InnlentAuka 57 milljónir í styrki til myndlistarmanna27. apríl 2020 Myndlistarsjóður hefur fengið auka 57 milljónir til að veita í styrki til sjálfstætt starfandi listamanna til að sporna gegn efnahagsáhrifum COVID-19 innan stéttarinnar. Fyrr á árinu hafði Myndlistasjóður úthlutað 23 milljónum í styrki til 65 verkefna. Á laugardaginn var opnað fyrir umsóknir um styrki vegna verkefna á sviði myndlistar. Núna verða 500.000 kr. styrkir veittir. Skilyrði fyrir styrkveitingu eru m.a....
InnlentPlay á loft í vetur meðan Icelandair er í vanda26. apríl 2020 Flugfélagið Play er við það að tryggja sér langtímafjármögnun og stefnir á að hefja formlega starfsemi næsta vetur, samkvæmt heimildamönnum Mannlífs. Heimildamenn segja að á sama tíma sé raunstaða Icelandair verri en haldið hefur verið fram en félagið hefur meðal annars verið gagnrýnt fyrir háan rekstrarkostnað. Telja þeir að Icelandair komi til með að þurfa á ríkisaðstoð að halda og...
InnlentCovid-19Segir nálgun stjórnvalda vera „undarlega“ þar sem fókus er settur á fyrirtæki frekar en fólk24. apríl 2020 Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir nálgun stjórnvalda í kringum mótun aðgerðapakka vegna efnahagsáhrifa kórónuveirufaraldursins vera „dálítið undarlega“. Að hans mati eru fyrirtækin sett í fyrsta sæti og fólkið í landinu í annað sæti. Hann undrar sig á að ríkisstjórnin hafi núna kynnt tvo aðgerðapakka og tilkynnt að fleiri pakkar séu á leiðinni. Björn skrifar um málið í pistil sem...
Innlent350 milljónir í stuðning við einkarekna fjölmiðla21. apríl 2020 Ríkisstjórnin hyggst styðja við rekstur einkarekinna fjölmiðla með 350 milljóna króna framlagi vegna þess mikla tekjutaps sem miðlarnir hafa orðið fyrir samhliða minnkandi umsvifum í hagkerfinu. Þetta kemur fram á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins Þer segir að verið sé að vinna að reglugerð um úthlutun stuðningsins. Gert er ráð fyrir því að fjölmiðlar sæki um stuðning með formlegum hætti og...
InnlentCovid-19Algjört hrun í sölu veiðileyfa3. apríl 2020 Veiðiréttarhafar eru á meðal þeirra aðila í ferðaþjónustu sem horfa upp á algjört hrun vegna COVID-19. Tjónið hleypur hjá einum þeirra á tugum milljóna. „Þetta lítur helvíti illa út,“ segir veiðileyfasalinn og leiðsögumaðurinn þaulreyndi Árni Baldursson. Hann á fyrirtækið Lax-á, sem hefur um árabil leigt veiðisvæði og selt veiðileyfi auk þess að bjóða upp á veiðiferðir til landa eins og...
InnlentSkorar á yfirvöld að búa til björgunarpakka fyrir fjölmiðla líkt og Danir gerðu3. apríl 2020 Fjölmiðlafræðingurinn Sigrún Stefánsdóttir skorar á íslensk yfirvöld að fylgja fordæmi Dana og styðja við starfsemi sjálfstætt starfandi fjölmiðla á þeim óvissutímum sem nú eru uppi. Sigrún skrifar um málið í pistil sem birtist á vef Kjarnans. „Á sama tíma og fyrirtæki draga úr starfsemi sinni og jafnvel loka vegna kórónuveirunnar, treystum við því að fjölmiðlar fræði okkur áfram um ástandið,...
Innlent26 þúsund umsóknir um hlutabætur hafa borist – Umsóknir og fyrirspurnir streyma inn1. apríl 2020 Yfir 26 þúsund umsóknir hafa borist vil Vinnumálastofnunar um greiðslur á móti skertu starfshlutfalli. Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, greindi frá þessu á upplýsingafundi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra vegna COVID-19 í dag. Hún sagði álagið á starfsfólk Vinnumálastofnunar vera mikið vegna þess fjölda umsókna sem berast núna. Unnur biður fólk um að skoða heimasíðu Vinnumálastofnunar áður en það hringir. í þjónustuverið. Mynd /...
InnlentBláa lónið tekjulaust í apríl og tekjulítið í maí – Kemur ekki til greina að greiða út arð30. mars 2020 164 starfsmönnum Bláa lónsins var sagt upp í störfum í síðustu viku og öðrum 400 starfsmönnum var boðið skert starfshlutfall og geta þá sótt um hlutabætur hjá Vinnumálastofnun á móti. Flestir þeirra sem fara á hlutabætur fara niður í 25% starfshlutfall. Margir hafa gagnrýnt fyrirtækið fyrir að nýta sér þetta úrræði, að skerða starfshlutfall starfsmanna, í ljósi þess að fyrirtækið...
InnlentCovid-19Segir að fólk ætti ekki að taka sparnaðinn út bara vegna þess að það er í boði30. mars 2020 Meðal þeirra aðgerða sem stjórnvöld hafa ráðist í til að bregðast við efnahagsáhrifum COVID-19 faraldursins er að heimila fólki úttekt á séreignasparnaðinum sínum. Björn Berg Gunnarsson deildarstjóri greiningar og fræðslu Íslandsbanka bendir á að fólk ætti ekki að leika sér að því að taka þennan sparnað út bara vegna þess að það stendur til boða. Veitt verður heimild til að...
InnlentCovid-19Ögurstund fram undan í ferðaþjónustu29. mars 2020 Stjórnendur ferðaþjónustufyrirtækja hafa margir hverjir þegar afskrifað sumarið. Flestir þeirra sem Mannlíf hefur rætt við þessa dagana segjast geta lifað af mánuð eða tvo, með aðstoð stjórnvalda, en að svo þyngist róðurinn verulega. Þeir spá því sumir að fjölmörg fyrirtæki gætu farið í þrot. Númer hafa verið tekin af rútum og sumarstarfsfólki tilkynnt að krafta þess sé ekki þörf. Þórir...
InnlentCovid-19„Þetta eru ömurlegar aðstæður“29. mars 2020 „Við erum búin að leggja stærstum hluta okkar flota,“ segir Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða, í samtali við Mannlíf. Hann segir að fáeinar ferðir hafi verið farnar í upphafi vikunnar en að þetta hafi fjarað út. Þeir síðustu sem áttu bókað hafi ekki mætt. „Það er ekkert eftir af fólki.“ Starfsemi Kynnisferða, eða Reykjavík Excursions – Kynnisferðir ehf., er margþætt. Fyrirtækið...
InnlentCovid-19Rúturnar teknar af númerum: „Þetta er mikið áfall“23. mars 2020 Gray Line ætlar ekki að segja upp starfsfólki. Stjórnarformaður fyrirtækisins er ánægður með útspil stjórnvalda. Umsvif fyrirtækisins hafa dregist saman um 99% og hópferðabílarnir hafa verið teknir af númerum. Eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins, Gray Line, hefur tekið 80 prósent af rútum sínum af númerum. Þórir Garðarsson stjórnarformaður segir í samtali við Mannlíf að umsvif félagsins séu í dag eitt prósent...