InnlentCovid-19SÉRBLAÐ MANNLÍFS: Út úr kófinu – Allar hliðar Covid á Íslandi14. júlí 2021 Mannlíf hefur unnið vandaða fréttaumfjöllum um allar hliðar Covid faraldsins á Íslandi.
InnlentCovid-19Bólusetningar í sumarfrí – Síðast séns í fyrri sprautu í dag13. júlí 2021 Í dag verður boðið upp á bólusetningu með bóluefninu Pfizer fyrir þá sem ekki hafa enn verið bólusettir. Laugardalshöll verður opin milli klukkan tíu og tvö. Þeir sem hafa fengið fyrri skammt af AstraZeneca en kjósa Pfizer sem seinni sprautu eru einnig velkomnir.Um er að ræða síðasta opna daginn fyrir sumarfrí en bólusetningar hefjast aftur upp úr miðjum ágúst og...
InnlentCovid-19Þórólfur ætlar að halda sig innanlands -„Mér finnst ég ekki eiga neitt erindi til útlanda“10. júlí 2021 „Ég hef nú gefið það út að ég sjái enga ástæðu til þess að vera að fara til útlanda. Ég held að það að fara til útlanda, sérstaklega ef fólk er óbólusett, sé ekki sniðugt. Með börn til dæmis, óbólusettir geta smitast og við höfum séð það að fólk er að koma jafnvel bólusett með veiruna og veikjast, enn þá....
InnlentCovid-19Guðrún Aspelund: „Getum alls ekki útilokað að hér á Íslandi komi upp smit vegna Delta-afbrigðisins“30. júní 2021 „Það er alveg möguleiki á því að Delta-afbrigðið – sem er að breiðast hratt út um heim allan – nái til Íslands“, segir Guðrún Aspelund yfirlæknir á sóttvarnasviði hjá Embætti landlæknis í samtali við mannlif.is. „Alpha-afbrigðið var ríkjandi hér á landi, en það gerist hjá veirum að þær breyta sér og verða sterkari,“ segir Guðrún og bætir við: „Við getum...
InnlentCovid-19Egill Helgason: „Fólk veikara – þurfum að fara varlega“28. júní 2021 Þáttastjórnandinn Egill Helgason segir að það sé „alveg fáránlegt að í fréttum helgarinnar var talað um Covid-lok – en það er auðvitað það sem fólk langar að heyra, skiljanlega.“ Egill nefnir að „þjóðir í Evrópu hafa á sér mikinn vara vegna Delta-afbrigðisins“ svokallaða og að „jafnvel sé rætt um að loka á breska ferðamenn.“ Hann er áhyggjufullur því „nú greinast...
InnlentCovid-19Sorgir, sigrar og baráttan við Covid: „Stundum heldurðu að þú komist ekki í gegnum daginn“26. júní 2021 „Íslendingar og við sem hér búum erum nokkuð sjóuð í að vera í samskiptum við öfl sem við ráðum ekki við, sem eru náttúruöflin. Þannig að það er svolítið inngróið í þjóðarsálina held ég að snúa bökum saman þegar eitthvað svona utanaðkomandi kemur upp á.“ Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur verið í þungamiðju baráttunnar við kórónuveirufaraldurinn á Íslandi. Ekki nóg með...
InnlentCovid-19„Covid-19 veldur óreglulegum blæðingum – Hætta á ótímabærum dauðsföllum móður og fósturs“25. júní 2021 „Það þarf að skoða þessar tilkynningar til að sjá hvort það sé orsakasamhengi. Tilkynningar þýða ekki að það sé sannað að þetta sé afleiðing hins; nákvæmlega eins og tilkynningar um allar aðrar aukaverkanir,“ segir sérnámslæknirinn í lyflækningum, Jón Magnús Jóhannesson, sem starfar á Landspítalanum. Jón segir að það komi ekki á óvart að konur geti fengið óreglulegar blæðingar eftir bólusetningu...
InnlentCovid-19Lögreglumenn sem komu upp um smithegðun Bjarna í Ásmundarsal áminntir og jafnvel refsað25. júní 2021 Lögreglumenn sem komu á vettvang í Ásmundarsal þar sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra ásamt fjölda annara braut sóttvarnareglur, hafa verið áminntir af Eftirlitsnefnd með starfsháttum lögreglu. Lögreglumennirnir komu á vettvang í Ásmundarsal, þar sem gleði undir formerkjun sölusýningar stóð sem hæst. Alltof margir gestir voru í salnum og leystu þeir upp gleðina. Þegar Dagbók lögreglu var send til fjölmiðla að morgni...
InnlentCovid-19„Þar varð Landspítölunum á í messunni“18. júní 2021 „Landspítalinn sem klínísk stofnun virkaði mjög vel í faraldrinum, það er að segja það var alveg afburða þjónusta sem fólk fékk. Covid göngudeildin var til að mynda alveg stórkostleg,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Ein undantekning hafi þó verið á því sem var Landakotsslysið og vitnar hann þar í hópsmitið sem þar varð síðastliðið haust. „Það átti rætur sínar...
InnlentCovid-19Kári fer yfir faraldurinn „Samskipti okkar við hið opinbera í gegnum þennan tíma voru voða skrítin“16. júní 2021 „Þessi faraldur byrjaði í Wuhan í Kína og það er nákvæmlega ekkert sem bendir til þess að þetta hafi ekki byrjað á sama máta og aðrir faraldrar. Það er ekkert sem bendir til þess að þessi veira hafi laumað sér út af rannsóknarstofu í Wuhan.“ Það má með sanni segja að Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar hafi lagt sitt lóð...
InnlentCovid-19Kolvört skýrsla um Landakotsspítala: Enginn axlar ábyrgð af hópsýkingunni sem kostaði 13 mannslíf16. júní 2021 Svört skýrsla Landlæknis leiðir í ljós að upplausnarástand ríkti á Landakotspítalla þar sem hópsmit braust út með þeim afleiðingum að 99 manns smituðust og 13 létu lífið. Landlæknir segir atvikið vera það alvarlegasta sem upp hefur komið í sögu heilbrigðisþjónustu hérlendis. Skýrslan felur í sér áfellisdóm yfir stjórnendum Landsspítalans sem brugðust alltof seint og illa við ástandi sem kostaði fjölda...
InnlentCovid-19Meira frelsi: Þú mátt vera lengur á pöbbnum og fjöldatakmarkanir rýmkaðar15. júní 2021 Almennar fjöldatakmarkanir voruð liðkaðar úr 150 í 300 manns og eins metra reglan tekur við af tveggja metra reglunni, er meðal þeirra reglna sem við tóku í afléttingaráætlun stjórnvalda á miðnætti í nótt. Nýju reglunar gilda í tvær vikur, til 29. júní. Veitingastöðum er heimilt að hleypa fólki inn til miðnættis en þurfa að loka klukkutíma síðar. Þeim er enn...