InnlentCovid-19Spáir því að margt fólk muni þurfa að nýta sér úrræðið23. mars 2020 „Þetta er dýfa sem við munum vonandi spyrna okkur hratt upp úr,“ segir Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, á upplýsingafundi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Á fundinum ræddi Unnur aðgerðir Vinnumálastofnunar vegna þeirrar stöðu sem blasir við á vinnumarkaði vegna útbreiðslu COVID-19. Frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, um rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar í starfsemi vinnuveitanda var...
InnlentCovid-19Sólveig Anna um gagnrýni Elliða: „Kemur ekkert við þótt einhver hálaunakarl grípi í moppuna“23. mars 2020 Formaður Eflingar segist ekki skilja hvers vegna sveitastjórinn í Ölfusi beini spjótum sínum að sér í nýlegu viðtali. Að hennar mati ætti hann að verja tímanum í annað. Til dæmis að beita sér fyrir því að fólk fái laun sem allir geti verið sáttir við. „Ég er formaður í stéttarfélagi verkafólks og láglaunafólks og þekki bara mjög vel hvernig er...
InnlentCovid-19Flugleiðir til Íslands gætu lokast22. mars 2020 Utanríkisráðherra hvetur Íslendinga, sem eru staddir erlendis, að huga að heimkomu sem allra fyrst, hafi þeir það í hyggju á annað borð, því sá möguleiki sé fyrir hendi að öllum flugleiðum til landsins verði lokað um næstu mánaðarmót. „Þeir Íslendingar sem hyggja á heimkomu þurfa að snúa heim strax, skrá sig í gagnagrunn borgaraþjónustunnar og hafa beint samband ef þeir...
InnlentCovid-19Sigmundur Davíð hjólar í ríkisstjórnina: „Menn ekki búnir að gera sér fyllilega grein fyrir alvarleika stöðunnar“21. mars 2020 „Miðað við kynningu ríkisstjórnarinnar á nýjum efnahagsaðgerðum óttast ég að menn séu ekki búnir að gera sér fyllilega grein fyrir alvarleika stöðunnar. Því fyrr sem við gerum það og grípum til viðeigandi aðgerða þeim mun árangursríkari verða þær.“ Þetta segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, í færslu sem hann birtir á Facebook. Þar tekur hann fram að við þessar fordæmalausu...
InnlentCovid-19Þetta ætlar ríkisstjórnin að gera til að bregðast við COVID-19 veirunni21. mars 2020 Allt gert verður til að verja afkomu fyrirtækja og fólksins í landinu. Stjórnvöld munu greiða allt að 75% launa þeirra sem lækka tímabundið í starfshlutfalli. Greiðslu opinberra gjalda frestað. Fyrirtæki fá greiðslufrest eftir því sem þörf krefur. Þá verður lækkun bankaskatts flýtt. Þetta er á meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í Hörpu rétt í þessu, þar sem...
InnlentMarkmiðið að takmarka skaðann sem hlýst af ferðabanni18. mars 2020 Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir tilkynningu Evrópusambandsins um 30 daga ferðabann vera „óskýra“. Í gær var greint frá því að ESB hefur tekið ákvörðun um að loka ytri landamærum sínum fyrir ferðamönnum utan sambandsins fyrir ónauðsynlegum ferðalögum næstu 30 daga. Tilgangurinn er að reyna að draga úr útbreiðslu COVID-19. Angela Merkel, kanslari Þýsklands, greindi frá þessu í gær. Bannið tók...
InnlentSlaka enn frekar á taumhaldi og lækka vexti í 1,75%18. mars 2020 Seðlabanki Íslands hefur birt niðurstöður nýlegra funda peningastefnunefndar og fjármálastöðugleikanefndar en eins og Mannlíf greindi frá fyrr í mánuðinum hefur Seðlabanki Íslands undirbúið stóran aðgerðarpakka til að bregðast við efnahagslegum áhrifum COVID-19 faraldursins. Nefndirnar hafa undanfarið skoðað til hvaða mótvægisaðgerða þær geti gripið. „Bæði þjóðarbúið og fjármálakerfið hér á landi eru vel í stakk búin til þess að takast á...
HeimurCovid-19„Stór skref“ til að takmarka atvinnuleysi17. mars 2020 Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, reiknar með að ríkissjóður verði rekinn með hundrað milljarða króna halla á þessu ári vegna áhrifa útbreiðslu COVID-19 á efnahagslífið. Bjarni mætti í Bítið í morgun þar sem hann ræddi aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna COVID-19. Hann telur mikilvægt að fólkið í landinu haldi störfum sínum og segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar snúast að miklu leyti um það. Hann...
InnlentCovid-19Ferðabann Bandaríkjaforseta tekur gildi14. mars 2020 Ferðabannið sem Donald Trump Bandaríkjaforseti setti á 26 þjóðir Evrópu til Bandaríkjanna, í því skyni að hefta frekari útbreiðslu kórónuveirunnar, hefur tekið gildi. Bannið nær meðal annars til Íslands. Eins og kunnugt er hafa um tvö þúsund COVID-19 tilfelli greinst í Bandaríkjunum og 43 hafa látið lífið, þegar þetta er skrifað og hefur Bandaríkjaforseti lýst yfir neyðarstandi vegna kórónaveirunnar og...
InnlentCovid-19Segir stjórnendur þurfa að íhuga að stöðva rekstur13. mars 2020 Jón Karl Ólafsson, stjórnarformaður TravelCo og fyrrverandi forstjóri Icelandair Group, segir stjórnendur Icelandair Group mögulega þurfa að skoða að stöðva rekstur á meðan ferðabann bandarískra stjórnvalda vari. Hann segir stjórnendur félagsins annað hvort þurfa að skoða stöðvun á rekstri eða að draga framboð verulega saman vegna ferðabannsins. Þetta segir hann í samtali við Markaðinn í Fréttablaðinu. Hann segir ljóst að...
InnlentCovid-19Saudia sker niður flug Atlanta13. mars 2020 Sádi-arabíska flugfélagið hefur aflýst öllu flugi á vegum Air Atlanta fram í maí, samkvæmt heimildum Mannlífs. Félögin sömdu í febrúar um viðamikið áætlunarflug til þriggja ára. Sá samningur hljóðaði upp á 40 milljarða króna.
InnlentCovid-19Fullyrt að 150 flugmenn Icelandair missi vinnuna12. mars 2020 Menn sem gjörþekkja til flugreksturs á Íslandi fullyrtu í gær, áður en Donald Trump tók þá afdrifaríku ákvörðun að banna allt flug frá Evrópu til Bandaríkjanna í heilan mánuð, að rekstur Icelandair hafi ekki verið þyngri á öldinni. Ástæðan sé, til viðbótar við Boeing-málið, efnahagsþrengingar og samdráttur sem kórónaveiran hefur magnað. Nokkrir heimildarmenn Mannlífs sögðu jafnframt í gær að til...