InnlentLætur allt flakka3. maí 2019 Jonathan Duffy frumsýnir nýja uppistandssýningu, It‘s been a while eða Það er svolítið síðan, í Tjarnarbíói í kvöld. Í samtali við Mannlíf segist ástralski grínistinn sem er nýkominn úr uppistandsreisu um heiminn með Hugleiki Dagssyni, ætla að vera samur við sig og láta allt flakka. En þó með nýju sniði.
InnlentÓlafur Darri í nýrri stiklu með Jennifer Aniston og Adam Sandler1. maí 2019 Ólafur Darri Ólafsson fer með hlutverk í myndinni Murder Mystery. Netflix hefur birt stiklu úr myndinni þar sem Ólafur Darri kemur fyrir stuttlega. Auk Ólafs Darra eru þau Jennifer Aniston, Adam Sandler og Luke Evans í aðalhlutverkum. Myndband
InnlentHélt í hönd Agnesar á meðan hún var hálshöggvin29. apríl 2019 Fríða Bonnie Andersen, höfundur skáldsögunnar Að eilífu ástin sem hefur vakið mikla lukku, segir að myndmál sé stór hluti af lestrarupplifun sinni. Sjálfsagt eigi hún það móður sinni að þakka þegar hún las fyrir hana The Tall Book of Nursery Tales fyrir svefninn, ævintýri og dæmisögur, sem kenndu góða siði og örvuðu ímyndunaraflið. En hvaða bækur skyldu hafa haft djúpstæðust áhrif á rithöfundinn?
InnlentHitti átrúnaðargoðið og átti erfitt með sig29. apríl 2019 Nýtt hlaðvarp um veiði og veiðitengd mál er farið í loftið. Umsjónarmenn þess eru í skýjunum með viðtökurnar.
InnlentFékk ekki krónu borgaða fyrstu árin28. apríl 2019 Tómas Þór Þórðarson, sem nýverið var ráðinn til að lýsa enska boltanum í Sjónvarpi Símans næsta hausti, hefur verið lengi í íþróttafréttamennskunni og byrjaði strax á unglingsaldri að skrifa um leiki á heimasíðu síns félags, Víkings. En hvað kom til að hann tók þá ákvörðun að gera þetta að ævistarfi?
InnlentVar með eina og hálfa manneskju utan á sér26. apríl 2019 Tómas Þór Þórðarson hefur verið ráðinn til að stýra þætti um enska boltann þegar Sjónvarp Símans tekur við útsendingum frá ensku deildunum í sumar. Hann segist vera ánægður með nýja starfið, þótt hann sé í eðli sínu lítið gefinn fyrir breytingar. Fáir hafa þó gert meiri breytingar á lífi sínu en hann undanfarin ár því árið 2014 var hann orðinn 225 kíló og átti erfitt með að hreyfa sig en er í dag 105 kíló og í fínu formi. Hann segir breytinguna jafnast á við að losna úr fjötrum.
InnlentKomið í ljós hver mun leika Díönu í The Crown10. apríl 2019 Leikkonan sem mun fara með hlutverk Díönu prinsessu í þáttunum The Crown þykir ansi lík prinsessunni í útliti.
InnlentKökuhlaðborðið aðalsmerki hlaupsins5. apríl 2019 Flóahlaupið verður haldið í fertugasta sinn um helgina en það er meðal annars þekkt fyrir kökuhlaðborðið sem boðið er upp á að hlaupi loknu.
InnlentKlassískar kvikmyndir fyrir alla fjölskylduna5. apríl 2019 Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð stendur nú yfir í Bíó Paradís. Að sögn Arons Víglundssonar dagskrárstjóra kennir ýmissa grasa á hátíðinni en í forgrunni verða sígildar perlur sem öll fjölskyldan getur haft gaman af.
Innlent„Búnar að upplifa mörg gæsahúðaraugnablik“3. apríl 2019 Þær Kolbrún Pálína Helgadóttir og Kristborg Bóel Steindórsdóttir eru önnum kafnar þessa dagana í tökum á sjónvarpsþáttum um skilnaði.
Innlent„Konur í stéttinni á Íslandi eru að vinna í frekar karllægum geira“25. mars 2019 Um helgina opnaði sýning sem ber yfirskriftina „Grafískar konur“. Á henni sýna 26 konur verk sín og ætlunin er að auka sýnileika kvenna sem vinna við grafíska hönnun á Íslandi.
InnlentVerðlaunuð fyrir bestu mynd í flokki daglegs lífs og fyrir tímaritamynd ársins25. mars 2019 Tveir ljósmyndarar Birtíngs voru verðlaunaðir um helgina á árlegri sýningu íslenskra blaðaljósmyndara. Það eru þau Aldís Pálsdóttir og Hallur Karlsson.