Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sólveig Anna um gagnrýni Elliða: „Kemur ekkert við þótt einhver hálaunakarl grípi í moppuna“

Sólveig Anna um gagnrýni Elliða: „Kemur ekkert við þótt einhver hálaunakarl grípi í moppuna“
||

Formaður Eflingar seg­ist ekki skilja hvers vegna sveita­stjór­inn í Ölfusi beini spjótum sínum að sér í nýlegu við­tali. Að hennar mati ætti hann að verja tím­anum í annað. Til dæmis að beita sér fyrir því að fólk fái laun sem allir geti verið sáttir við.

„Ég er for­maður í stétt­ar­fé­lagi verka­fólks og lág­launa­fólks og þekki bara mjög vel hvernig er að vera lág­launa­kona á íslenskum vinnu­mark­aði og það að ein­hver hálauna­karl grípi í mopp­una, það kemur mér og mínu félags­fólki bara ekk­ert við,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, um við­tal við Elliða Vign­is­son, sveit­ar­stjóra í Ölfusi, sem birt­ist á hafna­frettir.is.

Í umræddu við­tali kemur meðal ann­ars fram að Elliði hafi sjálfur þrifið leik­skól­ann í bænum und­an­farið svo hægt sé að veita börnum í for­gangs­hópum þjón­ustu, en verk­fall Efl­ing­ar­fólks í sveit­ar­fé­lögum utan Reykja­víkur stendur enn yfir. Er sveita­stjór­inn þung­orður í garð Sól­veigar Önnu og seg­ist ekki vita hvort eigi að taka alvar­lega fólk eins og hana sem segi sveit­ar­fé­lögin not­færa sér COVID-19 far­ald­ur­inn í samn­inga­við­ræð­unum. Með grein­inni fylgir mynd af Elliða að skúra.

„En það er alveg sama hvað hann skúrar mikið, hann mun aldrei skúra burt þá sam­fé­lags­legu skömm sem lág­launa­stefna er.“

Ætti að beina fúkyrðaflauminum annað

Sólveig segir rétt að taka fram að æðstu yfir­menn megi hlaupa í þessi störf, þau í Eflingu fall­ist á það og með þessu sé Elliði auð­vitað að skapa gott mynda­tæki­færi. „En það er alveg sama hvað hann skúrar mikið, hann mun aldrei skúra burt þá sam­fé­lags­legu skömm sem lág­launa­stefna er. Þá skömm sem felst í því að halda niðri stórum hópi kvenna sem halda upp­stöð­unum uppi og tryggja að sam­fé­lagið haldi áfram að virka.“

Hún telur að Elliði ætti frekar að beita sér fyrir því að fólk fái laun sem allir geti verið sáttir við en að beina ein­hverjum fúk­yrða­flaumi í átt að sér. „Já, hann ættir frekar að nota tím­ann til þess að benda félögum sínum innan sveit­ar­fé­lag­anna á að Efling hafi samið við Reykja­vík og ríkið og við séum aðeins að fara fram á sam­bæri­legar leið­rétt­ingar og þar eru gerðar. Það væri nær lagi.“

Höfðu forherst í sinni afstöðu

Satt best að segja kveðst Sólveig Anna ekki skilja hvers vegna Elliði beini spjótum sínum að sér í umræddri grein. Hún seg­ist í raun ekki skilja afstöðu sveit­ar­fé­lag­anna yfir­leitt í yfir­stand­andi samn­inga­við­ræðum.

„Ég skil ekki þessa þver­móðsku að neita að ræða við okkur. Að vilja ekki vera í aktívum við­ræðum þar sem við reynum að finna lausnir. Þau sögð­ust til dæmis þurfa að ræða ákveðin mál við sitt bak­land og við hittum þau aftur fimm dögum seinna í þeirri trú að hægt yrði að ganga frá mál­unum, en þá komu þau til­baka með ekk­ert í hönd­unum og höfðu for­herst í afstöð sinni. Á meðan þetta ger­ist fjölgar und­an­þágu­beiðnum, sér­stak­lega í Kópa­vogsbæ. Við höfum komið til móts við þær að því leyti að við höfum tryggt að hægt sé að veita þjón­ustu til við­kvæmra hópa í ljósi stöð­unnar sem er komin upp vegna COVID-19.

Þannig að þegar ég segi að sveit­ar­fé­lögin séu að nota sér ástandið í samn­inga­við­ræð­unum þá á ég við að mér finnst ótrú­leg þessi lít­is­viðr­ing sem þetta fólk sýnir okkur og lág­launa­fólk­inu sem sinnir þessum störfum.“

Sjokkeruð yfir afstöðu sveitarfélaganna

Sólveig segir að það sé í gangi ein­hver furðu­leg krafa um að Efl­ing­ar­fólk eigi að veita und­an­þágur, síend­ur­tekið. „Það er vilja­leysi til að vinna í samn­ings­við­ræðum og krafa um að lág­launa­fólk snúi aftur til vinnu samn­ings­laust. Fólk sem er búið að vera án samn­ings í ár. Ég fæ bara ekki skilið hvernig hægt er að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu.

Ég er sjokkeruð yfir afstöðu sveit­ar­fé­lag­anna. Orka okkar ætti að fara í útkljá þessi mál eins og gert hefur verið í Reykja­vík svo að hægt sé að ein­beita sér að því stóra verk­efni sem við blasir.“

Sjá einn­ing: Elliði segir Sólveigu Önnu ekki lesa í aðstæður: „Sér ekki hætt­una“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi