj­unum og greitt gjöld fyrir aðgang að ferða­manna­stöðum. Mynd: RÚV

Formaður Samtaka ferða­þjón­ust­unnar segir að fyr­ir­huguð komu­gjöld á ferða­menn sem koma til Íslands séu „út í hött“. Svipað sagði for­stjóri Icelandair í frétt Stöðvar 2.

Egill Helgason fjöl­miðla­maður segir það „tóma vit­leysu“ að banda­rískir ferða­menn, sem skila 38% tekjum ferða­þjón­ust­unnar, muni síður koma vegna gjalda.

„Ég ferð­ast mikið í Banda­ríkj­unum og það eru fáir staðir sem pilla af ferða­mönnum jafn mikið af alls konar gjöldum - sem stundum koma manni dáldið á óvart. Aðgangs­eyri borgar maður líka að öllum mögu­legum hlutum og hann er oft býsna hár. Mun hærri en í Evrópu. Það er tóm vit­leysa að smá­væg­legt komu­gjald muni valda því að Banda­ríkja­menn komi ekki til Íslands,“ segir hann á Facebook-síðu sinni.

Þá gagn­rýnir Egill Helgason íslenska fjöl­miðla fyrir að end­ur­óma gagn­rýn­is­laust umkvart­anir hags­muna­að­ila. „Það er svo stór spurn­ing hví full­trúar hags­muna­að­ila eiga svo greiðan aðgang að fjöl­miðlum á Ísland? Ástæðan er auð­vitað sú að þetta er svo auð­velt- þetta er „low effort“ frétta­mennska. Og svo er landið auð­vitað smátt.“

Ferða­þjón­ustan hefur verið í lægra skatt­þrepi virð­is­auka­skatts. Þannig er almennur virð­is­auka­skattur 24% sem leggst á vörur og þjón­ustu, en þjón­usta ferða­skrif­stofa, hót­elgist­ing, bað­lón og fólks­flutn­ingar, bera aðeins 11% virð­is­auka­skatt.

Rík­is­stjórnin hefur á stefnu­skrá sinni að leggja komu­gjöld á ferða­menn sem síðar myndi breyt­ast í auð­linda­gjöld sem fel­ast í að greitt verði fyrir aðgang að nátt­úruperlum. Í stefnu­skrá rík­is­stjórn­ar­innar segir um efnið: „ Vin­sæl­ustu ferða­manna­staðir lands­ins eru í eigu þjóð­ar­innar og rík­is­stjórnin hyggst taka upp auð­linda­gjald fyrir aðgang ferða­manna að nátt­úruperlum Íslands. Á meðan unnið er að útfærslu verða inn­heimt komu­gjöld.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Jón Daði þakkaði Maríu fyrir stuðninginn þegar hann kvaddi knattspyrnuna í ágúst. Nú hafa hjónin tilkynnt að fjölskyldan stækki næsta vor.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði